19. júní - 19.06.1978, Side 62
aö KRFl sendi fulltrúa á ráðstefnu, sem
haldin var á vegum Norræna menn-
ingarmálasjóðsins í Kungálv i Svíþjóð.
Ráðstefnan var haldin í júní 1977 og
fjallaði um hlutverkaskiptingu kynjanna
og menntun. Fyrir hönd KRFl sótti
Björg Einarsdóttir þessa ráðstefnu.
Nordiske kvindeforeningernes sam-
organitation — NKS hélt fund sinn og
ráðstefnu í Svíþjóð 2.—5. júní 1977 1 boði
Frekrika-Bremer Förbundet. Fulltrúar
KRFf þar voru Sólveig Ólafsdóttir,
Gerður Steinþórsdóttir og Valborg
Bentsdóttir. Yfirskrift ráðstefnunnar var
„Arbetsmarknad pa lika villkor“. Fluttar
voru skýrslur um ástand þessara mála í
hverju landi um stig og síðan unnið í
starfshópum, niðurstöður samræmdar og
ræddar í lokin. Helstu umræðuefni voru:
1. Við nýsköpun atvinnuvega sé þess
gætt, að bæði karlar og konur komi þar
til starfa og jafnvel eigi ríkið að stuðla að
þvi með fjárframlögum, að enginn
vinnustaður sé skipaður starfsmönnum
af öðru kyninu eingöngu (jámstálldhets-
bidrag, könskvotering).
2. Alls staðar verði lögbundin sömu
laun fyrir sömu vinnu.
3. Konur taki virkari þátt í starfi
stéttarfélaga og ákvarðanatöku þeirra.
Forsvarsmenn fyrirtækja verði skyldaðir
til að sækja námskeið um jafnréttismál.
4. Varðandi vinnutíma var meiri
áhersla lögð á, að vinnudagurinn verði 6
tímar heldur en 4 daga vinnuvika.
Einnig var lögð áhersla á sveigjanlegan
vinnutíma eftir þörfum fólks og rétt til
leyfis á launum vegna veikinda barna, en
leyfinu verði skipt milli foreldra.
5. Lagt var til að fæðingarorlof verði
eitt ár og skiptist milli foreldranna.
6. Lögð var áhersla á að sett yrðu lög
gegn kynjamisrétti og vakti óskipta
athygli, að ísland skyldi verða fyrst til að
setja lög um þetta efni.
Næsti fundur NKS verður haldinn í
Danmörku eftir 2 ár og mun væntanlega
fjalla um það, hvar í þjóðlífinu konur séu
í aðstöðu til að taka ákvarðanir.
Stjórnarfundur 1AW var haldinn í
Dublin 5.-8. sept. 1977 og sótti Björg
Einarsdóttir fundinn, en hún á nú sæti í
stjórn Alþjóðasambandsins.
Arsrit KRFÍ, „19. júní“, kom að venju
út 1977. Sala blaðsins gekk mjög vel og
eru nú aðeins nokkur eintök til af því á
skrifstofu félagsins.' Fjárhagslega stóð
blaðið bæði undir sér og greiddi skuldir
ársins 1976 og er vonandi að áframhald
verði á velgengni blaðsins.
Rekstur Hallveigarstaða gekk ekki
nógu vel árið 1977 og varð nokkur halli á
árinu. A undanförnum árum hefur þeirri
hugmynd oft verið varpað fram, hvort
60
rétt væri að selja Hallveigarstaði og fá
annað hentugra húsnæði fyrir þau
félagasamtök, sem eru eigendur hússins.
Svo sem kunnugt er hafa eigendurnir
haft mjög takmörkuð not af Hallveigar-
stöðum frá því að byggingu þeirra lauk
árið 1968 og meginhluti hússins verið
leigður til starfsemi, sem á engan hátt er
þeim tengd. Hallveigarstaðir hafa hvergi
nærri þjónað þeim tilgangi slnum að
vera félagsmiðstöð fyrir samtök kvenna
hér á landi eins og upphaflega var annar
höfuðtilgangur með byggingu hússins.
Hugsanleg breyting á rekstri Hall-
veigarstaða eða sala þeirra var mikið og
gaumgæfilega rætt i hússtjórninni á síð-
asta ári. Það er samdóma álit hússtjórn-
arinnar, að ef til sölu kæmi verði aðaltil-
gangurinn sá að þau félagasamtök, sem
eiga Hallveigarstaði, fái betri starfsað-
stöðu en þau nú hafa og geti komið undir
sig fótunum fjárhagslega, en slæmur
fjárhagur hefur verið hemill á alla starf-
semi þeirra.
