19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1985, Qupperneq 74

19. júní - 19.06.1985, Qupperneq 74
Súlurit 2: skipting kynja í störf : Notendur t'ólvubúnadar markaðnum virðist koma nokkuð skýrt fram í þessari ungu en ört vaxandi atvinnugrein. Konur í hlutastörfum Fram kom jafnt hjá notendum og þjónustu- fyrirtækjum og stofnunum að mun fleiri konur eru í hlutastörfum en karlar; (65 konur og 3 karlar). Hjá mörgum viðmælend- um okkar kom fram að reynt er að komast hjá að ráða í hlutastörf. Ástæðan er sögð að þannig nýtist starfsmenn verr. Innan þessara fyrirtækja og stofnana er menntun starfsfólks mjög fjölbreytt. Sum þeirra gera engar sérstakar menntunarkröf- ur við nýliðaráðningar, en leita frekar eftir fólki innan sinna veggja og þjálfa það síðan upp með tilliti við starfssviðs hvers og eins. Starfsmenn í nýsköpun eru yfirleitt með háskólapróf. I dag er yfirleitt krafist háskólaprófs í kerfisfræði, tölvunarfræði, raungreinum eða á sviði rafeindaiðnaðar þegar ráðnir eru nýliðar í þessi störf. Þarscni eingöngu er unnið við innslátt er yfirleitt talið nægjanlegt að nýliðar hafi góða vélrit- unarkunnáttu og/eða grunnskólapróf. Starfsfólk í skrifstofustörfunum hefur yfir- leitt stúdents- eða verslunarpróf. í heild hafa konur sem starfa innan umræddra fyrirtækja og stofnana minni menntun en karlarnir. Yfirvinna hverfur - stöðugildum fækkar Innleiðing tölvutækni getur haft ýmsar afleiðingar í för með sér fyrir starfsfólkið. Áhrif tölvuvæðingar sem nú þegar hafa komið fram, a.m.k. hjá þeim fyrirtækjum og stofnunum sem teljast notendur, eru að yfir- vinna hefur svo til horfið, sem er í sjálfu sér ekki endilega neikvætt, en ennfremur hefur stöðugildum fækkað. Enn sem komið er hafa ekki átt sér stað beinar uppsagnir vegna tölvuvæðingar. En segja má að atvinnutæki- færum hafi í raun fækkað. Eitt dæmi skal þó nefnt hér. Það er Sjóvá. Þar hefur greinilcga orðið fækkun vegna tölvuvæðingar úr u.þ.b. 70 í u.þ.b. 50. Einnig má benda á uppsagnir vegna sjálfvirkni á símstöðvum í landinu. Ljóst er að í starfsgreinum eins og þjón- ustu- og skrifstofustörfum muni tölvutæknin hafa hvað mest áhrif, þó búast megi við að hún muni er fram líða stundir, koma inn í flestar hefðbundnar starfsgreinar. Sem stendur er það svo að ýmis þjónustu- og skrifstofustörf eru hefðbundin kvennastöyf. Hér á landi starfa u.þ.b. 64% kvenna við þjónustu en 43% karla. Erlendar spár varð- andi breytingar á störfum vegna tölvuvæð- ingar sýna að þjónustu- og skrifstofustörfin muni koma til með að verða lögð niður eða gjörbreytast eða a.m.k. muni tímabundið atvinnuleysi hljótast af. Menntun og fræösla Almennt er talið að karlar standi mun betur að vígi en konur til að sinna skapandi störfum á sviði tölvutækninnar, og er þá gjarnan bent á ólíka menntun þeirra. Nægir hér að nefna menntun á borð við kerfisfræði, tölvunarfræði, viðskiptafræði og rafeinda- tæknifræði sem veitir m.a. aðgang að störfum eins og kerfissetningu, forritun og stjórnun. Störf þessi njóta að öllu jöfnu meira álits en störf við t.d. lyklun og rit- vinnslu, en þar eru konur í miklum meiri- hluta. Algengara er, að konur mennti sig á öðrum sviðum, og eru þar af leiðandi síður undir það búnar að vinna sjálfstætt