19. júní


19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 66

19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 66
verið sjálfstæð Hvergi í hinum vestræna heimi hefur samfélag gengið í gegnum jafn ótrúlega umbylt- ingu og á fsland á líðandi öld. Gunnhildur Hrólfsdóttir hreifst af því hvernig upprifj- un Ragnheiðar Jónsdóttur blés lífi í sagnfræðilegar staðreyndir um líf og kjör kvenna fyrr á öldinni. Ragn- heiður man svo sannarlega tímana tvenna, enda fagnar hún 95 ára afmæli sínu alda- mótaárið 2000. ,,Guð hefur gefið mér góða heilsu. Eg hef aðeins legið á sjúkrahúsi eina nótt. Eftir að skipt hafði verið um augasteinana var leiðinlegt veður og gott að fá að vera inni," segir Ragnheiður Jónsdóttir og lítur brosandi upp úr hannyrðunum. Nú býr hún í íbúð fyrir aldraða í Vestmanna- eyjum, fylgist með fréttum, sækir spilakvöld, saumar út ótrúlega fínlegar myndir og er lifandi dæmi um hvað aldur getur verið afstætt hugtak. Ég hafði oft heyrt talað um þessa merku konu og lét hvorki veður né færð aftra mér frá því að hitta hana þegar tækifærið gafst loks. Ragnheiður var komin til Reykjavi1<ur til að halda upp á 94 ára afmæli sitt og brá sér á ball í leiðinni. Eftir að hafa komið sér vel fyrir á heimili dóttur sinn- ar með hannyrðirnar á hnjánum hóf Ragnheiður frásögn sfna og byrjaði á því að rifja upp að hún hefði fæðst í bjálkahúsi í Selkirk við Winnipegvatn f Kanada 4. desember árið 1905. Foreldrar Ragnheiðar höfðu flust þangað rétt fyrir aldamótin. ,,Margir Vestmannaeyingar höfðu tekið mormónatrú og fluttu til Utah á þessum árum. Afasystir mín hafði verið þar á meðal. Hún hvatti pabba til að koma til sín og gerast mormóni. Pabbi vildi ekki gerast mormóni en hann var samt gripinn ævintýraþrá og flutti vestur með fjölskylduna þrátt fyrir mótmæli mömmu. Hann vann í sögunar- verksmiðju á veturna en veiddi fisk í Winnipegvatni á sumrin," segir Ragnheiður og bætir við að þegar allt hafi komið til alls hafi móður hennar líkað vel í Kanada, „Foreldrar mínir áttu eitt barn þegar þeir fluttu vestur; dótturina Jónu, en höfðu misst frumburð- inn, dreng, ársgamlan. Jóna dó úr heilabólgu þegar hún var sjö ára. Eftir dauða hennar greip föður minn slíkt óyndi að hann gat ekki hugsað sér að búa lengur í Kan- ada. Reyndar höfðu hann og mamma þá fengið þær fréttir að mikill uppgangur væri í Vest- mannaeyjum, mótorbátar komn- ir til sögunnar og næga atvinnu 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.