19. júní


19. júní - 19.06.1978, Side 56

19. júní - 19.06.1978, Side 56
Framh. af bls. 53 sifjarétti eftir Dr. Ármann Snævarr, hæstaréttardómara, og kennd er í laga- deild Háskóla Islands, segir svo: „Að lokum skal á það bent, að önnur lög hafa verið svifasein að taka upp grunnhugtök hjúskaparréttarlaganna eða draga álykt- anir af þeirri tilhögun, sem þar er mælt, sbr. t.d. skattalög, þar sem konan hefir lengstum verið skoðuð sem hálfgildings appendix við bóndann“. Þau sjónarmið, að jafnrétti karla og kvenna skuli vera samfélagslegt markmið, endurspeglast í yfirlýsingum Sameinuðu þjóðanna, stefnuskrám stjórnmálaflokka, sam- þykktum landsþinga launþegasamtaka og í lagasetningu á Alþingi. Að kynferði og hjúskaparstaða ráði hverjir séu skatt- þegnar, eins og núgildandi skattalög kveða á um, gengur augljóslega gegn framangreindum sjónarmiðum. Helmingaskiptaregla við skattlagn- ingu hjóna sem boðuð er i frumvarpi þvi, sem nú liggur fyrir Alþingi, og túlkuð hefur verið sem sérsköttun (m.a. vegna orðalags 5. gr. frv.), er í raun samsköttun í nýju formi. Hjónin skuli telja fram á sama framtalseyðublaði, sbr. 87. gr., og skiptir ekki máli þótt um sé að ræða tekjur af sératvinnu eða séreign. Álagða skatta á hjón skal birta i einu lagi í skattskrá og tilkynningar allar nægir að senda öðru hjóna, sbr. 97. gr. Hjón bera áfram óskipta ábyrgð á greiðslu skatta, sem á þau eru lagðir. Innheimtumaður ríkissjóðs getur gengið að hvoru þeirra um sig til greiðslu á sköttum beggja, sbr. 108. gr. frv. Sú aðstaða tveggja einstaklinga, að tekjur annars hafi áhrif á skattlagningu hins, getur verkað ýmist hvetjandi eða letjandi á atvinnuþátttöku þeirra. Skattalög skulu vera hlutlaus að þessu leyti og ber að rjúfa þá skattalegu ein- ingu, sem hjón hafa verið fram til þessa. I kafla, sem ber heitið „Meginstefnuatriði frumvarpsins“ kemur ótvirætt fram, að frv. feli í sér stýringu gagnvart vinnu- markaðinum, en þar segir svo í 2. tl.: „Almennt er þess að vænta, að hjón, þar sem eiginkonan starfar ekki utan heimilis, mundu hafa ávinning af þessari breyt- ingu“ (undirstrikanir KRFI). Þegar boðuð var framlagning frum- varpsins, var þvi haldið fram, að „nú skyldu störf heimavinnandi húsmæðra loksins metin“, eða m.ö.o. heimilisstörf skyldu metin. Höfundar frumvarpsins skilgreina ekki hugtökin „heimili" og „heimilisstörf“, en slík skilgreining hlýt- ur að vera óhjákvæmileg undirstaða raunverulegs mats og markmiðsins með matinu. Starfsmat getur undir engum kringumstæðum átl heima í skattalög- gjöf, hvorki mat á heimilisstörfum né öðrum störfum. 54 Ef frumvarp þetta verður að lögum, er niður felld hin svonefnda 50% frádrátt- arregla, þ.e. að helmingur launatekna giftra kvenna skuli dregin frá saman- lögðum tekjum hjóna áður en til skatt- lagningar kemur. Ákvæði þetta veldur misrétti milli launþega, og það stríðir gegn grundvallarreglu við lagasetningu hér á landi, að hafa kynbundið ákvæði í lögum. 