19. júní - 19.06.1978, Qupperneq 61
Félagsstarfið
Úr skýrslu formanns KRFÍ á aðalfundi 9. mars 1978.
Félagsmenn i Kvenréttindafélaginu
eru nú skv. spjaldskrá 330 einstaklingar,
en aðildarfélög eru 12 í Reykjavík og 35
utan Reykjavikur.
Á starfsárinu voru haldnir 4 félags-
fundir, auk fundar með jafnréttis-
nefndum aðildarfélaganna í Reykjavik
og nágrenni vegna merkjasölu
Menningar- og minningarsjóðs kvenna.
Stjórn KRFf tók upp það nýmæli að
halda stjórnarfundi hálfsmánaðarlega og
hafa alls verið haldnir 15 stjórnarfundir á
árinu.
Á félagsfundi í apríl 1977 var rætt um
jafnrétti innan fjölskyldu og á vinnu-
markaði. Frummælendur voru Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir, Gestur Ólafsson,
Guðrún Gisladóttir og Guðrún Sigriður
Vilhjálmsdóttir.
Félagsfundur var haldinn 13. okt. 1977
og þar sagði Guðrún Erlendsdóttir frá
samstarfi jafnréttisráða á vegum
Norðurlandaráðs og Bergþóra Sig-
mundsdóttir talaði um starf Jafnréttis-
ráðs hér á landi.
Formaður Kvenréttindafélags Noregs,
Kari Skjönsberg, kom hingað til lands s.l.
haust í boði Norræna hússins. Flutti hún
þar tvo fyrirlestra, en auk þess kom hún á
fund hjá KRFÍ hinn 1. nóvember og
ræddi um Kvinnesak — strategi for
videre arbeid.
Hinn 15. febrúar s.l. var á félagsfundi
fjallað um tvö frumvörp, sem lágu fyrir
Alþingi: frumv. til barnalaga og frumv.
til ættleiðingalaga. Frummælandi var
Ármann Snævarr.
Fyrirhugað var að halda á starfsárinu
ráðstefnu um verkmenntun og jafnrétti,
en henni var frestað til 8. apríl 1978.
Verður væntanlega sagt frá henni i
næsta ársriti, en ráðstefnan var fjölsótt og
tókst í alla staði mjög vel.
Á s.l. hausti voru settir á fót starfs-
hópar til að sinna ýmsum verkefnum
fyrir félagið. Einn hópurinn endurskoð-
aði spjaldskrá félagsins og endurbætti
upplýsingaforða um félagsmenn. Var
spjaldskráin borin saman við [jjóðskrá,
færð inn nafnnúmer, fæðingardagar og
ár og heimilisföng leiðrétt. Prentuð voru
ný spjaldskrárspjöld og verður nú á
næstunni lokið við að færa inn á þau og
taka í notkun. Annar starfshópur vann
að þvi að gera húsnæði félagsins hreint
og var þar allt tekið í gegn hátt og lágt.
Stjórn KRFl ákvað að stofna fjár-
öflunarhóp til þess að gera tillögur um og
undirbúa fjáröflun fyrir félagið, en fjár-
hagur þess hefur verið mjög bágborinn.
Var ákveðið að gefa Menningar- og
minningarsjóði kvenna og „19. júní“ kost
á að taka þátt í þessu verkefni. 1 þessum
starfshópi voru Björg Einarsdóttir, Guð-
rún Sigríður Vilhjálmsdóttir, Lilja
Stjórn K.R.F.Í. á svölum Hallvelgarstaða.
Ólafsdóttir, Else Mia Einarsdóttir og
Erna Ragnarsdóttir. Síðar bættust
nokkrir fleiri félagsmenn í hópinn.
Markmiðið með fjáröfluninni var, að afla
fjár til þess að bæta starfsaðstöðu félags-
ins á Hallveigarstöðum. Var ákveðið, að
halda veltu með bækur, tímarit, hljóm-
plötur o.fl. á Hótel Borg hinn 1. desem-
ber. Gífurleg vinna var lögð í að safna á
veltuna, og var beiðnum um gjafir viðast
hvar vel tekið. Guðrún Ásmundsdóttir
var fengin til að vera kynnir á veltunni og
rabbaöi hún við gesti og lék hljómplötur
meðan þeir freistuðu gæfunnar. Plötu-
snúður var Guðmann Þórvaldsson.
Hagnaður af þessari fjáröflun varð kr.
256.815,— sem skipt var milli aðila, og
síðan lagður inn á sérstaka sparisjóðsbók.
Hér kemur síðan húshópurinn til sög-
unnar, en hann fékk áðurnefnda spari-
sjóðsinnistæðu til ráðstöfunar til kaupa á
húsgögnum og ýmsu fleiru til skrifstof-
unnar. Hefur þegar verið keypt fundar-
borð, skrifborð með vélritunarborði,
spjaldskrárkassi og ýmislegt fleira. Þá
ákvað stjórnin að festa kaup á stólum við
fundarborðið og skrifborðið, og skjala-
skáp. Fyrr á árinu höfðu verið keyptir
bekkir með sessum og má nú segja, að
gjörbreyting hafi orðið á aðstöðu allri í
skrifstofuhúsnæði félagsins.
í nóvember s.l. sendi stjórn KRFI frá
sér opið bréf til stjórnmálaflokka á Is-
landi. Var bréfið sent formönnum allra
stjórnmálaflokkanna og fjölmiðlum og er
það birt í heild hér í blaðinu.
Hinn 16. janúar s.l. samþykkti stjórn
KRFl ályktun vegna ákvörðunar yfir-
nefndar í verðlagsmálum landbúnaðar-
ins um að meta landbúnaðarstörf til
mismunandi launa eftir því hvort þau
eru unnin af karli eða konu. Ályktun
jtessi er einnig birt hér í blaðinu. Hefur
félaginu borist þakkarbréf frá stjórn
Stéttarsambands bænda fyrir þann
stuðning við málstað bændafólks, sem í
ályktuninni felst.
Stjórnarmenn KRFl sóttu nokkrar
ráðstefnur og fundi fyrir hönd félagsins.
Bandalag háskólamanna hélt ráðstefnu á
s.l. hausti um framhaldsskólafrumvarpið
og sótti Gerður Steinþórsdóttir hana.
Menntamálaráðuneytið óskaði eftir því,
59