19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 34

19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 34
Hafðirðu einhverjar sérstakar hugmyndir um hjónabandið, þegar þú giftist í fyrsta sinn? „Nei, mér fannst það fyrst og fremst öryggi að giftast góðum og traustum manni, sem naut álits í starfi og var vel liðinn. Auk þess leit ég upp til hans og þótti vænt um hann og var alveg viss um, að ástin og meiri hrifning myndu aukast við nánari kynningu og sambúð. Maðurinn hafði allt til þess að bera í mínum augum, sem einn eiginmann mátti prýða. En því miður snerust hlutirnir ekki í þá átt, sem ég hafði vonað, hvernig sem ég reyndi. Við vor- um barnlaus og því fór sem fór, e.t.v. fyrr en ella. Eg varð ást- fangin af öðrum manni. Foreldr- ar mínir voru mjög á móti að við skildum, sem var ósköp eðlilegt. Eg var að fara úr algjöru öryggi út í eitthvað nýtt, með ástina eina að leiðarljósi.“ Hvað vantaði á, að hjóna- bandið varð ekki eins og þú hafðir gert þér í hugarlund? „Eg álít kynlífið mjög mikil- vægan þátt í samlífi hjóna, en við náðum ekki saman, hvað það snerti. Mín mistök frá upphafi voru þau að halda að væntum- þykja, öryggi og allt það, sem ég gat um áðan, nægðu til að byggja allt annað upp. En því miður. Og þessi mistök eru án efa aðalorsök þess, að við skildum. Eg vil taka það skýrt fram, að okkur kom 32 alltaf vel saman, vorum góðir vinir, svo að ekki var ósamlyndi til að dreifa. Og við skildum í mesta bróðerni. Þetta hjónaband stóð í 3 ár. Og fljótlega gifti ég mig í annað sinn.“ Varð mikil breyting á lífi þínu? ,Já, óneitanlega. í fyrsta lagi var ég hrifin af manninum, í öðru lagi tók ég meiri þátt í hans áhugamálum, á allt annan hátt en með þeim fyrri. Og svo var ég hamingjusöm og leið vel. Hvað öryggi snerti mætti e.t.v. segja, að það var á annan hátt. T.d. bjuggum við í leiguhúsnæði, en áður bjó ég í eigin húsnæði. Einnig peningalega hafði ég minna úr að spila, en við höfðum nóg, enda tel ég peninga ekki skipta öllu máli. Fyrir mig var það ekki aðalatriðið. Við vorum hamingjusöm, áttum von á barni, sem við þráðum bæði, eða er þetta ekki að vera hamingju- samur? Það fannst mér. Þú álítur kynlífið mjög mikil- vægan þátt í hjónabandi. Nú skilst manni, að þetta atriði ein- göngu haldi saman sumum hjónaböndum, þrátt fyrir að gagnkvæma hrifningu vanti. Hvert er þitt álit? „Frá minum bæjardyrum séð tel ég, að kynlífið eitt, án gagn- kvæmrar hrifningar og andlegs sambands milli maka (auk góðs félagsskapar), haldi engu hjóna- bandi saman til lengdar. Til við- miðunar t.d. mitt fyrsta hjóna- band; góður félagsskapur og öryggi, lítil hrifning og mis- heppnað kynlíf, það stenzt heldur ekki til lengdar. Annað hjónaband mitt rann ekki út í sandinn, eins og þú kannske heldur. Maðurinn minn veiktist skyndilega og ég missti hann eftir allt of stutta sambúð. Þú upplifðir sem sagt mikla hamingju. Trúðirðu á hamingj- una, þegar þú giftist í þriðja sinn? „Nei, það gerðist ekki fyrir trú á hamingjuna. Satt að segja get ég ekki útskýrt, hvers vegna ég gerði þau mistök. Þetta er eitt af því, sem mér er ógjörningur að útskýra, því að ég skil það ekki sjálf. Held helzt, að ég hafi verið að leita þess, sem ég missti nokkrum árum áður, þótt ég vissi innst inni, að það yrði aldrei eins. Líklegast var ég hrædd við að vera ein með barn, e.t.v. að leita aftur að öryggi. Sannast bezt að segja eru þetta, þegar ég lít til baka, stærstu mistök mín í lífinu. Eg varð auðvitað að sjá fyrir mér og drengnum, eftir að ég varð ekkja, og kom ég honum fyrir á barnaheimili. Nokkrum árum seinna hitti ég svo þennan mann. Éghafði þekkt hann lítillega áður fyrr, vissi eitt og annað um hans lífsferil. Hann var fráskilinn, mikið fyrir vín og mjög skapmik- ill. Hann var ákaflega myndar- legur maður og gat verið mjög skemmtilegur. Við fórum út saman og ekki leið löng stund, þar til við gengum í það heilaga. I rauninni mælti allt á móti því, að ég giftist þessum manni, en ég leiddi það algjörlega hjá mér. Þetta gekk bara þokkalega í fyrstu. Hann gat verið blíður og tillitssamur, og kynlífið var í mjög góðu lagi. En því miður breyttist þetta fljótlega til hins verra, þegar fyrsta hjúskaparstemning- in var liðin hjá. Hann var mjög eigingjarn og afbrýðisamur, sem hann hafði alls enga ástæðu til. Og þegar svo var komið, að von var á barsmíð í tíma og ótíma svo að stórsá á manni, hvort sem maðurinn var drukkinn eða ódrukkinn, þá kulnaði fljótt i kolunum, og þar nægði ekki gott kynlíf til að lífga við i þeim. 1 lokin mátti ég vart til þess hugsa, að maðurinn snerti mig. Eg vil láta það koma fram, að hann var ávallt góður við dreng- inn, en barnið var orðið ákaflega hvekkt, og ég vissi, mér bar að forða okkur báðum frá meiri raunum til að halda sönsum. Þótt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.