Barnablaðið - 01.12.1989, Page 52

Barnablaðið - 01.12.1989, Page 52
52 BARNABLAÐID — Úff, en hvaö þetta er þungt! Þetta er þriðja sendingin. Hvaö er mikið eftir nú, spurði Rollo og blés mæðinni. — Við verðum að fara tvær ferðir enn, svaraði litli maðurinn. — En ferð- irnar borga sig! Við fáum ríflega fyrir hverja ferð! — Hvað eigum við svo að gera, spurði Hárski. — Við tökum því rólega og slöpp- um af í nokkra daga. Þá fer þetta fyrst að verða hættulegt. Það kemur ein- hver sem á að sækja vöruna og borga í beinhörðum peningum. Þegar allt er um garð gengið þurfum við ekki að vinna það sem eftir er ævinnar! Bara ef allt gengur upp! Saku skildi að þetta var dulbúin við- vörun. — Hvar skyldu pokarnir lenda á endanum, spurði Rollo. — Það er ekki gott að segja. Eitt- hvað fer til Finnlands og eitthvað til Svíþjóðar og Noregs. Einhver sagði að þeir seldu út um allan heim. Þeir höfðu gengið lengi þegar þeir komu að litlum kofa. Hann var að hluta falinn af brekkunni og að hluta í skugga runna og trjáa. Rollo opnaði dyrnar og kveikti á olíulampa. Kofinn var hlýlegur og hreinn. — Flott hús, sagði Saku og leit á Hárski. Hann brosti á móti. Litli maðurinn leit illilega á Hárski og svo spunnust heitar deilur. — Nú verðum við að fara að losa okkur við litla snuðrarann, sagði litli maðurinn fúll. Saku horfði beint í augun á honum. Hann var ekki lengur hræddur. Þetta var skrýtin reynsla. Lengi stóð hann og starði á manninn án þess að depla auga. — Jæja, svo þú ert lítill harðjaxl. Þú verður ábyggilega góður burðarkarl. Auðvitað færðu svolitla vasapeninga, sagði litli maðurinn. Hann virtist vin- gjarnlegri og rólegri. — Aldrei í lífinu! Hrópaði Saku ákveðinn. — Þið skulið ekki reikna með minni hjálp. Sjálfir getið þið unnið ykkar óþverraverk! Ég veit vel að þið smyglið og dreifið eiturlyfjum og þið skulið ekki blanda mér í það. Hann hafði ekki tapað kjarkinum. Þvert á móti! Hann fann hvernig hann jókst allur að afli hið innra. — Bull, sagði Hárski nöldrandi. — Þetta er vinnan okkar! — Jæja, svo þú hefur áttað þið á aðstæðum, sagði litli maðurinn róleg- ur. — En hugsaðu þig vel um áður en þú fremur einhver heimskupör. Þú færð þinn hlut, já, þú sjálfur, ef þú hjálpar okkur. Það er býsna erfitt að bera pokana alla leið frá ströndinni og upp í þennan kofa. Hann lét sem hann hefði ekki heyrt hvað Saku sagði. Svo rétti hann fram vindlinga, en Saku hristi höfuðið. — Einmitt, ég veit að það er óhollt að reykja. Maður fær lungnakrabba og svoleiðis af því. En þegar maður er búinn að venja sig á sígarettuna, þá er ekki auðvelt að hætta, sagði litli mað- urinn og kveikti í vindlingi. Þeir kveiktu eld í ofninum og lögðu á borðið. — Ef þú neitar að starfa með okk- ur, þá neyðumst við til að grípa til ann- arra aðgerða, sagði litli maðurinn ógnandi röddu. — Og ég held að það verði verra fyrir þig. — Ég neita samt, sagði Saku harðákveðinn. — Ég kæri mig ekki um að vinna sem handlangari hjá smyglaraflokki. Hafið þið aldrei hugs- að um hvað eiturlyf gera fólki? Hafið þið gert það, spurði Saku. — Það er ekki okkar vandamál! — Jú, svo sannarlega! Þið eigið sökina á því að fólk reikar um göturnar í bæjunum og þráir meiri eiturlyf. Það fremur innbrot og morð, bara til að eignast meiri peninga fyrir eiturlyfjum. Fólkinu líður illa og það er ekki ykkar mál, sagði Saku æstur. — Við stundum bara okkar starf... reyndi Hárski að segja. — Þið skuluð fá að standa ábyrgir fyrir því sem þið hafið gert, sagði Saku djarflega. — Ef ekki frammi fyrir lög- reglunni, þá frammi fyrir Guði almátt- ugum. Þá verður ykkur vorkunn! — Fyrir Guði! Ertu nú líka trúaður ofan á allt annað, sagði litli maðurinn hæðnislega. Rollo og Hárski hlógu ekki. Þeir störðu á Saku líkt og hann væri aftur- genginn. Orðin sem hann sagði hittu í mark. Litli maðurinn stóð upp og fór inn í hitt herbergið. Nú var hann reiður. Hann vildi ekki láta strákhvolp á við þennan koma sér í klandur. Það varð hrópandi kyrrð í kofanum. Það eina sem heyrðist var snarkið í eldinum og vindurinn á kofagluggan- um. Saku hugsaði til hinna strákanna og andvarpaði. Hvað skyldu þeirvera að hugsa? Ef til vill halda þeir að ég hafi dottið í fossinn og drukknað? Hræðsla varekki lengurtil íhonum, svo furðulegt sem það var. Hann var viss um að Guð hefði ekki gleymt hon- um. Hljóðlega fór hann að raula fyrir munni sér gamlan sunnudagaskóla- söng: „Enginn þarf að óttast síður, en Guðs barna skarinn fríður..." Þegar hann hugsaði um þennan söng fann hann fyrir nýjum krafti og öryggi í hjarta sínu. — Þakka þér kæri Jesús, hvíslaði hann og raulaði áfram. Hárski hlustaði á. Hugsanir hans reikuðu aftur til æskuáranna og mömmu hans sem oft hafði sungið þennan söng. Aftur og aftur reyndi hann að kyngja stórum kekki, sem hafði komist í hálsinn á honum. Það sáust tár í augunum. — Þetta er fallegt lag. Mamma var vön að syngja það, sagði Hárski snortinn. — Égeraðhugsaumhvaðfélagar mínir halda nú, sagði Saku. — Félagar? — Já, við erum í fríi. Þrír félagar mínir eru í kofa við fossinn, þar sem þið funduð mig. — Þeir fara örugglega niður að Vestari-Jakobsá og sækja hjálp. Þá fær lögreglan örugglega pata af mál- inu. — Það má reikna með því! — Þáerum viðbúniraðvera, hvísl- aði Hárski. Ég hef alltaf óttast þetta. Saku vorkenndi honum. Lífið hafði örugglega verið honum erfitt. Saku skildi að Hárski var einmana, vonsvik- inn og lífsleiður maður. — TrúirþúáGuð,dattútúrHárski. — Já og líka því að til sé Himinn. Það kemur einmitt fram í söngnum. — En hvernig getur þú vitað það, spurði Hárski. — Maður verður að trúa því. Vera viss um það hér inni. Saku benti á hjartastað og brosti. Hárski kinkaði kolli. — Mamma bað oft fyrir mér... en ég lét mér fátt um finnast. Fór mína eigin leið og olli mömmu oft vonbrigð- um. Mamma var góð. Saku hélt áfram að syngja: Svo er

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.