19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1985, Qupperneq 36

19. júní - 19.06.1985, Qupperneq 36
Margvísleg starfsreynsla felst í heimilisstörfum Iheimilisstörfum felst margvísleg reynsla sem ekki nýtist síöur við launuö störf en almenn reynsla fengin á vinnumarkaðinum. Má þar nefna þætti eins og frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og meðferð fjár- ^ '' muna en það eru þættir í launuðum störfum sem einna hæst eru metnir til launa á vinnumarkaðinum. I annan stað sæta þeir sem inna af hendi ólaunuð heimilisstörf stórlega skertum ævitekjum miðað við þá sem geta óhindrað gegnt launuðum störfum alla starfsævi sína. I þessu er m.a. fólgin efnahagsleg mismunun kynjanna en í langflestum tilvikum eru ólaunuð heimilisstörf unnin af konum.“ (Tilvitnun úr greinargerð með þingsályktunartillögu Kvennalistans - sjá nánar síöar í greininni.) Eins og allir vita hefur reynsla við heimilisstörf verið harla lítils virði þegar út á hinn almenna vinnumarkað er komið. Síðustu ár hefur þó orðið nokkur leiðrétting á þessu máli. í dag- blöðum hefur m.a. mátt lésa um sér- kjarasamninga bæjarfélaga eins og t.d. Kópavogs þar sem heimilisstörf eru metin til starfsreynslu. Starfsmanna- félagið Sókn hefur í nokkur ár haft mat á heimilisstörfum inni í sínum samning- um. 19. JÚNÍ ákvað því að kynna les- endum sínum hver staðan er í dag hvað varðar mat á heimilisstörfum til starfs- reynslu. Starfsmannafélagið Sókn Samningar Sóknar árið 1976 mörkuðu upphafið en þá fékkst heimilisstarfið metið sem 1 árs starfsreynsla. Starfs- menn Sóknar vinna á sjúkrahúsum, elliheimilum, barnaheimilum, leik- skólum og við heimilishjálp. 1979 var bætt um betur og heimilisstarfið fékkst metið til allt að 4ra ára starfsreynslu. Felur þetta í sér ákveðna viðurkenn- ingu á heimilisstörfum og hækkaði á sínum tíma laun margra kvenna. Verkakvennafélagið Framsókn Framsókn hefur gert sérsamning við ríki, Reykjavík og Kópavog þess efnis að reynslu við heimilisstörf megi meta sem allt að 3ja ára starfsreynslu. Þetta gildir fyrir þá sem vinna í mötuneytum einnig við ræstingu og kaffiumsjón í skólum. Fram kom í samtali við starfsmann á skrifstofu Framsóknar að mörg dæmi væru um að tillit væri tekið til reynslu við heimilisstörf hjá öðrum vinnuveitendum þótt engir samningar eða reglur væru þar að lútandi. Starfsmannafélag Keykjavíkurborgar í síðustu samningum var gerð sú breyting að starfsmenn í lægstu launa- flokkunum (7--10.fl.) þar sem ekki eru gerðar kröfur um sérþekkingu skuli fá metin öll störf þ.á.m. húsmóðurstörf til allt að 6 ára starfsreynslu. Til að fá mat á fyrri störfum sækir viðkomandi um á sérstöku eyðublaði og er eitt ár metið til hálfs árs starfsreynslu. Slíkt mat getur hækkað viðkomandi starfsmann um 2 launaflokka. Dæmi um húsmæður sem njóta góðs af þessu ákvæði eru þær sem starfa á gæsluvöllum, sundstöðum og aðstoðarfólk á sjúkrahúsum. í samtali við Láru V. Júlíusdóttur lögfræðing hjá Alþýðusambandi íslands kom fram að í samningum frá 1982 milli ASÍ og ríkisins vegna starfs- fólks í mötuneytum skóla skal við röðun í launaflokka taka tillit til reynslu við skyld störf. Heimilisstörf má í þessum samningi meta til mest 3ja ára starfsreynslu. Kópavogur í mars 1984 var samþykktur sérkjara- samningur við bæjarstarfsmenn sem tók gildi í sept. sl. þess efnis að starfsmenn, sem hafa haft heimilisstörf að aðalstarfi í minnst 4 ár, fái þau metin til starfsaldurshækkana (þ.e.a.s. scm 4 ár). Heimilisstörf eru þá metin sem hvert annað starf hjá vinnuveitanda. í viðtali við bæjarritara Kópavogs,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.