19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 59
Stelpur eru ávallt góðar...
Þar sem álitið er að drengir horfi
ekki á barnaefni sem ætlað er
stúlkum er tiltölulega stutt síðan
að farið var að framleiða sjón-
varpsefni fyrir stúlkur þar sem
markaðurinn var ekki álitinn
nægilega stór fyrir slíkt myndefni!
Þó mátti sjá í Disney - ævintýra-
myndunum margar frægar kven-
persónur eins og Oskubusku,
Mjallhvíti og Þyrnirós. Allar þess-
ar kvenpersónur hafa þó þekkt
„kvenleg" persónueinkenni þar
sem þær eru allar góðar; saklaus-
ar og óeigingjarnar Þær giftast
svo prinsinum að lokum sem
umbun fyrir góðmennskuna -
andstætt vondu og eigingjörnu
konunum sem reyndu að koma
góðu stúlkunum fyrir kattarnef.
Það sem hefur vantað í
margt sjónvarpsefni fyrir stúlkur
eru ákveðnar, hugrakkar og
uppátektarsamar stelpur sem
sýndar eru í hetjuhlutverki.
Nokkur dæmi eru um að slíkar
kvenpersónur séu kynntar til
sögunnar í ýmsum þáttum en þá
hafa þær stundum lent íslysi eða
þær hverfa af sjónarsviðinu. Þá
sjaldan að stúlkur eru sterkar og
ákveðnar í barnaefni þá fá þær
einnig margbreytilegra hlutverk
en aðrar kvenpersónur. Þær
verða hinsvegar að gæta sín á því
að vera ekki of uppteknar af
sjálfum sér því að sjálfselskar
konur fá iðulega makleg mála-
gjöld í lokin.
I sjónvarpsefni sem ætlað er
stúlkum er því góðmennska,
hugulsemi og samkennd meðal
þeirra kosta sem prýða fallegan
og pastellitaðan heim stúlkna.
Lifaö í bleikri blómaveröld
Það var ekki fyrr en í upphafi
níunda áratugarins með tilkomu
myndbandstækjanna að farið var
að framleiða barnaefni handa
stúlkum i'verulegu magni. Þarmá
sjá sjónvarpsþætti eins og My
Little Pony og Core Bears. Sjón-
varpsþættirnir My Little Pony
voru vinsælir meðal stúlkna á
aldrinum tveggja til
átta ára á nfunda
áratugnum.
Sjónvarpsþætt-
irnir og leikföngin
voru sett á mark-
að eftir markaðs-
könnun hjá leik-
fangafyrirtæki.
Það kom fyrir-
tækinu verulega á
óvart hvað mikið seldist af
brúnum plasthestum án
þess að þeir væru
auglýstir sérstaklega. Því
var ákveðið að búa til
nýtt leikfang og sjón-
varpsefni þarsem hest-
arnir urðu pastellitaðir en
voru allir mismunandi í
útliti. Smáhestarnir eru
allir með ýkt fax og tagl
í Ijósum „stelpulegum"
litum. Augun á smá-
hestunum eru blá og í
kringum þau er bæði augn-
skuggi, augnblýantur og áberandi
stór augnhár til að leggja áherslu
á kvenlegt útlit hestanna. Smá- ►
Leikfangaauglýsingar
I leikfangaauglýsingum ætluðum
foreldrum er gert ráð fyrir því
að ákveðnar hvatir séu að baki
því að tiltekin leikföng eru
keypt fyrir börnin en önnur
ekki. Lesendur auglýsinganna -
sérstaklega mæður - eiga að
hafa væntingar til barna sinna
og reyna að þroska og örva
bömin með því að gefa þeim
rétt leikföng. Væntingarnar eru
meðal annars þær að börnun-
um li'ði vel, að þeim vegni vel í
lífinu, að börnin standi sig vel í
skóla og að þau hafi frumkvæði.
Þessar væntingar til barna birt-
ast svo f mismunandi leikföng-
um sem gera börnin ánægð,
eiga að þroska þau og þjálfa og
auka frumkvæði þeirra. Enn-
fremur er oft reynt að mark-
aðssetja leikföng þannig að þau
hafi margþætt hlutverk fyrir
börn. Þá er algengast að leik-
föng hafi skemmtanagildi auk
þess sem þau þjálfi börnin og
þroski. Þannig reyna leikfanga-
framleiðendur að koma þvi' á
framfæri að börnunum leiðist
aldrei, heldur skemmti þau sér
við að læra og þroskast.
I markaðssetningu á leikföng-
um eru ávallt brosandi og glöð
börn sem verða yfir sig ánægð
með leikföngin sem þau fá.
Þannig eru krefjandi börn sem
biðja um allt milli himins og
jarðar aldrei sýnd í auglýsingum.
Elsta bragðið sem notað er í
auglýsingum ætluðum foreldr-
um er að segja frá því hvað
barnið verður ánægt ef það fær
leikfangið. Þannig eru jólin hátíð
barnanna og það sést best á
þeirri gósentíð sem jólin eru
hjá leikfangaframleiðendum og
leikfangaverslunum.
Leikfangaauglýsingar sýna
iðulega afskaplega stereo-
týpíska mynd af drengjum og
stúlkum. Því hefur verið haldið
fram að auglýsingar sem sýna
leikföng fyrir stúlkur hafi breyst
mun minna en auglýsingar sem
sýna leikföng fyrir drengi. Enn
er verið að auglýsa leikföng
sem eru smækkaðar útgáfur af
heimilistækjum. Þannig hafa litl-
ar útgáfur af bollastellum,
ofnum og eldavélahellum verið
vinsælar í marga áratugi og eru
enn. Einnig leikföng sem tengj-
ast barnauppeldi, svo sem
dúkkun dúkkuvagnar; pelar og
snuð. Leikfangaframleiðendur
eru því að tengja leik stúlkna
við heim fullorðinna (kvenna)
ólíkt leikföngum ætluðum
drengjum sem eiga fátt skylt við
raunveruleikann. Drengir eru
oft ekki sýndir f auglýsingum
fyrir leikföng sem ætluð eru
þeim. Leikföng drengja eru hluti
af ævintýraheimi sem drengir
detta inn í þegar þeir fara að
leika sér Þannig er ævintýra-
heimurinn sjálfur yfirleitt aðeins
sýndur og plastkarlar, flugvélar,
bílar og önnur tæki hreyfa sig
því sem næst af sjálfu sér í
auglýsingunum.
Ennfremur eru stúlkur oft
sýndar til hliðar í auglýsingum.
Ef auglýsingin sýnir mynd af
systkinum má oft sjá dreng sem
leikur sér og systur sem horfir
aðdáunaraugum á bróður sinn
og er ekki sjálf með í leiknum.
Þá sýna auglýsingar oft að stúlk-
ur vilja gjarnan hjálpa til, stúlkur
eru nefnilega afskaplega hrifnar
af heimilisstöifum íauglýsingum
og vilja verða alveg eins og
mamma. ■
59