19. júní


19. júní - 19.06.1985, Side 6

19. júní - 19.06.1985, Side 6
Sólveig Ólafsdóttir lögfræðingur og fyrrverandi formadur KRFÍ Eins og þetta sé í blóðinu páskasólinni á yfirstandandi vori settumst við að spjalli, Sólveig Ólafsdóttir og blaðamaður 19. júní, til að ræða um hana sjálfa og rifja upp afskipti hennar af Kvenréttindafé- laginu og kvennabaráttumálum almennt síðastliðin tíu ár eða svo, en eins og margir Iesendur minnast eflaust varð Sólveig formaður KRFÍ á því merka kvennaári 1975, þá aðeins 27 ára gömul. Upphafið niðri í Hafnarstrœti „Þetta er allt henni Valborgu að kenna,“ svaraði Sólveig með sínu glettnislega brosi þegar blaðamaður spurði hana hvernig áhugi hennar á jafnréttismálunum hefði vaknað. „Pannig var að snemma árs 1972 rakst ég á hana Valborgu Bentsdóttur niðri í Hafnarstræti og hún sagði við mig eins og ekkert væri sjálfsagðara: „Af hverju gengur þú ekki í Kvenréttindafélagið? Ég hef heyrt að þú hafir svo mikinn áhuga á kvenréttindamálum.“ Svona var nú fyrsta kveikjan að því að ég gekk í félagið. En að öllu gamni slepptu var það einmitt alveg rétt hjá Valborgu að ég hafði töluverðan áhuga á þessum málum eftir að hafa starfað í nokkur ár á vettvagni stjórnmálanna og svo ekki síður vegna kynna minna af stéttarfé- lagsmálum. Ég fékk snemma áhuga á pólitík enda alin upp á miklu framsóknar- heimili norður á Siglufirði og ég gekk í Framsókn rúmlega tvítug. Þar starfaði ég í Félagi ungra framsóknarmanna og var varaformaður þess um tíina. A þessum árum vann ég í fjármáladeild Ríkisútvarpsins, var í stjórn starfs- mannafélagsins og sat fyrir þess hönd í samninganefnd BSRB. Það má því vel segja að ég hafi verið á kafi í félags- málum og þjóðmálum og það var ein- hvern veginn eðlilegur hlutur í fram- haldi af þessum áhuga að fara að velta fyrir sér jafnréttismálum. Þau fléttast inn í öll málefni í samfélaginu og maður komst hreinlega ekki hjá því að reka sig á fordóma og alls kyns hindranir ef maður vildi láta hlusta á sig í félagsskap karla og kvenna." - Púfórst svofljótt inn í stjórn KRFÍ? „Það gerðist nú samtímis að ég gekk í félagið og fór inn í varastjórn þess því að framhald þessa atviks í Hafnarstræt- inu var að Valborg koin til mín skömmu síðar og vantaði þá varamann fyrir sig í stjórn félagsins. Þá stóð landsfundur fyrir dyrum, en það er á þeim vettvangi sem séð er fyrir hinu þverpólitíska jafn- vægi í stjórninni. Mér fannst þetta ekki svo galin hugmynd og sló til. Það varð nú reyndar lítið úr mér sem framsóknarfulltrúa því að ég sagði mig úr Framsóknarflokknum stuttu síðar og hef ekki verið flokksbundin síðan, en ég sat í varastjórninni eftir sem áður. Það er nú líka svo að þegar farið er að vinna á þessum vettvangi í alvöru, hafa stjórnmálaskoðanir einstakra stjórn- armanna minna að segja en áhuginn á framgangi jafnréttismála." Brá svolítið í brún - Hvernig var að starfa í KRFÍ á þessum tíma? „Þetta var árið 1972 og ég verð nú að játa að mér brá nokkuð í brún þegar ég kom á fyrsta stjórnarfundinn og sá að þar voru engar ungar konur fyrir utan mig, en ég var þá 24 ára. Þetta var á uppgangsárum Rauðsokkahreyfingar- innar, meðan hún var enn breiðfylking jafnréttissinnaðs fólks, og ég held hreinlega að hún hafi hrifið til sín flest- allar ungar konur sem á annað borð höfðu áhuga á jafnréttisbaráttu. Mörgum fannst víst dálítið púkó að vera í Kvenréttindafélaginu, en ég lét það aldrei á mig fá. Það er alveg áreið- anlegt að Kvenréttindafélagið galt þess mjög á þessum árum að rauðsokkurnar voru komnar til, því að það varð nánast engin endurnýjun í félaginu fyrr en upp úr kvennaárinu og svo enn frekar eftir veturinn 1976-1977 þegar skattamálin vöktu mikla athygli á tilvist þess. Félagið var í greinilegri lægð á þessu tímabili. Sjálf get ég nú ekki heldur státað af því að hafa vcrið mjög virk í stjórninni framan af. Ég hafði í ýmsu öðru að snúast þessi ár. Vann fulla vinnu á útvarpinu og hélt því áfram eftir að sonur minn fæddist, en það var einmitt þctta sama ár. Síðan fór mestallur tími sem ég varði til félagsstarfa í kjaramál míns stéttarfélags." Mjög stolt af þessu félagi - Hvernig tóku þcer sem fyrir voru í stjórninni svona ungri konu? „Það get ég sagt þér að þær tóku allar einstaklega elskulega á móti mér og ég lærði svo sannarlega margt af þeim. Ég held líka að þær hafi verið orðnar leiðar á að fá ekki fleiri ungar konur inn í fé- lagsstarfið og það hafi meðal annars átt sinn þátt í því að ég var kosin formaður KRFÍ árið 1975. Þá var fráfarandi formaður, Guðný Helgadóttir, 72 ára en ég 27. Það var að mörgu leyti gott að fá að byrja starfið með þessum fullorðnu konum. Það sýndi mér strax í upphafi að ákveðið samhengi var milli fortíðar og nútíðar í því sem verið var að berjast 6

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.