19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 14
Átröppunum framan við Hallveigarstaði: Birgit, Sólveig, María, Unnur, Emilía, Hildur, Kristján og Bjarni Þ. (Á myndina vantar Þórunni
og Bjarna J.)
„Þetta er uppeldisatriði“
Ritnefnd „19. júní“ fór þess á
leit við nokkur ógift ungmenni,
að þau greindu blaðinu frá við-
horfum sínum til hjúskapar og
samskipta kynjanna almennt.
Svöruðu þau öllum spurningum
okkar greiðlega og það kom
blaðamönnum hálft í hvoru á ó-
vart, hversu fús og allt að því
Eitt hið fyrsta, sem bar á góma,
var hjúskaparlöggjöfin og hvort
þau þekktu hana. Svo sem von-
legt var svöruðu flest því neit-
andi, nema hvað þau gerðu sér
einhverja hugmynd um grund-
vallaratriði hennar, t.d. um sam-
eiginlegar eignir hjóna, erfðarétt
og jafna skiptingu við skilnað.
María var þó undantekning frá
þessu, þar sem hún hafði unnið
með löggjöfina í námi sínu, og
hún taldi nauðsynlegt, að fólk
þekkti lögfylgjur hjúskapar, t.d.
hina gagnkvæmu framfærslu-
12
áfjáð þau voru að tjá sig um þessi
efni. Þau sem spjallað var við
voru: Birgit Beck Jensen, 21 árs
nemi (B), Bjarni Jónsson, 19 ára
verkamaður (BJ), Bjarni Þor-
steinsson, 18 ára nemi (BÞ),
Emilía Sigurðardóttir, 19 ára
nemi (E), Hildur Einarsdóttir, 20
ára nemi (H), Kristján Arin-
skyldu, áður en gengið væri í
hjónaband. „Það eru alltof
margir sem kynna sér ekki þessa
löggjöf, fyrr en við slit hjúskap-
ar“. Hin voru þessu sammála, og
lögðu til, að úr því yrði bætt með
fræðslu um þessi mál, þegar á
grunnskólastigi, þannig að hún
næði til allra.
Við bárum þessu næst upp
spurninguna: „Hvað er hjúskap-
ur í þínum augum?“
Hildur svaraði að bragði: „Það
eru karl og kerling, sem sitja fyrir
bjarnar, 18 ára nemi (K), María
Haraldsdóttir, 19 ára fóstrunemi
(M), Sólveig Sveinsdóttir, 20 ára
verzlunarmaður (S), Unnur
Þorsteinsdóttir, 20 ára nemi (U)
og Þórunn Björgvinsdóttir, 19
ára húsmæðraskólanemi (Þ), en
þær Björg, Nína og Silja ræddu
við þau fyrir blaðsins hönd.
framan sjónvarpið og eiga börn,
sem eru aldrei heima“.
E., „Hjúskapur er stofnun, sem
er viðurkenndur staður til mann-
fjölgunar“.
K., „Það er ekki eingöngu
samfélagsleg stofnun, heldur ekki
síður samband tveggja einstakl-
inga, sem vilja fara gegnum súrt
og sætt saman“.
B.Þ., „Það er viss liður í upp-
byggingu fjölskyldunnar, en barn
er í sjálfu sér enginn grundvöllur
fyrir hjónabandi“ — Hver er þá
hinn rétti grundvöllur?