50% frádráttarreglan var lögfest til bráðabirgða árið 1958. Vegna órétt- Iátra skattalaga var erfitt að fá giftar konur til starfa utan heimila. Skattstig- inn var þannig, að skattar hjóna, sem bæði unnu utan heimilis, urðu mun hærri en skattar fólks í óvígðri sambúð. I stað þess að leiðrétta skattalögin að þessu leyti, var farin 50% frádráttarleiðin. Á þeim 19 árum, sem liðin eru, hafa orðið margvíslegar breytingar á skattalögun- um, þ.á.m. á skattstiganum. Þær fáu konur, sem hafa háar tekjur, hagnast nú á þessari reglu. Það, sem átti að horfa til réttlátari skattlagningar, hefur snúist í andhverfu sína. 1 seinni tíð hefur þessi regla verið túlkuð þannig, að henni væri ætlað að koma til móts við kostnað, er bæði hjónin afla tekna utan heimilis, svo sem barna- gæslu. Að einstaklingar skuli hafa sem mest frelsi til að velja sér lífsstarf, eru flestir sammála um. En ef þetta valfrelsi á að verða framkvæmanlegt, verður að koma til móts við fólk á vissum tímabil- um. 1 64. og 65. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að í stað 50% frádráttarreglunnar komi „heimilisafsláttur" og „barnabóta- auki“. Heimilisafsláttur, eins og hann er boðaður í 64. gr. 1. tl., tekur ekki mið af verkefnum á heimili þeirra, er hans verða aðnjótandi. Samkvæmt frv. eru skilyrðin til að fá heimilisafslátt frá skatti þau að vera i hjúskap og að hjónin afli bæði tekna utan heimilis. Þetta eru nærfellt sömu skilyrði og eftir núgildandi lögum til að hljóta 50% frádrátt af launatekjum. Virðist sem 50% frádráttarreglan sé að hluta til endur- borin I heimilisafslættinum. Ef 50% frádráttarreglan er óréttlát, er heimilisafslátturinn það einnig, þar eð hvort tveggja er án sýnilegs samhengis við raunverulegar aðstæður fólks. Verkaskipting fullorðins fólks á eigin heimili er samkomulagsatriði þess í milli og skal vera án utanaðkomandi íhlutun- ar. Tryggingatöggjöfin hefur þegar viður- kennt ýmis verkefni heimilanna, svo sem i formi ellilífeyris, sjúkradagpeninga og örorkubóta. Umönnun og uppeldi barna er aug- ljóslega meginverkefni á nútímaheimil- um. Raunverulegar barnabætur falli til þeirra, er börn annast. 1 slikum barna- bótum er fólgið visst valfrelsi — fólk get- ur annaðhvort sjálft annast börnin eða greitt öðrum fyrir það. Þessi tilhögun leysir af hólmi barnabótaaukann sem boðaður er í 65. gr. frumvarpsins. Kerfisbreyting á skattlagningu, eins og boðuð er í frumvarpinu, krefst ítarlegrar athugunar og margvislegrar viðmiðunar. Stjórn KRFl vill vekja athygli þing- nefndarmanna á vinnubrögðum Norð- manna í svipaðri aðstöðu. Stjórn KRFl itrekar, að sá þáttur frumvarpsins, sem fjallar um skattlagn- ingu einstaklinga og heimila, verði dreg- inn til baka og endurunninn með hlið- sjón af ábendingum, er fram hafa komið. Stjórn KRFf hefur, eins og að framan segir, leitast við að setja fram þau grundvallarsjónarmið, er stefna beri að við skattlagningu einstaklinga og heim- ila. Stjórnin tók mið af þeim viður- kenndu samfélagslegu markmiðum, er á siðasta ári voru lögfest hér á landi, sbr. lög nr. 78/1976 um jafnrétti kvenna og karla. Grunntónn þeirra laga er sam- hljóma meginstefnumiðum KRFf s.l. 70 ár. Stjórn KRFÍ telur að leiðir að þessum markmiðum verði þeir að finna, er kjörnir hafa verið til slíkra verkþátta af þjóðinni. Reykjavík í febrúar 1977.

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.