19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 11

19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 11
Útflutningur ullarvara er orðið mitt aðalstarf. nema að kaupa í matinn, sér- staklega á sveitaheimili þar sem oft er margt um manninn. „Hér er flest 14 manns í heimili á sumrin og þá er verið að elda allan daginn. Við getum ekki bundið okkur við klukkuna og verðum oft að skiptast á að fara inn i mat svo hægt sé að halda vélunum gangandi. Þetta eykur vitaskuld mikið vinnuna innan- húss“. „Það erfiðasta við að búa í sveit er að þurfa að hafa vinnukraft, sem er yfir manni bæði í vinnu- tíma og frístundum“, sagði Sigríður. „Þar á móti kemur að það hjálpar varðandi samheldn- ina í fjölskyldunni að heimilið er jafnframt vinnustaðurinn“. Að vera einn með sjálfum sér En það eru líka erfiðleikar samfara því að hafa vinnustaðinn á heimilinu. Kjartan sagði að sér fyndist það helst skorta á, að hann hefði lítinn tíma til að vera einn með sjálfum sér. „Sigríður á erfitt með að sætta sig við að ég þurfi að vera stund- um út af fyrir mig. Það finnst mér hins vegar nauðsynlegt einstaka sinnum, sérstaklega þegar ég er ekki vel fyrir kallaður“. „Þetta er rétt hjá honum“, sagði Sigríður. „Við erum svo ólíkir persónuleikar. Ég hef aldrei þessa þörf fyrir að vera ein og á þess vegna erfitt með að skilja hann að þessu leyti“. Mátulega ólík Þegar hingað var komið í sam- talinu, kölluðu skyldustörfin á Kjartan, en við Sigríður veltum fyrir okkur spurningunni hvað sé gott hjónaband. „Eg held að það sé gott að hjónin séu mátulega ólík“, sagði hún. „Ef bæði væru þung, gæti það valdið hreinum fjandskap, og ef bæði væru ör til reiði, gæti það oröið eilíft þras. I hjónabandi þarf að gefa og þiggja. Ég held, að oftast sé það annar aðilinn sem gefur meira, en á meðan það er ekki bara á annan veginn, er allt í lagi. Okkur hefur tekist að skilja hvort annað betur með árunum og bætum hvort annað upp á ýmsan hátt. Við erum líka svo vel sett að hafa sameiginleg áhuga- mál sem tengja okkur. Við höfum bæði áhuga á hestum og íslenska hundinum. Einu utanferðirnar sem við förum, fyrir utan við- skiptaferðir, eru ferðir á hesta- mannamót, sem haldin eru ann- að hvert ár í Evrópu. Við getum að vísu ekki farið saman, en við hittumst þó á mótunum. Annað sameiginlegt áhugamál er að við höfum mikinn áhuga á öllum fögrum listum. Kjartan les geysimikið og alltaf þegar hann sér eitthvað, sem hann heldur að ég hafi áhuga á, les hann upphátt fyrir mig. Hann er líka alinn upp við myndlist. Það eru áhrif frá föðurbræðrum hans, Finni og Ríkaröi Jónssonum. Við höfum gaman af að fylgjast með ákveðnum listamönnum og reyn- um að fara á allar þeirra sýning- ar. Ef eitthvað það kemur upp, sem ætla má að valdi ágreiningi, reynum við að forðast að ræða hlutina strax, heldur láta málin lægja örlítið áður en við setjumst niður í stofunni á kvöldin til að ræða saman. Þar fáum við að vera í friði fyrir börnunum, ef við viljum. Annars tökum við börnin oft inn í umræðurnar, því að við teljum að þau hafi rétt á sinni skoðanamyndun, joótt hún falli ekki alltaf saman við okkar skoð- anir. Við viljum ekki binda börnin á klafa, heldur leiðbeina þeim án þess að finna lausnina fyrir þau“. Börn Sigríðar og Kjartans eru Blm. „19. júní" skoðar varninginn. 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.