19. júní


19. júní - 19.06.1978, Side 36

19. júní - 19.06.1978, Side 36
Verka- skiptingin breyttist á kvennaárinu Fjörutíu og sjö ára: Verkaskipt- ingin á heimilinu hefur verið með ýmsu móti, þótt ábyrgð á heimil- isstörfunum hafi alltaf verið hjá mér einni. Eg féll því miður í þá gryfju að láta aðallega dæturnar hjálpa til, en karlmennirnir sluppu við slíkt að mestu. Þó hef- ur þetta breyst talsvert síðustu árin, ekki síst fyrir tilstilli kvennaársins. Áður fyrr hjálpaði maðurinn mér með því að vaska upp sjálfur. Núna sér hann um þá hlið málsins, án þess að telja það sérstaklega hjálp við mig, og ræður þá lika hvernig það verk skiptist á milli hins heimilisfólks- ins. Hjónaband okkar hefur að miklu leyti snúist um börnin og uppeldi þeirra. Ekki er þó svo að skilja, að það hafi verið ætlunin í upphafi, því að ég notaði allar getnaðarvarnir, sem tiltækar voru þá, svo sem hettu, froðu og stikkpillur, en allt kom fyrir ekki. Ég var orðin svo örþreytt á þessu, þegar fimmta barnið fæddist, og hið elsta var aðeins sjö ára, að ég fór fram á ófrjósemisaðgerð, en því var synjað að sjálfsögðu, þar sem ég var hvorki likamlega né andlega vanheil. J. G. /okiid* H&ftur oerx b«.tnni fowJuöru. (Pf kowmurécK wr>/ut). Umhverfið leit á mig sem dömuna hans i Einkamál H.jálp! Oska eftiryart kynnast manni á þritugs afdri sem á bíl.ioy; ' jbúð °g getur aðstoðað mig. við að komast á rétta hillu. Farið verður með þetta sem algjört trúnaðar- mál. Tilboð sendist. Nú ert þú stúlka nálægt þrí- tugu sem býrð ein. Auglýsir þú svona? Sjálfsagt finndist samfélaginu ekkert sjálfsagðara en ég auglýsti svona í blöðunum, því það er litið á það sem óeðlilegt ástand að kona sé ekki gift á mínum aldri. Fæstir líta svo á, að ástandið sé afleiðing frjáls vals, heldur að konan sé fyrir einhverra hluta sakir ekki hæf á hjónabands- markaðinn, sem sagt gallað ein- tak. Er húsmóðurhlutverkið ekki hluti af sjálfsímynd þinni? Ég hef ætíð séð sjálfa mig fyrst og fremst, sem einstakling, en ekki sem eiginkonu eða húsmóð- ur. Ég hef alltaf efast um yfir- burði karla gagnvart konum, en hitti sjaldan karla sem eru sama sinnis, ekki bara í orði heldur einnig á borði. Þú hefur verið í dæmigerðri sambúð. Hvað féll þér ekki í henni? I raun féll ég í skuggann af honum og fannst hann og um- hverfið líta á mig sem dömuna hans. Eg tók upp daglega um- gengni við fólk í hans vina- og kunningjahópi en samband mitt við mina vini minnkaði. Hvað húshaldið varðaði, krafðist sam- viska mín þess að ég eyddi meiri tima í það en ég hefði látið mér nægja sjálf sem einbúi. Þér líka þá ekki hússtörf? Ég hef aldrei heillast af „þjón- ustuhlutverkinu“, sem felur í sér uppþvott, matseld, innkaup o.s.- frv. Ég vil að aðstæður mínar séu þannig að þessi störf taki sem allra minnst af tíma mínum. Og hvað gerir þú þá við tím- ann? Ég hef mörg áhugamál og þeim hef ég alla tíð sinnt í ein- rúmi og ákveðið sjálf, hvernig mínum tíma er ráðstafað. Ég á því erfitt með að þurfa ætíð að taka allar ákvarðanir um lifnað- arhætti mína með tilliti til þess hvað hentar einhverri annarri persónu. Hvað með einmanaleik? Ég á fjölda vina og kunningja og einmanaleiki hræðir mig ekki. Ég get ekki séð, að það að búa í kjarnafjölskyldu, sé örugg trygg- ing gegn einmanaleik. Langar þig ekki til að eignast börn? Aðstæðurnar í þjóðfélaginu í dag virka ekki hvetjandi á mig til að fjölga Islendingum, það þarf ekki annað en líta á dagvistunar- málin. Þar fyrir utan finnst mér börnum enginn greiði gerður að fæða þau i þennan heim. S. S. 34

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.