við skap- andi störf á tölvusviði. Tölvukennsla í grunnskólum landsins er enn sem komið er mjög takmörkuð. Við höfðum samband við tvo grunnskóla í Reykjavík sem hafa boðið upp á tölvu- kennslu í tilraunaskyni síðan skólaárið 1983. Nám þetta er í báðum tilvikum frjálst val, og reyndust hlutföll drengja og stúlkna vera mjög svipuð og enginn tcljandi munur á námsárangri þeirra. í framhaldsskólum er tölvukennsla hins vegar mun útbreiddari en þar keniur í ljós mjög glöggur munur milli pilta og stúlkna. Á framhaldsskólastigi er tölvunámið ýmist kjarnagrein - þ.e.a.s. skylda - eða þá valgreina. Við athugun kom í Ijós, að á meðan tölvunámið er kjarnagrein skiptast nemendur nokkuð jafnt eftir kynjum, en þegar það er orðið valgrein detta stúlkurnar út og eru piltarnir þá að jafnaði helmingi fleiri en stúlkurnar. I rafmagns- deild Tækniskóla íslands - en það er sú deild sem helst undirbýr nemendur fy rir störf í raf- eindaiðnaðinum - stundaði engin stúlka nám á síðasta skólaári, og mun það ekki vera neitt nýmæli. Er munur á námsárangri? Munur á námsárangri kynjanna í tölvu- námi í þeim 13 framhaldsskólum sem við höfðum samband við var hvergi sagður telj- anlegur. Þær stúlkur sem á annað borð leggja þetta fyrir sig standa sig jafn vel og skólabræður þeirra. Tölvunarfræði er kennd sem sérstök grein við Háskóla Islands, en tölvukcnnsla tcngist einnig námi í nokkrum öðrum greinum, s.s. í félagsvísindadeild, viðskiptadeild og í verk- og raunvísinda- deild. Frá því kennsla í tölvunarfræði hófst við Háskóla íslands 1976 hafa 447 nemar verið skráðir þar, 80% karlar og 20% konur. Brautskráðir á þessum árum eru 26, 19 karlar og 7 konur. Hlutföll karla og kvenna meðal skráðra nýnema í tölvunarfræði á haustmisseri 1984 eru 76 % karlar og 24% konur. Tölvukennsla er mjög skammt á veg komin í Kennaraháskóla íslands. Þaðan óskuðum við eftir upplýsingum um hlutföll karla og kvenna í stærðfræði sem valgrein undanfarin skólaár, en tölvunám er þar skylda. Þar hafa konur verið 62% að meðal- tali á árunum 1978-1984. Mörgum kann að virðast þetta myndarleg tala, en hafa ber í huga að mikill meirihluti nema í Kennara- háskóla íslands eru konur og er hlutfall þeirra um og yfir 75% í flestum greinum. Á undanförnum 2-3 árum hafa komið fram á sjónarsviðið ýmsir sérskólar sem bjóða upp á fjölbreytt tölvunámskeið. Markmið þess- ara námskeiða er að veita fólki almenna grunnþekkingu í notkun tölva sem síðan gæti veitt aðgang að störfum á vinnumark- aðnum sem tengjast tölvutækninni. Aðsókn karla og kvenna að þessum skólum er oft mjög ójöfn og karlarnir eru þar í miklum meirihluta. Einnig kom í ljós að konurnar flykkjast í ritvinnslu- og grunnnámskeiðin en sniðganga þau námskeið sem kenna t.d. forritun og áætlunargerð. Þegar á heildina er litið sýna konur minni áhuga en karlar á að mennta sig til starfa á tölvusviði. Þetta er undantekningarlítið sú tilhneiging sem merkja má á flestum stigum hins opinbera menntakerfis, en hlutfall kvenna í námi og námskeiðum sem gefa möguleika á nýsköp- unarstörfum á tölvusviði er talsvert minna en hlutfall karla. Það er því fátt sem bendir til annars en að í framtíðinni muni störf á tölvu- 74
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.