19. júní


19. júní - 19.06.1978, Page 65

19. júní - 19.06.1978, Page 65
3ÆKUR BÆKUR BÆKUR göngu saga karla og viðfangsefna þeirra. Konur koma helst við hana þegar þær sækja inn í opin- bera lífið, fara að heimta kosn- ingarétt, kjörgengi og rétt til em- bætta (og auk þess ef þær ala af sér karlkyns stórmenni eða giftast þeim). Ég er ekki að gera lítið úr hlut Gisla Jónssonar þó að ég bendi á að okkur vantar enn sögu hefðbundinna kvennastarfa, um verkaskiptingu kynjanna og hlutdeild kvenna í atvinnulífi. Hér má líka nefna sögu hjóna- bands og fjölskyldu og tengsl þessa við opinbera lífið. Sú saga hlýtur að koma konum sérstak- lega við af því að hjónaband og fjölskylda voru iðulega nær einu félagstengsl kvenna. Sumt af þessu er nú verið að vinna og lík- ur til að á næstu árum verði stór- aukið framboð af rannsóknum á þessum hlutum. Vonandi lætur Bókaútgáfa Menningarsjóðs þessa bók verða upphaf að skriðu bóka um kvennasögu. Gunnar Karlsson. Málfríðleikur Málfríður Einarsdóttir: Samastaður í tilverunni. Ljóðhús, Reykjavík 1977. 298 bls. Það er merkilegt að gefa út sína fyrstu bók og vera 78 ára gömul. Og maður mundi ekki búast við því, að slíkt ritverk vottaði fram- úrstefnu, en svo virðist samt vera. Það birtist m.a. í því að þetta er vitundarsaga fremur en við- burðasaga. Þarna er ekki lýst ytri æviatvikum með tímaröð og dramatískri stígandi eins og til dæmis í hinni annars ágætu ævi- sögu Sigurðar frá Balaskarði. Öllu heldur er þetta tilraun manneskju tii að sætta sig við óbærilega hvimleiða tilveru, „gagnslausa hjallvist í dimmu“, með því að bölva henni í sand og ösku, ýta henni út í fáránlegt ljós og endurskapa hana í orðum, þannig að hún verði þolanleg. Þessi vinnubrögð minna ekki all- lítið á Samuel Beckett og þá fél- aga. Bækur þar sem konur lýsa á ferskan hátt eigin skynjun „gegn- um meðvitundarglufuna“ hafa fáar verið skrifaðar hér á landi, enda lítið eftir þeim spurt. Og Málfríður lýsir ekki aðeins sjálfri sér, heldur einnig formæðrum sínum og aðbúnaði þeirra. Það eru magnaðar myndir með sama svartagallskraftinum. Hún lýsir vondum húsakynnum, sjúkdóm- um sem ekki síst hrjáðu börnin, og nauðungargiftingum. Það er furðulegt að lesa þetta og hugsa: bara tvær kynslóðir síðan. Mestur kostur bókarinnar er þó sá, að hún er alveg drepfyndin. Ég gríp niður í kafla um kvenna- skólann. Þar er m.a. rætt um baráttu stofnanda hans fyrir bættu siðferði: „námsmeyjar sín- ar lét hún klæðast peysufötum, sem urðu að vera svört, voru dæmd aflægi annars, kenndi þeim og að gæta meydóms síns svo sem sjáaldurs augna sinna, hvað þær og gerðu. Ekki þótti okkur að þessari nýbreytni sú au- fúsa sem vert hefði verið . . . I hundrað ár hefur enginn íslensk- ur maður litið við á götu, né mun nokkru sinni gera. Svo er kvennaskólanum fyrir að þakka.“ Og þessi blanda af fyndni og fjargveðri er geysileg skemmti- lesning. Inga Huld Hákonardóttir. Oplægður akur Draumur um veruleika. Íslenskar sögur um og eftir konur. Helga Kress valdi sögurnar og sá um útgáfuna. Mál og menning 1977. 203 bls. Ahugi á kvennabókmenntum er ávöxtur kvennahreyfingar- innar nýju, þótt hans gæti meira víða erlendis en hér á landi. At- hyglin beinist að því að kanna kvenlega reynslu, sjá hvernig konur skynja sjálfar sig og um- hverfi sitt. Kvennabókmenntir eru einn þáttur kvennasögu, en við rannsókn hennar gegna kvennasögusöfn mikilvægu hlut- verki, og svo háskólarnir. í víð- tækari merkingu eru kvennabók- menntir öll ritverk kvenna, en í þrengri merkingu eru það verk kvenna um konur, kvenvitundin í hnotskurn. Helga Kress velur síðari leiðina í Draumi um veruleika. Helga Kress hefur starfað sem lektor í íslensku í Noregi um nokkurra ára skeið, og hefur skrifað greinar um bókmenntir frá árinu 1974 út frá hugmynda- fræði kvennahreyfingarinnar. Er þess skemmst að minnast hvílíka athygli erindi hennar vakti á IASS-ráðstefnu um bókmenntir, þar sem hún fjallaði um kynja- hlutverk í verkum fjögurra ís- lenskra nútímahöfunda. Mikill fengur er að þessu safni. Þar er að finna 23 sögur eftir jafnmarga höfunda. Hér er um sýnishorn að ræða og spanna verk- in yfir nærfellt heila öld, frá 1880—1977. Sögunum fylgir rækilegur formáli, 25 bls. að lengd, sem nefnist Um konur og bókmenntir og gefur hann verkinu sérstakt gildi. Um markmið safnsins segir Helga í formála: „Því er ætlað að vekja athygli á 63

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.