19. júní


19. júní - 19.06.1978, Page 47

19. júní - 19.06.1978, Page 47
veir heima r í þessari grein drepur INGA HULD HÁKONAR- DÓTTIR, sagnfræðinemi, á nokkur atriði í þeirri hugmyndafræði, sem mótað hefur viðhorf fólks, allt fram á okkar daga, til verkaskiptingar karla og kvenna. FRIÐRIKA GEIRSDÓTTIR, teiknari, lítur efnið sínum augum. „Þessi skal vera hold af mínu holdi og bein af mínum beinum“ sagði Adam um Evu. Og í sam- félagi okkar er út frá þvi gengið að hjón séu eins og sambrædd sál í elsku og kærleika. En í raun lifa konur og karlar hvort í sínum heimi, þó að þau sofi saman hverja nótt og borði saman alla daga. Karlmaðurinn lifir og hrærist í ísköldum heimi markaðslögmála, hún í hlýjum heimi tilfinninga. Hans heimur er opinber og sýnilegur. Hennar er leyndur og ósýnilegur. Hann hugsar með höfðinu, hún með hjartanu. Ef öllum börnum í Reykjavík yrði allt í einu sleppt lausum út á göturnar mundi skapast þar al- gjört öngþveiti. Borgin er ekki byggð út frá þörfum þeirra. Og ekki er gott að draslast með lítil börn niðri í bæ. Þau eru illa séð á búðum, skrifstofum og kaffihús- um. Það er alls ekki gert ráð fyrir að þau séu á ferðinni. Fyrir bila eru vegir og stæði þar sem full- orðnir karlmenn snudda á kaupi. En hvar er hús eða jafnvel garður, þar sem hægt er að skilja börn eftir í góðum höndum í miðbæn- um litla stund? Ef arkitektar, sem teikna borgir, væru skyldaðir til að draga með sér tvævetling hvert sem þeir færu í eina viku eða svo, þá mundu þær líta öðru vísi út. Okkar ytri heim hafa karl- menn hannað. Þeir gerðu tækni- byltinguna, skipulögðu ríkis- báknið, byggðu upp atvinnulífið. Heimur þeirra stjórnast af markaðslögmálum. Þar erhugsað í mínútum, krónum og afköstum. Allir byrja nákvæmlega klukkan eitthvað í vinnu, eða skóla. Hvert handtak karlmanns er greitt eftir starfsmati með föstum taxta eftir flóknum útreikningum. Allt sem gerist í þessum heimi er mjög mikilvægt, að sjálfsögðu, og fréttir þaðan fylla alla fjöl- miðla. En af heimi kvenna og barna segir fátt. Heimilin þar sem þau búa eru eins konar friðhelgir felustaðir. Þar ríkir öll önnur hrynjandi. Enginn hættir á vissri mínútu að vera móðir né eigin- kona. Og húsverk eru ekki metin sem vinna. Laun fyrir þau eru greidd á miðaldavísu í fæði og húsnæði og fötum. Sumar konur fá nýja eldhúsinnréttingu. En flestum þeirra finnst sér fulllaun- að, ef maður þeirra elskar þær sem sína hjartans útvöldu, virðir þær sem drottningu hjarta síns. Því konur meta og dæma sjálf- ar sig eftir því hvort öðru fólki þykir vænt um þær, hvern sess þær skipa í tilfinningalífi ann- arra. Meðan karlmenn hugsa í framkvæmdum, hverju þeir sjálf- ir fái áorkað, hversu mikilla tekna þeim lánist að afla. Konur standa á einhverju stigi, sem karlmenn hafa kvatt. Af hverju tóku þær ekki þátt í að skipuleggja okkar iðnvædda borgfélag? Því lærðu þær ekki að hugsa stærðfræðilega, af kaldri rökhyggju? Á Islandi flyst hægt og hægt inn borgmenning, sem á rætur á siðaskiptaskiptaöld og áhrif hennar bárust inn í íslenzkar sveitir, t. d. með Minni fræðum Lúthers. Þeirri menningu tengd- ust ákveðnar hugmyndir um fastan valdastiga á himni og jörðu. María mey og allir dýr- lingar, en margir þeirra voru 45

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.