19. júní


19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 42

19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 42
Svala: Hið hefðbundna þjón- ustuhlutverk kvenna á heimilum gerir það þó að verkum að þær eru bundnar því allan sólar- hringinn, en karlar eiga yfirleitt meiri frítíma útaf fyrir sig. Margar stúlkur álíta að þær verði að velja á milli þess að, taka sig alvarlega sem myndlistarkonur og fjölskyldulífs, þar sem svo erf- itt virðist að samræma þetta. Sigrún: Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að konur láti ekkert aftra sér frá því að sækja sér menntun og reynslu til annarra landa. Það er kannski einmitt þarna, sem hundurinn liggur grafinn, að konur kasti sér ekki eins út í framhaldsnám erlendis og nái þess vegna ekki eins langt og karlar, eða séu vanmetnar af þeim sökum. Svala: Það virðist vera auð- veldara fyrir karla en konur með fjölskyldu að sækja framhalds- menntun til annarra landa. Konur í þeirri aðstöðu þurfa að vera mjög ákveðnar og hafa tölu- vert magn af ævintýramennsku til að fara út í slíkt. Guðrún: Já, það er rétt. Svala: Undanfarna áratugi hafa hópar myndlistafólks haft sig mikið í frammi, September— hópurinn og Súmarar svo dæmi séu tekin. I hópunum hafa kon- urnar aðeins verið örlítið brot af heildinni. Þar sem konur eiga við mörg sameiginleg vandamál að stríða, væri ekki eðlilegt að þær ynnu í samvinnu-hópum? Sigrún: Mér finnst ekki jákvætt að konur einangri sig í kvenna- hópum. Það er nógu slæmur andi milli hinna ýmsu hópa myndlist- arfólks þótt svo krítískur hópur sem kvennahópur bætist ekki við. Jónína: Það á nú ekki að skipta máli hvernig fólk skipar sér í hópa um sameiginlegt áhugamál. Mér finnst að konur eigi að standa saman á fleiri sviðum en við uppvask og kökubakstur. Svala: Hvernig eiga konur að 40 Jónína Einarsdóttir fara að því að bæta stöðu sina frá því sem nú er? Ingunn: Konur verða að skapa sér tækifæri til framhaldsnáms. Þær verða að knýja sjálfar sig áfram, og meðan myndlistarfólk er að komast yfir erfiðasta hjall- ann að námi loknu ættu skóla- félagar að stofna hópa og örva hverja aðra í þeim. Jónína: Já, konur verða að taka málin fastari tökum. Þær verða að gera upp við sig hvað það er sem þær í rauninni vilja og reyna síðan að róa að því marki öllum árum. „Leikföng" '76 Sigrún: Við verðum að horfa framan i heiminn og láta ekki undan fordómum og beygluðu almenningsáliti. Umfram allt, ekki fela okkur á bak við alls konar afsakanir því við erum sterkar! Guðrún: Við bætum stöðu okkar með því að trúa á getu okkar og nota hvert tækifæri sem gefst til náms og starfs. Við verðum að vinna stöðugt að því sem okkur finnst mikilvægast og með því hjálpum við einnig næstu kyn- slóð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.