19. júní


19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 9

19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 9
Natasa Babic-Friðgeirsson Lítill litríkur kjóll Allar konur verða að eiga í klæðaskáp sínum lítinn svart- an kjól, - svo segir sígilt lög- mál tískunnar. Þessi hentuga en jafnframt glæsilega flík hentar jafnt drottningum sem fisksölukonum; ungum konum jafnt þeim sem eldri eru. Þó svo áratugir hafi liðið frá því Coco Chanel, - óvéfengdur hæstiréttur í málum er varða útlit kvenna, setti fram þessa kenningu, þá hefur litli svarti kjóllinn alla tíð undirstrikað kvenlega fegurð og elegans. Hann hefur staðið af sér óveður tímans og minnt okkur á að tíska breytist en stíll er eilífur. Engu að síður vil ég, hér og nú, lofsyngja annan kjól, - svo hóg- væran að ef sá svarti er keisara- ynja þá er hann vinnukona. Þetta er litli litríki kjóllinn sem oftast er úr bómull og með blómamynstri og kynslóðir ömmu okkar klædd- ust þegar tímar voru bágir og efni rýr Þessar konur voru eins og litli litríki kjóllinn; sama hversu oft hann var þveginn og hvernig hann var níddur; - alltaf birtist hann á ný, reiðubúinn að vernda og þjóna. Litli litríki kjóllinn er nú að mestu horfinn úr klæðaskápum Vesturlanda. Við leit gætu þó nokkrir þeirra fundist ísveitaþorp- um í heimalandi mínu, Króatíu, eða annars staðar á Balkanskaga. Samt er það ekki öruggt þrátt fyrir að í áratugi hafi þessir kjólar borið heim mat frá markaðinum, hugað að sáru hné, sinnt garðinum og prjónað peysur Það er deginum Ijósara að þessir kjólartilheyra for- tíðinni og hverfa innan skamms af yfirborði jarðar Það eru framfarir og vitundarvakning kvenna sem réðu örlögum kjólsins, - hin hóg- væra hvunndagshetja lét eftir sæti sitt handa hinni tígulegu systur *** Amma mín, Ziba, er ein af þessum konum sem hafa klætt sig í litríka kjóla mest allt sitt líf. Hún fæddist árið 1925 og var af bosnísku mús- limaforeldri. Hún var hugrökk ung kona sem var sú fyrsta í sinni fjöl- skyldu til að afklæðast hefðbundn- um fatnaði múslima og bregða sér í lostafulla litríka kjólinn. Systur og vinkonur fylgdu í fótspor hennar Astæða þess að amma mín stork- aði umhverfi sínu var í senn prakt- ísk og menningarleg. Hún hafði unun af að dansa og lærði suður- ameríska dansa. Og til hvers að dansa tangó ef ekki er hægt að klæðast latneskum kjólum? Jafnvel þótt foreldrarnir klæddust hefð- bundnum fötum stóðu þeir ekki í vegi fyrir breytingunum og fögn- uðu þeim í raun á sinn hátt. Bosn- íu-múslimar voru nefnilega, þrátt fyrir fordóma okkar - umburðar- lyndir og löguðu sig auðveldlega að breyttum tímum. Einungis einu sinni síðar á ævi sinni bar hún amma hefðbundin klæði. Undir mörgum lögum af múslima-sjölum og pilsum smyglaði hún vopnum í gegnum vegtálma ítalskra fasista nærri Mostar í Bosníu, til félaga sinna í frelsishreyfingunni á dögum síðari heimsstyrjaldarinnar Aður en hún brá sér aftur í borgaralegan klæðnað gekk hún í einkennis- búningi júgóslavnesku andspyrnu- hreyfingarinnar í nokkur ár. A gamalli mynd stillir amma mín sér glæsilega upp í gráum einkennis- búningi, með handprengju hang- andi tælandi á mjöðminni likt og kvenlegt samkvæmisveski. I andspyrnuhreyfingunni hitti hún fyrsta eiginmann sinn. Þau skildu skömmu eftir að móðir mín fæddist. Þrátt fyrir framsækin og byltingarkennd viðhorf til þjóðmála var faðir stúlkunnar litlu lítið fyrir breytta skipan á heimili og var trúr balkanskri feðrahefð. Hann ásakaði konu si'na fyrir að hafa fætt dóttur og gefa honum ekki son í frumburð og hann virt- ist ekki geta elskað dóttur sína. Fumlaust tók amma mín dóttur- ina og yfirgaf eiginmann sinn, - annað byltingar-sinnað skref í íhaldssamfélagi á Balkanskaga á fimmta áratugnum. Hún var stolt ung kona sem ákvað að sjá sjálf um sig og dóttur sína. Hún ætlaði ekki að verða undirgefni og sam- viskubiti að bráð vegna rangs kyn- ferðis frumburðarins. Kommúnisminn hjálpaði á margan hátt móðurinni ungu sem var nú orðin einstæð. Skilnaður var ekki einvörðungu heimilaður með lögum heldur hlutu konur lagalegt jafnrétti á við karlmenn. Ommu minni var ekki útskúfað i' Amma Natösu, Ziba Geiev. hinum nýja og „framsækna" sós- íalisma, henni tókst að finna vinnu og eftir úrskurð alþýðudómstóls- ins fékk hún greidd barnsmeðlög. Þegar góðæri eftirstríðsár- anna gerði vart við sig sást amma mín aftur í litla litríka kjólnum. I stað þess að standa í biðröðum eftir matvælum stóð hún núna í biðröðum eftir líni og kjólaefni. Hún sem og kyn- systur hennar stóðu klukku- stundum saman í biðröð eftir fáeinum metrum af litaglöðum ströngum og amma keypti alltaf einn viðbótarmetra. Á síðkvöld- um, eftir langan vinnudag í bak- aríi, settist hún undir einustu Ijósaperuna í ibúðinni og saum- aði kjóla, - einn á sig og annan alveg eins en minni, á litlu stelp- una. Sagan segir að uppáhalds- kjólarnir, þeir sem aldrei gleym- ast, hafi verið þessir rauðu með hvítu doppunum. Þegar ömmu tókst síðan að komast yfir pör af hvítum skóm leið þeim eins og ekki væru hamingjusamari tvær konurtil í þessum heimi. *** Nokkrum árum síðar hitti Ziba seinni eiginmann sinn og eignað- ist hún með honum tvö börn. Fjölskyldan flutti aftur til Mostar þar sem hún tók að sér aldraða foreldra auk þess að annast börnin sín og vinna allan daginn í tóbaksverksmiðju. Líf hennar var hvorki erfiðara né auðveldara en annarra kvenna af hennar kyn- slóð. Þetta var tími félagslegra breytinga; konur tóku að vinna fullan vinnudag á skrifstofum og í verksmiðjum en höfðu áfram á sínum herðum heimilisstörfin og umönnun barnanna, - yfirleitt án ► 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.