19. júní


19. júní - 19.06.1978, Síða 29

19. júní - 19.06.1978, Síða 29
eftir börnunum. Ég held að hann ætlist til að ég geri það sama, samt geri ég það ekki. Honum finnst sjálfsagt að sinna hinu og þessu utan vinnu og heimilis, mér finnst það ekki. Mér finnst ég þurfa samþykki hans til þess að fara af bæ af því að við gegnum ólíkum hlutverkum við fram- færslu fjölskyldunnar, það er frekar mitt hlutverk að annast börnin. Samt finnst mér vera jafnræði með okkur. Mér líkaði vel það líf sem ég lifði áður en ég gifti mig og lang- aði ekki að lifa því öðruvísi, auð- vitað fórnar maður hluta af sjálf- um sér við giftingu. Ég er mikil félagsvera, fólk er mér nauðsyn- legt, sem betur fer er hann þannig líka, svo ég finn ekki mikið fyrir húsmóðurlegri einangrun. Við tökum jafnt ákvarðanir um bú- skaparhætti og flest sem lýtur að okkur sameiginlega, þó ráðast frístundir okkar af vinnu hans, við höfum í átta ára hjónabandi aldrei tekið lengra frí en 4—5 daga í einu og aldrei farið neitt tvö saman. Barnauppeldið er sameiginlegt, samt getur orðið ó- samlyndi í þeim efnum. Hann er strangari og harðari, ég er und- anlátssamari og tek mjög nærri mér ef ég þarf að beita þau hörku. Við kunnum hvorugt að bregðast við börnunum, þau fæddust þrjú á fjórum árum, við vorum ólík og höfðum aldrei rætt þessa hluti svoleiðis. Ég held við berum jafna fjár- hagslega ábyrgð. Samt sé ég ekki um reikninga og mitt kaup legg ég inn á hans reikning, yfirleitt þarf ég að spyrja hann hver fjár- hagsstaðan sé. Við eigum gott með að láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Ég þjóna heimil- inu og sé um daglega hirðingu. Ég þarf stundum að brýna fyrir honum að mín vinna fyrir utan heimilisstörfin sé jafnmikilvæg og hans, ég ræð sjálf vinnutíma mínum. Mér dettur í hug, aldrei gæti ég setið inni í stofu og beðið eftir að maturinn væri settur fyrir mig, t.d. um helgar þegar bæði eiga jafnan rétt á hvíld. Hvort ég er á réttri hillu, hvað er það? Það er til fullt af öðrum störfum sem maður myndi heldur kjósa sér en vera húsmóðir. Það hlýtur að vera ólíkt skemmtilegra að vera t.d. blaðamaður eða bókavörður, það eru skemmti- legri viðfangsefni en uppþvottur og skúringar. Kannski þegar maður er orðinn rúmlega þrítug- ur vantar mann kjarkinn til þess að fara aftur út í atvinnulífið. Maður vantreystir sjálfum sér meira með hverju árinu, hefur ekki trú á sér. En ég held að hjónabandið henti mér vel. Auð- vitað skapast þær aðstæður hjá manni að það verður ósjálfrátt hemill, ekki beint sjálfur hjú- skapurinn, heldur það sem hon- um oftast fylgir: börnin. Það gengur það sama yfir okkur bæði, við þurfum bæði að láta á móti okkur. Ekki síður hann en ég, t.d. hvað varðar frekari menntun. Ég held ég hafi aldrei hugleitt skilnað í alvöru, rifrildi verða út af ómerkilegum smáatriðum, held ég. S. H. Hjónabandið jafnt í þágu beggja aðila Feður ættu að fá meiri rétt yfir börnum sínum. Það er óréttlátt að stelpa, sem á barn getur gefið það eða látið annan ættleiða það, án þess að rétti pabbinn fái nokkru ráðið. Hann má þá ekki einu sinni taka það frekar í fóstur sjálfur. Við hittum 19 ára pilt, sem býr í sveit: Af hverju giftist fólk? Yfirleitt vegna tilfinninga, en stundum af því að barn er á leið- inni. Annars er allt til. Ég þekki eitt dæmi þess að strákur giftist stelpu, mest af þvi að hún átti ríkan pabba. Finnst þér hjónabandið aðlað- andi tilhugsun? Já, þegar það hentar mér. Ég tel hjónabandið jafnt í þágu beggja aðila og maður þarf ekki endilega að gifta sig þótt maður búi með stelpu. En það er hefð að giftast og einfaldar margt, af því að það fellur inn í kerfið. Gift- ingin veitir öryggi, þá getur hvorugt stungið af i livelli. Ann- ars hef ég lítið spáð í þetta, það kemur bara af sjálfu sér — seinna. Mér finnst fólk eiga að vinna saman og skiptast á um heimilis- störf. Að annar aðilinn fari alltaf sínu fram er óheppilegt. 27

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.