19. júní


19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 16

19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 16
ingju og að eignast börn, en gleð- ina og hamingjuna fær maður ekki framrétta á bakka“. „Þar þarf að ríkja gagnkvæmur skiln- ingur fyrst og fremst, en fólk verður líka að hafa ánægju af félagsskap hvors annars og vinna saman eins og gera þarf í litlu samfélagi. Heimilið þarf að vera stór þáttur í lífi beggja þannig, að það sé þeim mikils virði að skapa eitthvað í sameiningu“. „Fólk verður að geta lynt saman og vera á sömu bylgjulengd". „Þó er allt í lagi, að fólk rífist, en á eftir verður það að ræða málin, svo að rifr- ildin endi ekki í hnút. Fólk þarf að beita gagnrýni og sjálfsgagn- rýni, það er góð leið“. „Hvað um börn og uppeldi þeirra“. K., „Ég vil endilega eignast börn og annast þau jafnt og móðir þeirra. Ég vildi alls ekki missa af því. Ég get vel hugsað mér að vera heima og sjá um börnin sjálfur, ef svo bæri undir“. Þ., „Að sjálfsögðu vil ég eignast börn, því að það er ekkert hjóna- band án þeirra, en ábyrgðin á þeim á skilyrðislaust að vera al- veg jöfn. Foreldrarnir þurfa að annast börn sín báðir og eyða tíma með þeim“. E., „Ef börnin eru velkomin er ábyrgðin jöfn siðferðilega og þá myndum við sjálfkrafa sinna þeim jafnt“. B., „Ég held, að samband, sem byggir á náinni og átakalausri samvinnu milli karls og konu leiði til ákjósanlegs barnauppeldis“. BÞ., „Karlmenn eru alveg eins til þess fallnir að ala upp börn. Móðirin tapar líka á því að vera alltaf með börnunum. Hún verð- ur svo hversdagsleg í augum þeirra“. „Hvernig er þá best komið verkefnaskiptingu milli hjóna?“ E., „Hjón þurfa ekki endilega að standa jafnfætis á öllum svið- um, heldur eiga þau að bæta hvort annað upp. Eg kysi helst þannig líf, að við gætum bæði 14 unnið að heiman hálfan daginn og skipst á um börnin og heimil- ið“. BJ., „Fullt jafnrétti er tví- mælalaust það æskilegasta, jafnt utan heimilis sem innan, en það á langt í land við núverandi að- stæður“. H., „Konan á að vinna úti eins og bóndinn til að koðna ekki nið- ur í heimilisstörfum. Auk þess má líka alveg snúa þessu gamla mynstri við t.d., ef konan hefur betur launað starf og karlmaður- inn hefur ekkert á móti því að vera heima“. U., ,Já, það á ekki að ráðast af kyni eingöngu, hvort hjóna er heima með börnin“. K., „Verkaskiptingin má bara aldrei verða of rígskorðuð á hvorn veginn sem er, og ég hef ekkert á móti því að breyta þessari kyn- skiptu verkaskiptingu, sem flestir okkar jafnaldrar hafa alist upp við“. H., „Það eru fáir karlar, sem treysta sér til að sjá um heimili“. Þ., „Strákar eru heldur ekki aldir upp við heimilisstörf. f hópi systkina vill það alltaf lenda á stelpunum að hjálpa til heima“. BÞ., „Mæður ættu að kenna sonum sínum jafnt og dætrum að annast heimili, því að það er misskilningur að eðli kynjanna sé eins frábrugðið og af er látið. Þetta er uppeldisatriði“. B J., „Það þarf fræðslu og aftur fræðslu til að breyta afstöðu karla til heimilisstarfa, en auk þess eru konur sjálfar kúgaðar. Þær hafa litla möguleika á að starfa úti vegna skorts á dagvistarrýni, en vinni þær utan heimilis, þurfa þær venjulega að gegna tvöföldu starfi og eru svo í lægst launuðu störfunum. Meinið er klárlega ríkjandi þjóðskipulag". H., „Þessi hefðbundnu kvennastörf eru m.a. illa launuð af þvi að konur hafa einfaldlega ekki þrek til að standa í kjara- baráttu, þegar þær hafa tvöfalt vinnuálag. Líka af því að þær velja sér yfirleitt styttra nám en karlar“. Þannig leggst margt á eitt að dómi þessa unga fólks og töldu sum, að erfitt gæti reynst að standa við jafnréttissjónarmið, þegar komið væri út í hjúskap eða sambúð. En til að slá örlítið á léttari strengi spurðum við næst: „Hvar býstu við að hitta til- vonandi maka þinn?“ Voru sum á því, að skólar og böll væru helstu staðirnir og fannst það nokkuð einhæfir möguleikar á að kynnast. „Skól- inn er svo sem ágætur til þess, en það getur líka verið varhugavert, ef maður fer að vera með ein- hverri í sínum bekk. Þá er maður með henni allan sólarhringinn, það getur orðið fullmikið af því góða“. Birgit sagðist ekki gera sér grillur um einhvern sérstakan stað, þar sem hinir útvöldu hefð- ust við. „Það er bara tilviljun, hvar maður hittir hinn rétta, því meiri því betra. Mér finnst að því meiri leyndardómur eða dulúð, sem er í sambandi við upphafið, því skemmtilegra. Hvers vegna get ég ekki skýrt“. Bjarni J. vonaði, að hann hitti sína tilvonandi ekki blindfullur á balli. „Það væri leiðinlegt, að minnast þess seinna meir. Best væri að hitta hana gegnum félagsstarf, á vinnustað eða í hópi kunningja“. „Ég er búin að hitta hann“, sagði Unnur. „Við hittumst fyrst í reyk og brennivíni, ætli það sé ekki svo um flesta?“ Þeim bar saman um, að vín væri mjög notað til að sigrast á fcimni við hitt kynið bæði á böll- um og í partíum. Bjarna Þ. þótti sú tilhugsun líka nokkuð hrell- andi, að maður lenti kannski í ævilöngu hjónabandi meö ein- hverri, sem fyrir einskæra tilvilj- un var á sama balli. Svo mikil- vægt val þyrfti helst að ske á hnitmiöaöri hátt, en enginn vissi um lykil að þeim vanda, „nema
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.