19. júní


19. júní - 19.06.1978, Síða 57

19. júní - 19.06.1978, Síða 57
Fréttir frá jafnréttisráði Starfsvið jafnréttisráðs hefur hingað til verið tvíþætt, annars vegar að taka við kærum frá aðilum, sem telja brotið á sér m.t.t. þeirra laga, sem ráðið starfar eftir, og hins vegar að vinna að verkefnum, sem geta haft varanleg áhrif í baráttunni fyrir jafnri stöðu karla og kvenna. Afgreidd mál. Jafnréttisráð hefur afgreitt iO mál frá því að það tók til starfa í júlí 1976. M.a. vegna starfa ófaglærðs fólks í bókbands- iðn. En þar gátu einungis stúlkur unnið ófaglærð störf samkvæmt kjarasamningi. Viðkomandi aðilar sættust á að breyta þessu við gerð næstu kjarasamninga. Einnig hefur ráðið haft samband við Samb. almennra lífeyrissjóða vegna 13. gr. reglugerðar þeirra um makalífeyri, en í þeirri grein segir m.a.: „Heimilt er sjóðstjórn að greiða ekkli, sem sjóðfélagi lætur eftir sig, allt að þeim lífeyri, sem ekkja ætti rétt á, er eins stæði á, enda hafi ekkillinn skerla slarfsorku en hinn látni sjóðfélagi teljist hafa verið aðalfyrirvinna heimilisins“. Reglugerðin er í endurskoð- un og mun jafnréttisráð fylgjast með henni. Til ráðsins hafa ekki borist mörgerindi varðandi launamisrétti og gegnir það furðu, þegar vitað er eins og m.a. kemur fram í fréttabréfum Kjararannsóknar- nefndar, að laun kvenna eru til muna lægri en laun karla í sambærilegum störfum. Verður greinilega að leita ann- arra ráða til þess að nálgast þessar konur. Jafnréttisráð hefur sent eitt mál til lög- fræðings vegna málshöfðunar. Það er hið svonefnda „Sóknarmál“ og fjallar um launamisrétti. Jafnréttisráð og viðkom- andi starfsmaður hafa stefnt fjármála- ráðherra og heilbrigðisráðherra vegna þess. Taka ber fram að hér á fjöldi kvenna hlut að máli, en málið er höfðað í umboði einnar þeirra. Mál til umfjöllunar. Nú eru til umfjöllunar um 15 mál hjá ráðinu. Einnig hefur ráðið haft afskipti af nokkrum umsóknareyðublöðum um ým- is málefni. M.a. um kæru framleiðenda- fulltrúa sexmannanefndarinnar vegna mismunandi launa bónda og maka hans. Ýmislegt. Jafnréttisráði hafa borist fjölmargar fyrirspurnir bæði frá aðilum hér á landi og erlendis frá, varðandi lögin um jafn- rétti karla og kvenna og almenna starf- semi ráðsins. Ráðið hefur sent frá sér umsagnir um þrjú frumvörp, frumvarp um tekju- og eignaskatt, lagt fyrir Al- þingi í fyrra, barnalagafrumvarpið og ættleiðingarfrumvarpið. Einnig fylgdist ráðið með breytingum á atvinnuleysis- trygS*nSa^öggjöfinni varðandi fæðingar- orlof, auk nokkurra annarra þingmála. Fundir. Jafnréttisráð hefur sótt fjölda funda, sem tengjast starfsemi ráðsins bæði hér á landi og erlendis. Einnig hefur ráðið haldið 'ymsa fundi með aðilum, sem á einhvern hátt tengjast þeirri löggjöf og framkvæmd hennar, sem ráðið starfar eftir. Ráðið hélt t.d. í febrúar s.l. fund með jafnréttisnefndum þeim, sem eru starf- andi og nú fyrir skömmu hélt ráðið fund um skólamál og jafna stöðu karla og kvenna. Á þeim fundi voru aðilar frá skólarannsóknardeild menntamálaráðu- neytisins, fulltrúar frá kennarasamtök- um, Fóstrufélaginu, Háskólanum, Fóstruskólanum, Kennaraháskólanum, framhaldsskólum og fleiri aðilum. Þar var skipst á upplýsingum og myndaður starfshópur, sem mun koma með tillögur um framkvæmd 7. greinar jafnréttislög- gjafarinnar varðandi skóla og uppeldis- mál. Ráðgjafanefndin. Ráðgjafanefndin hefur farið yfir nýtt lesefni í samfélagsfræði fyrir 1. bekk, 2. bekk og 4. bekk í samvinnu við samfél- agsfræðihóp skólarannsóknardeildar. Ráðgjafanefndin er nú að vinna að verkefni, sem varðar verðandi foreldra og almenna stöðu barnsins í þjóðfélaginu. Fréttabréfið. Jafnréttisráð hefur hafið útgáfu fréttabréfs „HLIÐ VIÐ HLIÐ að jafnri stöðu karla og kvenna“ og er áætlað að það komi út fjórum sinnum á ári. Þeim, sem vilja koma með hugmyndir i það, er bent á skrifstofu jafnréttisráðs, Skólavörðustíg 12, sími 27420. Viðtals- tími er fyrir hádegi alla virka daga. Margt fleira hefur komið til kasta jafnréttisráðs, sem of langt mál yrði að tíunda hér og fjölmargt er í bígerð. En betur má ef duga skal, því eins og fram hefur komið viðgengst launamisréttið enn verulega og fáar konur koma með erindi vegna þess, þrátt fyrir að fjöl- margar fyrirspurnir komi símleiðis vegna meints launamisréttis. Bergþóra Sigmundsdóttir. BRUMBÓIAFÉLAC ÍSLANDS Laugavegi 103 . Sími 26055 55

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.