19. júní


19. júní - 19.06.1978, Page 50

19. júní - 19.06.1978, Page 50
Sú spurning hlýtur að vakna hvort rétt sé og æskilegt að hvetja konur til þátttöku. Það tel ég hikiaust vera. Þarna geta kvennasamtök komið inn í myndina og gert margt þeim til hjálpar. Þau eiga að veita þeim þjálfun í félagsstörfum og virkja þær. Þau eiga að hjálpa konun- um til að öðlast sjálfstraust og byggja þær upp. Kvennasamtök- in hafa ákveðið gildi og mikil- vægt, en þau eiga ekki að nýta sína meðlimi svo til eingöngu í sambandi við kökubakstur og fleira slíkt. Þær raddir hafa heyrst að til þess að auka þátt kvenna í stjórnmálum og opinberu lífi beri að veita þeim ákveðinn forgang. Slíkt tel ég alveg fráleitt. Það myndi ef til vill flýta þróuninni, en það myndi ekki gera breyting- una traustari. Á allra síðustu árum hafa orðið miklar breytingar á stöðu kvenna í þjóðfélaginu, breytingar sem munu leiða til hugarfarsbreyt- ingar. Veruleg þátttaka kvenna í stjórnmálum verður ekki fyrr en í kjölfar slíkrar hugarfarsbreyting- ar. — Konur eiga óhikað að sækja fram á vettvangi stjórnmálanna og þær verða að gera sér grein fyrir því að það er allt undir þeim sjálfum komið. Ef þær vilja þá geta þær það. En þær eiga fyrst og fremst að fara til starfa í stjórnmálum sem einstaklingar, en ekki sem fulltrúar kvenna. Hjóna- skilnaðir á íslandi Við Félagsfræðideild Háskóla Islands eru unnar margar merk- ar athuganir, sem alltof sjaldan 48 koma fyrir almenningssjónir. Eina þeirra vann Edda Níels, félagsfræðingur, árið 1976 til BA prófs. Hún gerði athugun á hjónaskilnuðum hér á landi, or- sökum þeirra og afleiðingum. Aðalefni ritgerðarinnar er könnun á efnahagslegri stöðu fólks fyrir og eftir skilnað. Hag- ræðis vegna tók hún eingöngu Reykvíkinga í athugun sina, og með samanburði við meðaltekjur borgarbúa á þessum tíma (1970) komst Edda að því að fólk sem skilur er flest úr láglaunastétt. Fólk úr þeirri stétt giftir sig líka fyrr en t.d. langskólafólk, og æskuhjónabönd eru ekki langlíf samkvæmt athugun Eddu. Það kemur fram, sem engan undrar, að fjárhagsleg staða frá- skilinna kvenna er mun bág- bornari en karla. Þó hafa þær börnin á sínu framfæri í lang- flestum tilvikum. 80% kvennanna eru í tveim lægstu launaþrepun- um eftir skilnað, en þar er aðeins 21% karlanna. Þarna veldur miklu lélegri starfsmenntun kvennanna, en karlar á sama báti virðast þó eiga mun betra með að vinna sig upp í vel launaðar stöður. Einnig kemur í ljós að fleiri karlar en konur sitja áfram í húsnæði hjónanna eftir skilnað, konurnar þá farnar burtu með börnin. Þetta hlýtur að valda mörgum konum erfiðleikum eins og ástandið er í leigumálum. Edda telur að við þessar að- stæður sé eina ráðið fyrir kon- urnar að gifta sig aftur, enda geri þær það óðfluga næstu árin eftir skilnaðinn. Það er ekki gert ráð fyrir því að einstæð móðir komist af, mæðralaun eru hlægilega lág, meðlag gerir ekki betur en greiða dagvistun barna á opinberum stofnunum, sem aftur eru fáar og erfitt að koma börnum þar að. Skóladagheimili eru ennþá færri, þannig að börn einstæðra mæðra — og auðvitað líka börn frá heimilum þar sem báðir foreldrar vinna úti — verða að ganga sjálfala frá 6 ára aldri nema greiðasemi einstaklinga komi til. I lokakafla ritgerðarinnar hvetur Edda fólk til að horfast í augu við þann veruleika að hjónaband er ekki lengur eini vettvangur kvenna. Þorri giftra kvenna vinnur utan heimilis enda er það þjóðfélagi okkar brýn nauðsyn. Þar að auki fer sífellt í vöxt að hjón skilji, og þá má ekki félagsleg aðstaða barnanna versna. Til að koma á móts við þessar breyttu aðstæður verður að auka alla samhjálp til muna, þjónustu við börn og foreldra og samneyslu. Það kikna of margir undir þeirri ábyrgð að ala börn upp við erfiðar aðstæður og lé- legan efnahag. Ef hjónaband á að blessast verður það að byggjast á jafnrétti. Bæði kyn verða að afla sér starfs- menntunar. Bæði verða að taka ábyrgð á heimili og börnum, vinna saman. Þá yrði fjölskyldan „hæfari til að fullnægja þeim til- finningaþörfum einstaklinganna, sem er æ erfiðara að fullnægja í sífellt ópersónulegri samskiptum einstaklinga innan samfélags, sem verður æ flóknara“ segir Edda í lok sinnar fróðlegu rit- gerðar. S. A.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.