í leigusamningi Hallveigarstaða og
Borgardómaraembættisins, sem hefur
tvær aðalhæðir hússins til afnota, er
ákvæði um að Borgardómaraembættið
skuli eiga forkaupsrétt að húsinu, verði
það selt. Var kannað hvort ríkið hefði
hug á að kaupa húsið, ef sala yrði ofan á,
en engin ákveðin svör fengust. Húsið var
sett á almennan fasteignamarkað í
febrúar s.l.
Er það von allra, sem sitja i stjórn
Hallveigarstaða, að þær tilraunir til að
nýta betur og hagkvæmar það fjármagn,
sem bundið er í Hallveigarstöðum, verði
þeim félagasamtökum, sem hlut eiga að
máli lyftistöng í starfi þeirra. Jafnframt
verði unnt að nálgast betur en nú er þau
markmið, sem brautryðjendur að bygg-
ingu Hallveigarstaða settu framtakinu á
sínum tíma.
Frá miðju siðasta ári hefur KRFl ekki
haft starfsmann, en þá hætti Sigríður
Jónsdóttir störfum, sem hún hafði þá
gegnt um nokkurt skeið. Stjórn félagsins
hefur ákveðið, að fyrst um sinn taki
stjórnarmenn að sér umsjón með og
ábyrgð á hinum ýmsu verkefnum, sem
vinna þarf, en fái félagsmenn sér til að-
stoðar i sjálfboðavinnu. Af þessum verk-
efnum má nefna innlendar og erlendar
bréfaskriftir, fjármunavörslu, spjald-
skrárritun, útbreiðsluhóp, dreifingarhóp
fyrir „19. júní“, fjáröflunarhóp o.fl.
Ennfremur hefur verið rætt um nauðsyn
þess að gefa út fréttabréf við og við og
efla tcngslin við aðildarfélögin. En öll
þessi verkefni kalla á margar hendur til
starfa, og er það von stjórnarinnar, að
félagsmenn bregðist fljótt og vel við þvi
kalli. Kvenréttindafélag Islands verður
ekki það afl í þjóðfélaginu, sem þaðgctur
verið, nema allir leggist á eitt um að efla
það.
1 stjórn KRFl eru nú:
Sólveig Ólafsdóttir, formaður
Björg Einarsdóttir, varaformaður
Ásthildur Ólafsdóttir
Else Mia Einarsdóttir
Erna Ragnarsdóttir
Varamenn:
Esther Guðmundsdóttir
Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir
Júliana Signý Gunnarsdóttir
Kosnar á landsfundi til 4 ára:
Brynhildur Kjartansdóttir
Gerður Steinþórsdóttir
Guðrún Gísladóttir
Kristin Guðmundsdóttir.
S.Ó.
Menningar- og
minningarsjóður
kvenna
Menningar- og minningarsjóður
kvenna var stofnaður 1941 með dánar-
gjöf Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
Fyrst var úthlutað námsstyrkjum árið
1946 og síðan hafa 512 konur fengið styrk
úr sjóðnum.
Fyrsta hefti æviminningabókarinnar
kom út 1955. Fyrsta heftið er uppselt og
litið eftir af öðru hefti. Fjórða bindið kom
út 1973 og nú er 5. bindið í undirbúningi.
Það er því mikilvægt að þeir, sem áhuga
hafa á að koma æviágripum í það hefti,
hafi sem fyrst samband við formann
M.M.K. í sima 18156 fimmtudaga kl.
15-17.
Tekjur sjóðsins hafa aðallega verið af
árlegum merkjasöludegi i september, svo
og af sölu minningarspjalda og ævi-
minningabóka. Siðastliðið haust var
merkjasalan með betra móti og seldist
fyrir tæplega 500 þús. krónur. Sjóðurinn
gat þvi úthlutað tveim 200 þús. króna
styrkjum. Styrkþegarnir eru: Ragn-
heiður Þorgrimsdóttir frá Kúludalsá við
nám í vistfræði og hugmyndafræði við
háskólann i Osló og Heba Hallsdóttir,
Reykjavik, sem er við framhaldsnám i
kcnnslu þroskaheftra, aðalfag talkennsla
— við kennaraháskólann i Árósum.
Stjórn M.M.K. er kosin á landsfundi
fjórða hvert ár, en stjórn sjóðsins skipa
nú: Else Mia Einarsdóttir formaður,
Ánna Borg varaformaður, Kristin B.
Tómasdóttir ritari, Guðrún Sæmunds-
dóttir, Ragnheiður Möller, Ásthildur