19. júní


19. júní - 19.06.1978, Page 54

19. júní - 19.06.1978, Page 54
Samsköttun SKATTA Greinargerð K.R.F.Í. um skattalagafrumvarpið 1977 Tillögur KRFI Lög um tekjuskatt og eignarskatt nr. Viðhorfsbreyting — „Helmingaskiptareglan við skattlagningu hjóna sem boðuð er í frumvarpi því, sem nú liggur fyrir Alþingi (98. löggjþ.), og túlkuð hefur verið sem sérsköttun . .. er í raun sam- sköttun í nýju formi“. „Sú aðstaða tveggja einstaklinga, að tekjur annars hafi áhrif á skattlagningu hins, getur verkað ýmist hvetjandi eða letjandi á at- vinnuþátttöku þeirra“. Stjórn Kvenréttindafélags Islands og starfshópur félagsins um skattamál hefur í umræÖum sínum um skattlagningu einstaklinga og heimila ekki einskorðað sig við frumvarp það til laga um tekju- skatt og eignarskatt, er hún liggur fyrir Alþingi (98. löggjþ.). Leitast hefur verið við að finna markmið, er i samræmi við stefnu KRFl stuðli að jafnri stöðu karla og kvenna hér á landi. Á grundvelli umræðna á almennum fundum félagsins, ályktana landsþinga KRFl undanfarna áratugi og nú fjöl- margra funda stjórnar og starfshóps um skattamál, er stjórn KRFl einhuga um eftirfarandi atriði: 1. Stjórn KRFl er andvíg núverandi tilhögun hjóna, þ.e. algerri samskött- un með helmingsfrádrætti á launa- tekjum giftrar konu. 2. Stjórn KRFl hafnar þeirri tilhögun á skattlagningu hjóna, tekjuhelminga- skiptum, sem boðuð er í frumvarpi um tekjuskatt og eignarskatt, er nú liggur fyrir Alþingi. 3. Stjórn KRFl leggur til að tekin verði upp sérsköttun af séraflafé og komið á staðgreiðslu skatta. Miðað við núver- andi þjóðfélagsaðstæður telur stjórn- in óhjákvæmilegt að taka tillit til j)ess þjóðfélagshóps, sem nær eingöngu hefur byggt efnahagsafkomu sína á Kynferði fólks og hjúskaparstétt ræður ekki lengur hverjir eru skattþegnar. Hjón voru áður samsköttuð, en verða tveir sjálfstæðir skattaðilar og eiga NÚ hvort um sig að telja fram launa- tekjur sínar. ÞAÐ SEM ÁÐUR VAR NÁNAST ALGJÖRT FRÁVIK ER NÚ MEG- INREGLA. Greinargerð: Samsköttun hjóna á rætur að rekja til vinnutilhögunar, þar sem karlinn aflaði tekna, en konan starfaði eingöngu innan veggja heimilisins. Með breyttum þjóð- félagsháttum hefur staða heimilisins breyst frá því að vera bæði framleiðslu- eining og neyslueining, í það að vera eingöngu neyslueining, þ.e.a.s. afla verð- ur rekstrarfjár til að standa straum af aðkeyplum nauðsynjum. Samsköttun hef- ur valdið þvi að gift kona, jafnvel þótt hún hafi eigin tekjur, hefur orðið háð eiginmanni sínum. Skattalöggjöf hefur grundvallast á þjóðfélagsstöðu karlsins og gift kona nánast skoðast sem hluti eiginmannsins, en ekki sjálfstæður ein- staklingur. Á undanförnum árum og áratugum hefur markvisst verið unnið að því að lagalegt jafnrétti kynjanna verði að raunveruleika. Lög um réttindi og skyldur hjóna frá 1923 byggja á, að jafn- ræði sé með hjónum — skattalöggjöfin hefur hins vegar alla tíð verið andstæð |)eim grundvallarsjónarmiðum. Til á- réttingar má benda á, að í kennslubók í Framh. á bls. 54 vinnuframlagi á heimilum, en ekki launatekjum eða beinum arði af rekstri. Sem tímabilsbundið aðlögunar- atriði fyrir þennan hóp, álítur stjórn KRFl rétt að miða fyrst um sinn við hjúskaparstöðu, þegar skattar eru lagðir á hjón/sambúðarfólk og milli- færa ónýttan persónuafslátt. Per- sónuafsláttur verði hinn sami fyrir alla einstaklinga án tillits til hjú- skaparstöðu. 4. Stjórn KRFl leggur til að frumvarpið í núverandi mynd verði dregið til baka og fram fari heildarathugun á því, hvernig skattlagningu einstakl- inga og fjölskyldna verði best háttað, miðað við breyttar aðstæður í þjóð- félaginu. 5. Stjórn KRFl hefur kynnt sér umsögn þá um frumvarpið, er Félag einstæðra foreldra hefur sent fjárhags- og við- skiptanefnd neðri deildar Alþingis, og lýsir eindregnum stuðningi við þau sjónarmið, er þar koma fram. I meðfylgjandi greinargerð koma fram nokkur þeirra sjónarmiða, er leiddu til ofangreindrar niðurstöðu stjórnar KRFl. 52

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.