19. júní


19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 62

19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 62
Eftir Ásdisi Sigmundsdóttur bókmenntafræðing Kvöldlesturinn og kynímyndir Einu sinni var barnapía sem lá í grænmáluöu barnaherbergi með lítið höfuö á öxlinni og las sögu fyrir svefninn. Venjan var að barn- ið fengi að velja sögu kvöldsins og varð barnapían að sætta sig við valið þó svo að hún væri kannski orðin svolítið þreytt á að lesa uppáhaldssögu barnsins í milljónasta skipti. En þetta kvöld gat barnapían ekki orða bundist og spurði barnið hvort því fyndist kven- hetjan ekki haga sér heimskulega. Þessi ónefnda saga var nefnilega illa skrifuð, söguþráðurinn óspennandi en það sem gerði útslag- ið var sú kvenfjandsamlega afstaða sem endurspeglaðist í aðalkvenhetjunni og var svo lítillækkandi að það hefði mátt halda að sagan hefði verið skrifuð á fyrri hluta síðustu aldar. En svo var þó ekki, því sagan var nýleg. Barnið horfði á barnapíuna í forundr- an og gat ekki svarað, en samþykkti loks að bókin væri kannski ekkert sérstaklega skemmtileg og var önnur valin í staðinn. Þessi litla saga úr hversdagslífinu varð til þess að ég fór að velta fyrir mér hvers konar kynímynd- ir megi almennt finna í barnabók- um í dag. Barnabókahöfundar hafa eins og aðrir óhjákvæmilega fundið fyrir og brugðist við þeirri kröfu samfélagsins að bækur þeirra endurspegli þá þróun sem hefur átt sér stað í viðhorfum til kynjanna. Lesendur taka illa í endalausar heimavinnandi hús- mæður; stelpur sem eiga þann draum heitastan að gifta sig og feður sem taka ekki þátt í heim- ilishaldinu. Það eru aðrir tímar en þegar Georgína hjálpaði henni Önnu alltaf með matinn þó svo að hún ætti að heita strákastelpa í Fimm bókum Enid Blyton. En endurspegla barnabækur á íslandi þessa breyttu tíma? Hvers konar kynímyndir er að finna í íslenskum barnabókum? Hvers konar persónum er íslenskum börnum boðið upp á að sam- sama sig? Ég ákvað að skoða þær barnabækur sem komu út fyrir síðustu jól út frá þessum vanga- veltum. Bækur eru miðill Fyrir nokkrum áratugum, þegar umræðan um stöðu kynjanna var í hámarki, fór fram mikil umræða um kyni'myndir í vestrænni menningu. Barnabækur komu þá að sjálfsögðu líka inn í umræðuna vegna uppeldisgildis þeirra og töldu margir því mikilvægt að þær gæfu ekki ranga mynd af stöðu kynjanna. Gengu sumir svo langt að þeir vildu banna lestur allra bóka sem ekki drægju upp núti'malega mynd af hlutverkum kynjanna. Þessi afstaða hefði leitt til þess það hefði þurft að banna flestallar bækur skrifaðar fyrir 1970 hvort sem þær væru bók- menntaperlur eða rusl. Þrátt fyrir að umræðan hafi enn gildi (annars væri ég varla að skrifa þetta) þá er þessi ein- strengingslega afstaða bæði óraunsæ og beinlínis röng. Það á frekar að hvetja foreldra til þess að lesa gamlar klassfskar bækur fyrir börnin sín heldur en hitt. En á sama tíma þarf að benda for- eldrum á að það er nauðsynlegt að þeir velti fyrir sér lesefni bama sinna. Foreldrar verða að vera meðvitaðir um það að bækur, eins og aðrir miðlar eins og sjónvarp og bíó, senda börn- um ákveðin skilaboð. Foreldr- ar eru liklegri til að vera á varðbergi gagnvart mynd- efni enda er sífellt verið að vara við þeim áhrifum sem sjónvarp og kvikmyndir geti haft á börn og unglinga. En það er ekki síður nauðsynlegt að vera meðvitaður um áhrifamátt bóka. Tilhneigingin er sú að líta á bækur sem „saklausari" miðil, kannski vegna þess hve hann er hefð- bundinn og sam- gróinn menningu * okkar En bækur eru ekki síður áhrifamikill miðill. Miðill sem kemur ákveðnum skila- boðum á framfæri. Þessi skilaboð þurfa foreldrar að ræða um við börnin sín til þess að þau geti sjálf með tímanum greint hvaða skilaboð- um textar eru að reyna að koma til þeirra. En hvaða skilaboð eru það sem við viljum að bækurnar sem við lesum fyrir börnin okkar komi á framfæri? Krafan hlýtur að vera sú að þær sýni bæði stelpur og stráka, karla og konur, sem fjölbreyttar; marglaga persónur Að karlpeningurinn eigi ekki einkarétt á ævintýrum og að kvenfólkið eigi ekki einkarétt á tilfinningalegum vandamálum. Að & bækurnar sýni þörf beggja kynja fyrir náin samskipti við annað fólk, svo sem fjölskyldu og vini. Það er í raun ekkert flóknara en það að við viljum að bækur dragi upp myndir af lifandi fólki. Fólki sem er þannig úr garði gert að börn geti lifað sig inn í aðstæður þeirra og tekið þátt í þeim ævintýrum eða vandamálum sem sagan segir frá. Samspil myndar og texta Myndir eru alveg jafn áhrifamikl- ar og texti og söguþráður í ímyndasköpun og því er ekki síður mikilvægt að gefa gaum að þeim skila- boðum sem felast í myndabókum fyrir yngstu börnin. Myndabókin Orðabusl eftir Margréti E. Lax- ness er bók sem hugsuð er til þess að auka orðaforða barna og er ekki með texta í hefð- bundum skilningi. Margrét teiknar myndir af stelpum og strákum og konum og körlum sem eru tekn- ar beint út úr þeim veruleika sem íslensk börn þekkja. Hvers- dagsföt stelpna eru i'þróttabuxur en spariföt yfirleitt kjólarj strákar hafa gaman af því að baka smá- kökur fyrir jólin og toga í bikinfm hjá stelpunum i' sundi. Pabbar fara líka með börn í bæinn, bæði konur og karlar vinna, kaupa i' matinn o.s.frv. Þá sem muna eftir Úr Orðabusl eftir Margréti E. Laxness. 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.