19. júní


19. júní - 19.06.1985, Page 43

19. júní - 19.06.1985, Page 43
ummælum og orðavali gagnvart karl- mönnum. Að ofansögöu má telja að sú staða sem norrænar konur höfðu á þjóðveld- isöld hafi e.t.v. auðveldað nútíma- konum á Norðurlöndum að ná eða Faðirinn varð að taka á sig 2/3 framfærsluskyldu óskilgetins barns endurheimta allvíðtækt félagslegt jafn- rétti á við karla. Nú á dögum geta konur, sem búa á áhrifasvæðum rótn- versk-kaþólskrar menningar sótt upp- orvun allar götur til hinna meðvituðu norrænu fornkvenna. Utn atvinnulífið ogfram- kfœmdavaldið________________________ l3egar ísland byggðist á fyrri hluta v'kingaaldar einkenndust framleiðslu- Þ;ettir þessaf búfjárhaldi. Menn leituðu 8°ðra bithaga þegar land var numið, en sJósókn skipti aðeins litlu máli. Islenskar konur höfðu veigamikið hhitverk í atvinnulífinu. Ef dæma má af •rnklum útflutningi ullarvarnings hljóta islenskar konur að hafa vcriö mjög iönar. Þetta hlýtur að hafa veitt þeim sterka fjárhagslega stöðu í samfélag- lnu- Vinnsla ullar varð sérstök starfs- grein, og var þessi vinnufreki heimilis- ‘ðnaður stundaður af konum í umsjá húsfreyjunnar á bænum. Vinnsla ullar- ■nnar hafði fljótlega verið stöðluð í mis- mnnandi gerðir vaðmáls, og gæði og mælikvaröi einingar voru lögfest. Sjálf- sngt hefur það ekki síst verið vegna þess að vaðmáliö var notað sem gjaldmiðill eða verðeining bæði innan og utan Innds. Sýnir þetta hve sterk staða hús- freyjunnar var í gamla íslenska samfé- ldginu. Stóö hún jafnfætis bónda s>num, þau höfðu einungis hvort um sig Sln störf að annast. I Grágás kemur fram að karlkyns verkamaður gat unnið sér inn samtals 6 álnir vaðmáls yfir árið auk fæðis og hsnæðis. Mestan hluta þessara launa Vann hann sér inn á tiltölulega stuttu timabili á árinu, um heyskapartímann, yrir að sækja féð á fjall og um slátur- hniann. Bændum var hinsvegar tiltölu- e8a lítill hagur að vinnumönnum sínum yfir vetrartímann. Vinnukonur unnu hinsvegar allt árið um kring við mjaltir, vinnslu mjólkurafurða, bakstur og matargerð. Á vetrum unnu þær af fullum krafti við vinnslu ullarinnar. Því miður eru ekki til launataxtar fyrir konur í Grágás, en í Búalögum frá því unt 1400 kemur fram að meðal- laun almennrar þjónustustúlku þá Itafi verið 30 álnir vaðmáls á ári, auk fæðis og húsnæðis. í Grágás er þess krafist að sérhver þjóðfélagsþegn ætti að hafa fast aðset- ur, lögheimili. Vinnufær maður án lög- heimilis féll á skömmum tíma niður í betlarastétt. Lauslegt mat á heimildum bendir til þess að færri konur en karlar hafi tilheyrt hinni nokkuð fjölmennu stétt beiningamanna. Má gera ráð fyrir að þessi krafa um heimilisfestu hafi haft áhrif í átt til launalækkunar. í sagnfræðiritum má lesa að skort hafi á framkvæmdavald í íslenska þjóð- veldinu. Karlarnir stóðu fyrir löggjafar- Færri konur en karlar í bctlarastarfi ogdómsvaldi, en konur áttu stóran hlut í framkvæmdavaldinu, sem var að hafa umsjón incð lögum og reglum. Á meðan karlar sóttu vorþing og alþingi, en einkunt þó á vetrum, voru samskipti fólks og dagleg önn á bæjunum einkunr bundin verkahring húsfreyjunnar, senr var innan stokks. Varðveisla friðar og reglu undir grænum þökum á íslandi á þjóðveldis- Konur áttu stóran þátt í fram- kvæmduvaldinii öld hlýtur því að hafa hvílt á herðum húsfreyjunnar. Þátttöku kvenna í „op- inberum" störfunr skorti þó, þ.e. þar sem pólitískar ákvarðanir voru teknar. Segja má að margir þættir þjóðveld- issamfélagsins falli undir hina almennu skilgreiningu á kvenveldi. Má benda á að framfærsla móður hvíldi fyrst og fremst á börnum og varð ekki undan henni vikist. Þá má benda á mannúð- lega meðferð betlikvenna og ambátta í tengslum við sjúkdóma eða barnsfæð- ingar, og loks hve vitnisburður konu í barnsfaðernismálum og nauðgunar- málurn vó þungt á metum. Á ofangreindunr atriðum sést því vel að ekki er hægt að lýsa íslenska þjóð- veldinu sem mæðraveldi. Konurnar létu mjög til sín taka vegna sjálfstæðrar og sterkrar efnahagsstöðu sinnar, ásamt mikilvægu hlutverki í fram- kvæmdavaldinu. Ólafía klykkir út með því að spyrja hvort verið geti að ævagamlar hug- nryndir í þjóðarvitundinni hafi leitt til þess að íslenska þjóðin hafi valið konu sem forseta, fyrst allra þjóða í heimin- um. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í ritgerð Ólafíu. Fyrir þá sent áhuga hafa á að lesa ritgerðina í heild er bent á að hana má finna í nýjasta riti Sögu- félagsins. ÁBÓT Á VEXTI GULLS ÍGILDI ÚTVEGSBANKINN EINN BANKI • ÖLL ÞJÓNUSTA 43 L

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.