19. júní - 19.06.1978, Page 46
misjafnt hvað prestar taka þessar
sáttaumleitanir alvarlega. Sumir
leggja hart að sér til þess að reyna
að tala á milli hjónanna, en aðrir
afgreiða þessi mál á fljótlegri
hátt, enda verður að segja það
eins og er, að í mörgum tilfellum
eru sáttaumleitanir gjörsamlega
gagnslausar, þegar hjón koma til
prests og segja: „við erum ákveð-
in í að skilja og það þýðir ekkert
að reyna að breyta því“. Ég álít,
að persóna prestsins geti haft
mikil áhrif að þessu leyti, ef hjón
fara til reynds prests, sem
kannske hefur þekkt fjölskylduna
um langt árabil, þá tel ég, að
hann hafi miklu betri möguleika
á að koma á sáttum milli hjóna
heldur en yngri prestur. Það segir
sig raunar sjálft, að ungur og ó-
reyndur prestur er ekki í góðri
aðstöðu til þess að tala á milli
roskinna hjóna. í lögunum um
stofnun og slit hjúskapar segir, að
ákveða megi, að könnun á mál-
efnum hjóna og sáttatilraun í
stofnun um fjölskylduráðgjöf geti
komið í stað þeirra sátta, sem nú
eru í gildi og er ekki nema gott
eitt um það að segja, ef slíkri
stofnun yrði komið á fót. En ég er
þeirrar skoðunar, að það sé fyrir-
komulag, sem er nú, þ.e.a.s. að
prestur leiti sátta, sé oft árang-
ursríkt.
Telur þú hugsanlegt, að skiln-
uðum myndi fækka, ef fyrir
hendi væru á e-u stigi í þjóðfél-
aginu (t.d. í skólum) fræðsla um
málefni fjölskyldna, réttindi og
skyldur hjóna í hjúskap og/eða
við slit hans. Er slík fræðsla að
e-u marki að þínu mati æskileg?
Ef já, hver ætti þá að annast
hana?
Já, vissulega álít ég, að slík
fræðsla sé bráðnauðsynleg og
hlyti að bera góðan árangur. Er
það ekki í rauninni fáránlegt, að
nú á dögum, þegar fólk stundar
skólanám í ár og áratugi og sækir
námskeið í ólíklegustu greinum,
að þá skuli það álitið ónauðsyn-
legt að búa sig undir það, sem
flestum er það mikilvægasta í líf-
inu, ævilöng sambúð í hjóna-
bandi og uppeldi barna. Sjálfsagt
væri að hafa þessa fræðslu í
grunnskólanum, en ég held nú
samt að við verðum að byrja
heima, við verðum að byrja á
sjálfum okkur og börnum okkar.
Innræta sonum okkar að heimil-
isstörf séu ekki lítilmótleg heldur
þvert á móti, og að börn, barna-
uppeldi og hússtörf séu jafnt
þeirra ábyrgð sem maka þeirra.
Að láta þá taka þátt í heimilis-
störfunum strax í bernsku, eftir
því sem geta þeirra leyfir. Á sama
hátt tel ég, að hugsanaháttur for-
eldra gagnvart dætrum sínum
þurfi að breytast. Við þurfum að
gera þeim ljóst, að eins og íslenskt
þjóðfélag er í dag verði þær að
axla byrðar og ábyrgð til jafns við
karlmenn, en geti ekki lengur
vænst þess að sitja inni á heimil-
unum allt sitt líf og láta rétta sér
allt upp í hendurnar. Við þurfum
að brýna fyrir þeim, að afla sér
þeirrar þekkingar og menntunar
sem gerir þeim kleift að standa ^
fjárhagslega og félagslega á eigin
fótum.
Nú hefur þú sem lögmaður
aðstoðað fólk, sem stendur í
skilnaði, hver er afstaða þín til
hjúskapar, sem sambýlisforms?
Er e-u hægt að breyta? *
Eins og okkar lögum er skipað í
dag er hjónaband æskilegasta
sambýlisformið. Það er ákaflega
gremjulegt að hugsa til þess, að
margar konur eru búnar að vera í
sambúð í mörg ár, og jafnvel
áratugi og hafa bæði með vinnu á
heimili og jafnvel utan þess, lagt
sitt af mörkum til að byggja upp
eignir búsins. Síðan slitnar upp
úr sambúðinni og eftir standa
þessar konur slyppar og snauðar
með kröfur til ráðskonulauna
nokkur ár aftur í tímann, sem
eina réttarúrræðið.
í mörg ár hefur verið rætt um
breytingar vegna þess hve sam-
býlisformið er algengt hérlendis,
en meðan það ekki hefur orðið,
þykir mér brýn ástæða til að
hvetja þessar konur til að ganga
tryggilega frá sínum málum. Þótt
sambúðin gangi vel í dag veit
enginn hvað morgundagurinn
ber í skauti sér.
Þegar löggjafinn veitir sam-
býlisfólki sama rétt og giftu, sýn-
ist mér að sambúðarformið sem
slíkt geti verið alveg jafn æskilegt
og hjónaband, þótt ég persónu-
lega sjái hins vegar ekki hvaða
kosti sambúð ætti að hafa fram
yfir hjónaband. I.R.
Eftirtaldir aðilar hafa
styrkt útgáfu blaðsins
Lögmenn Garðastræti 16, sími 29411
Hárgreiðslustofan Venus, Garðastræti 11, sími 21777
Edda h.f., Sundaborg 11 — 13, sími 86166
Ábyrgð h.f., tryggingarfélag bindindismanna,
Skúlagötu 63, sími 26122
Bananar h.f., Elliöaárvegi 10, sími 81674
Hverfitónar, Aðalstræti 9, Reykjavík
44