19. júní


19. júní - 19.06.1978, Side 17

19. júní - 19.06.1978, Side 17
fara eftir auglýsingum, ef allt annað bregst“ stakk ein upp á. „Hver á að hafa frumkvæði á samskiptum stráka og stelpna?“ Þau voru flest sammála um, að það tíðkaðist ekki, að stelpur hefðu frumkvæðið, en þó sýndist sitt hverjum. „Ef ég hitti náunga, sem mér líst vel á, hef ég ekki hið minnsta á móti því að reyna við hann. Ég sé ekki, að um annað sé að ræða, því að ég get ekki þolað að sitja og bíða eftir því, að hann komi auga á mig, sem hann gerir svo e.t.v. aldrei, ef ég hefst ekki að“. „Það væri æskilegt, að bæði hefðu jafnt frumkvæði, en þannig er það ekki í raun“. „Ég er oft beðin að hjálpa vinum mínum að krækja sér í stelpu, kanna jarð- veginn fyrir þá, svo að þeir eigi ekki á hættu, að hún segi nei. En vinkonur mínar biðja mig aldrei um slíka aðstoð. Maður getur líka alltaf náð sér í strák, ef maður vill“. „Ég myndi aldrei hringja sjálf í strák“. „Það á að vera al- gert jafnrétti í þessu, ég kann því alveg ljómandi vel, þegar stúlkur leita á mig“. „Strákar vilja ekki, að stelpur gangi á eftir þeim yfir- leitt, og þær fara þá ýmsar lævís- ar leiðir til að ná sínu fram. Maður er t.d. hálfragur við að bjóða upp strák, sem maður er hrifinn af, það væri skelfilegt, ef hann neitaði. Þetta stafar kannski af því, hversu réttur stelpna er nýtilkominn á þessu sviði; strák- arnir taka þessu bara eins og sjálfsögðum hlut“. „Nei, það er mesti misskilningur, strákum finnst það alveg hroðalegt sál- rænt áfall, þegar stelpur segja nei við þá“. „Það hefur verið prentað inn í mann, að stelpur eigi ekki að vera fyrri til og það er erfitt að brjótast út úr því“. í þessu sambandi var rætt nokkuð um samskipti kynjanna í víðara samhengi og fannst mörg- um, að þau væru ekki nógu eðli- leg. Skólinn héldi t.d. strákum og stelpum aðskildum í stelpu- og strákaröðum fram eftir öllum aldri og við ferminguna væri m,- a.s. skipt eftir kyni. Kynferðis- fræðslan væri líka öll á þennan veg, það lítil, sem hún væri. Stelpur væru jú fræddar um tíðir, en strákarnir ekki búnir undir það, að þeir fengju sáðlát. „Einn strákur hélt að farið væri að grafa i tippinu á sér, þegar hann fékk sáðlát í fyrsta skipti“. „Annar var kominn um tvítugt, og hafði ekki hugmynd um, að stelpur hefðu blæðingar mánaðarlega“. En auk þess spilaði líka inn í feimni, t.d. þegar slysabörn yrðu til vegna þess, að stelpan treystir stráknum og hvorugt þyrði að spyrja um getnaðarvarnir. í hópi stráka væri líka hörð krafa um að vera sá sterki, og einn strákanna játaði, að sér hefði þótt erfitt að vera með stelpu, sem var harðari af sér en hann, þannig að hann varð eins og minni máttar í samband- inu. Ein í hópnum hafði verið með strák, sem var veikari en hún sjálf að öllu leyti. „Mér fannst hreinlega óþægilegt að vera alltaf meiri máttar“. Að lokum langaði okkur að vita, hvernig þeim litist á að vera einhleyp allt lífið, ef svo færi, að engan ræki á fjörur þeirra. BÞ., „Ég get vel ímyndað mér sjálfan mig einhleypan, en þá yrði ég að vera í nánum tengslum við fjölda vina. Það er skelfileg tilhugsun að detta alveg út úr, eins og oft virðist gerast með ógift fólk“. BJ., „Það er kannski ekki svo vitlaust að vera einhleypur, en ég vil frekar búa með öðrum — hafa eitthvað að gefa og eitthvað að þíggja“- K., „Ég get ekki hugsað mér það líf ótilneyddur. Maður fær minna út r lífinu, fer á mis við allt og getur ekki eignast börn. Það væri hræðilegt“. Þ., „Ég myndi hiklaust eignast barn, já helst tvö, ef svo færi“. E., „Mér þætti það eigingirni að fara að eiga barn bara til að forðast einmanaleikann. En nauð- synlegt er að hafa eitthvað til að hugsa um, t.d. hund eða kött“. U., „Það þyrfti ekki að vera svo afleitt að búa einn, maður lærði að treysta eingöngu á sjálfan sig, en aftur á móti lærði maður ekki að gefa frá sér, yrði eigingjarnari og einangraður, af því að allir aðrir eru í sambúð. Ég held, að ég þyrfti að hafa óbeit á karlmönn- um af einhverjum orsökum til að ákveða að vera einhleyp alla ævi“. H., „Mér finnst sú tilhugsun fráhrindandi að standa uppi ein, þegar ég væri orðin gömul“. Þegar við kvöddum þessi hressu og hispurslausu ung- menni, virtist okkur að hið hefð- bundna fjölskylduform væri síður en svo á undanhaldi í náinni framtíð, þó svo að óvígð sambúð kynni að færast í vöxt. Mörg þeirra höfðu á orði, að svona um- ræður væru hollar og vektu þau sjálf til umhugsunar um þá framtíð, sem bíður þeirra flestra á næsta leiti. J.M.G. framh. af bls. I 1 hjónabandið af mikilli þolinmæði, kærleika, bjartsýni og í trú á Guð. Er ekki ástæða til að kenna hjónabandsrækt? Næst síðasta setning: Ég vona innilega að brátt verði hjón jafnt metin í hjónabandi svo bæði geti sótt þangaö hvatningu til starfa innan heimilis og utan eftir því sem hver hjón kjósa. Ég endurtek: Eftir því sem hver hjón kjósa. Að lokum: Mér hefur ævinlega fundizt hjón, og nú fólk í sambúð, njóta félagslegrar virðingar fram yfir ógift fólk, sem ekki býr í sambýli. Ég er á móti því. Kæri lesandi, þakka þér lesturinn. Fyrirgefðu sím- skeytastílinn. Auöur Eir Vilhjálmsdóttir. Strasbourg í apríl 1978. 15

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.