19. júní


19. júní - 19.06.1978, Side 46

19. júní - 19.06.1978, Side 46
misjafnt hvað prestar taka þessar sáttaumleitanir alvarlega. Sumir leggja hart að sér til þess að reyna að tala á milli hjónanna, en aðrir afgreiða þessi mál á fljótlegri hátt, enda verður að segja það eins og er, að í mörgum tilfellum eru sáttaumleitanir gjörsamlega gagnslausar, þegar hjón koma til prests og segja: „við erum ákveð- in í að skilja og það þýðir ekkert að reyna að breyta því“. Ég álít, að persóna prestsins geti haft mikil áhrif að þessu leyti, ef hjón fara til reynds prests, sem kannske hefur þekkt fjölskylduna um langt árabil, þá tel ég, að hann hafi miklu betri möguleika á að koma á sáttum milli hjóna heldur en yngri prestur. Það segir sig raunar sjálft, að ungur og ó- reyndur prestur er ekki í góðri aðstöðu til þess að tala á milli roskinna hjóna. í lögunum um stofnun og slit hjúskapar segir, að ákveða megi, að könnun á mál- efnum hjóna og sáttatilraun í stofnun um fjölskylduráðgjöf geti komið í stað þeirra sátta, sem nú eru í gildi og er ekki nema gott eitt um það að segja, ef slíkri stofnun yrði komið á fót. En ég er þeirrar skoðunar, að það sé fyrir- komulag, sem er nú, þ.e.a.s. að prestur leiti sátta, sé oft árang- ursríkt. Telur þú hugsanlegt, að skiln- uðum myndi fækka, ef fyrir hendi væru á e-u stigi í þjóðfél- aginu (t.d. í skólum) fræðsla um málefni fjölskyldna, réttindi og skyldur hjóna í hjúskap og/eða við slit hans. Er slík fræðsla að e-u marki að þínu mati æskileg? Ef já, hver ætti þá að annast hana? Já, vissulega álít ég, að slík fræðsla sé bráðnauðsynleg og hlyti að bera góðan árangur. Er það ekki í rauninni fáránlegt, að nú á dögum, þegar fólk stundar skólanám í ár og áratugi og sækir námskeið í ólíklegustu greinum, að þá skuli það álitið ónauðsyn- legt að búa sig undir það, sem flestum er það mikilvægasta í líf- inu, ævilöng sambúð í hjóna- bandi og uppeldi barna. Sjálfsagt væri að hafa þessa fræðslu í grunnskólanum, en ég held nú samt að við verðum að byrja heima, við verðum að byrja á sjálfum okkur og börnum okkar. Innræta sonum okkar að heimil- isstörf séu ekki lítilmótleg heldur þvert á móti, og að börn, barna- uppeldi og hússtörf séu jafnt þeirra ábyrgð sem maka þeirra. Að láta þá taka þátt í heimilis- störfunum strax í bernsku, eftir því sem geta þeirra leyfir. Á sama hátt tel ég, að hugsanaháttur for- eldra gagnvart dætrum sínum þurfi að breytast. Við þurfum að gera þeim ljóst, að eins og íslenskt þjóðfélag er í dag verði þær að axla byrðar og ábyrgð til jafns við karlmenn, en geti ekki lengur vænst þess að sitja inni á heimil- unum allt sitt líf og láta rétta sér allt upp í hendurnar. Við þurfum að brýna fyrir þeim, að afla sér þeirrar þekkingar og menntunar sem gerir þeim kleift að standa ^ fjárhagslega og félagslega á eigin fótum. Nú hefur þú sem lögmaður aðstoðað fólk, sem stendur í skilnaði, hver er afstaða þín til hjúskapar, sem sambýlisforms? Er e-u hægt að breyta? * Eins og okkar lögum er skipað í dag er hjónaband æskilegasta sambýlisformið. Það er ákaflega gremjulegt að hugsa til þess, að margar konur eru búnar að vera í sambúð í mörg ár, og jafnvel áratugi og hafa bæði með vinnu á heimili og jafnvel utan þess, lagt sitt af mörkum til að byggja upp eignir búsins. Síðan slitnar upp úr sambúðinni og eftir standa þessar konur slyppar og snauðar með kröfur til ráðskonulauna nokkur ár aftur í tímann, sem eina réttarúrræðið. í mörg ár hefur verið rætt um breytingar vegna þess hve sam- býlisformið er algengt hérlendis, en meðan það ekki hefur orðið, þykir mér brýn ástæða til að hvetja þessar konur til að ganga tryggilega frá sínum málum. Þótt sambúðin gangi vel í dag veit enginn hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Þegar löggjafinn veitir sam- býlisfólki sama rétt og giftu, sýn- ist mér að sambúðarformið sem slíkt geti verið alveg jafn æskilegt og hjónaband, þótt ég persónu- lega sjái hins vegar ekki hvaða kosti sambúð ætti að hafa fram yfir hjónaband. I.R. Eftirtaldir aðilar hafa styrkt útgáfu blaðsins Lögmenn Garðastræti 16, sími 29411 Hárgreiðslustofan Venus, Garðastræti 11, sími 21777 Edda h.f., Sundaborg 11 — 13, sími 86166 Ábyrgð h.f., tryggingarfélag bindindismanna, Skúlagötu 63, sími 26122 Bananar h.f., Elliöaárvegi 10, sími 81674 Hverfitónar, Aðalstræti 9, Reykjavík 44

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.