19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 6

19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 6
hjá Gunnari, það var blátt áfram óhugsandi að ætla sér að búa saman án þess að vera gift. Það dugði eiginlega ekki til vegna þess að ég kallaði mig Kristinsdóttur eftir sem áður, en það voru sí- felldar augnagotur og vandræði því samfara, þannig að ég lét að lokum undan og kallaði mig Friðbjörnsson. Þess má líka geta að til þess að komast inn á hjónagarða í Bretlandi þarf fólk að sýna hjónavígsluvottorð. Höfðuð þið sem unglingar tal- ið það öruggt að hjónaband lægi fyrir ykkur? Ella Kolbrún: í hreinskilni sagt, þá hafði ég aldrei hugsað út í það. Þegar ég afréð að fara til Dan- merkur að læra sjúkraþjálfun, hafði ég fyrst og fremst í huga hversu alþjóðleg menntun þetta væri. Ég var staðráðin í því að læra eitthvað sem gæfi mér starfsmöguleika sem víðast og auk þess vantaði tilfinnalega fólk með þessa menntun á íslandi. Gunnar: Ég hafði eiginlega aldrei velt því fyrir mér hvort það ætti fyrir mér að liggja að verða fjölskyldumaður. Höfðuð þið hugmyndir fyrir- fram um það hvernig hjóna- bandið yrði? Gunnar: Ég held að við höfum tekið hjónavígsluna mjög lítið hátíðlega og ákvörðunin um þetta spor ekki verið stærri en að afráða eina bíóferð í Gamla Bíó. Astæðan var auðvitað sú, að þetta var það sem við vildum og það var sæmilega góður aðdrag- andi að þessu. Þegar að stundinni var komið var enginn óraunsæis- blær yfir þessu og það má líka hafa í huga að við vorum orðin 24 ára gömul. Mér þótti það eigin- lega viðmiðunaratriði þess að fólk ætti gott með að búa saman, þegar því þætti orðið gott að þegja saman. Voru einhverjar hugmyndir uppi um hlutverkaskiptingu? Ella Kolbrún: Það kom aldrei til að við ræddum um það, að þetta ætti ég að gera og Gunnar eitt- hvað annað. Sú hætta sem sífellt er verið að tala um í sambandi við mismunandi hlutverk hjónanna, held ég að komi fyrst og fremst upp þar sem annar aðilinn dregst aftur úr hinum, staðnar á ein- hvern hátt. Það má taka sem dæmi fólk sem fylgist að í skóla fram að ákveðnum aldri. Annar aðilinn heldur síðan áfram námi og hinn ekki og slíkt getur oft leitt til þess að sá aðilinn sem ekki hélt áfram er farinn að telja sér trú um að hinn sé sér fremri. Slík hjóna- Á vinnustað, í sjúkraþjálfunardeild H. I. 4 bönd eru þá komin í hættu þar sem hjón eru hætt að líta á hvort annað sem jafningja. Höfðuð þið einhverja fasta skiptingu með ykkur varðandi heimilishaldið? Ella Kolbrún: Þegar við fórum fyrst út saman var Gunnar enn í sínu námi og ég vann að mínu starfi. Barn kom fljótlega til sög- unnar, sem við höfðum á vöggu- stofu. Þegar heim kom á kvöldin, skiptum við yfirleitt með okkur þeim verkum sem lágu fyrir, „ef þú þværð upp tek ég þvottinn“ og þetta gekk vel fyrir sig. Gunnar: Þetta breyttist ekki svo mikið eftir að ég lauk námi. Við hugsuðum bæði um barnið þegar við vorum ekki að vinna, en Ella vann töluvert mikið vaktavinnu og þá var ég með barnið, en það kom ekki til árekstra. Þið fluttuð heim 1967 en stóð- uð stutt við, hver var ástæðan? Ella Kolbrún: Við höfðum aldrei hugsað okkur að vera eiliflega er- lendis og ákváðum að drífa okkur heim, en það fór ekki allt eins og við höfðum vonað. Gunnar fékk ekki vinnu hér í Reykjavik, þar sem ég starfaði og fór þvi norður í land þar sem hann fékk verkefni. Ég var hér í borginni með barnið, en það var aldrei sameiginlegt heimilishald þennan stutta tíma sem við stóðum við. Gunnar: Það voru ekki nema nokkrir mánuðir sem liðu áður en við ákváðum að fara út aftur. Ég fór að vinna sem arkitekt, en Ella Kolbrún fór út í það að læra kennslu í sjúkraþjálfun. í miðjum klíðum eignuðumst við annað l^arnið okkar og ég hafði svona meiri veg og vanda af því barni en hinu eldra. Ella Kolbrún: Þær voru margar hverjar hissa nágrannakonurnar þegar þær sáu hvað Gunnar var mikið með barnið. Það hittist líka þannig á að þegar stelpan var um 6 vikna þurfti ég að fara vegna náms míns í aðra borg og hann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.