19. júní


19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 37

19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 37
Freyjumenið verður Grettisbelti kvenna Fullkomnu jafnrétti kynjanna við iðkun þjóðaríþróttarinnar íslenskrar glímu verður náð segir Anna G. Ólafsdóttir, með stórmóti Glímusambands (slands fyrir konur í íþrótta- húsi Kennaraháskóla Islands sunnudaginn 18. júní kl.16. Konum verður á mótinu í fyrsta sinn gefinn kostur á því að keppa um jafn veglegan verðlaunagrip og hið fræga Grettisbelti. Karlar hafa keppt um Grettisbeltið allt frá árinu 1906. Verðlaunagrip kvennanna hefur verið gefið nafnið Freyjumenið. Jón M. Ivarsson, formaður Glímusambands Islands, segir að glíman sé algjörlega séríslensk íþrótt. „Híngað komu landnáms- menn frá Noregi og Bretlandi með fangbrögð frá báðum lönd- um. Smám saman varð til sér- stök íslensk glíma og á sér vænt- anlega um 1000 ára sögu hér á landi. Lengst af tíðkaðist ekki að klæðast sérstökum búningum við glímuna. Islenski glímubúning- urinn með tilheyrandi belti kom ekki til sögunnar fyrr en um síð- ustu aldamót." Ekki leið á löngu þar til farið var að efna til elsta iþ>róttamóts á íslandi. „Islandsglíman var haldin í fyrsta sinn árið 1906. Glímt var um titilinn Glímukóngur Islands og hið veglega Grettisbelti. Sigur- vegarinn varðveitir beltið fram að næstu Islandsglímu. Aftur á móti hefur nafn sigurvegarans í hvert sinn verið grafið á lítinn silfurskjöld og hann hengdur í beltið. Aðeins 30 skildir komast fyrir á beltinu og því hefur þurft að taka einn til hliðar og setja í geymslu á hverju ári,“ segir Jón og upplýsir að alls hafi 30 karlar borið titilinn Glfmukóngur Islands frá upphafi. Nokkrir hafa borið titilinn í mörg ár og metið er 15 ár Eldri kynslóðin hristir höfuð- ið Jón viðurkennir að lengst af hafi því verið haldið fram að glíma væri allra íþróttagreina karl- mannlegust. „Glíma var tengd við karlmennsku og drengskap," segir hann og minnir á breyttan tíðaranda. „Lengi vel stunduðu konur varla nokkrar i'þróttir. Ég get nefnt að fyrsta frjálsfþrótta- greinin var boðhlaup uppúr 1940. Ymis konar aðrar hlaup- agreinar komu í kjölfarið. Frjálsar íþróttir urðu vinsælar og áfram væri hægt að telja nánast enda- laust eins og allir vita." Glíman var einna lengst vígi karla hér á landi. Ekki var farið að huga að því að fá konur inn í íþróttina fyrr en fyrir um 13 árum. Stjórn Glímusambands íslands lagði fram tillögu um að gert yrði ráð fyrir að konur æfðu og kepptu í glímu og þó aðeins á mótum innan héraða fyrstu tvö árin. „Konur voru fljótar að til- einka sér glímubrögðin og kepptu fyrst á landsmótum árið 1990. Núna er ekki óalgengt að konur séu um helmingur og jafn- vel upp í ríflega helmingur kepp- enda á landsmótum. Eldri kyn- slóðin hristir enn höfuðið. Ég og fleiri í stjórninni erum stoltir af því að hafa stuðlað að því að með konunum komi helmingi fleiri að viðgangi þjóðararfsins í gegnum glímuna." Fullkomnu jafnrétti var hins vegar ekki náð. „Enn hallaði á konur því Islandsglíman er aðeins fyrir karla. Stjórn Glímusam- bandsins hefur því ákveðið að efna til sérstaks stórmóts fyrir konur um titilinn Glímudrottning Islands og verðlaunagripinn Freyjumenið. Eðlilega tók nokkurn tíma að koma upp nægilega stórum hópi góðra glímukvenna til að bera uppi stórmót af þessu tagi. Nú er sá hópur vaxinn úr grasi og því ekk- ert því til fyrirstöðu að láta til skarar skríða. Engu að síður var til öryggis ákveðið að kanna áhugann hjá konum I5 ára og eldri áður en farið var út í fram- kvæmdir Undirtektir voru væg- ast sagt góðar og gaman að segja frá því að ein af glímukonunum taldi að hún myndi verða komin í nægilega góða æfingu til að keppa á mótinu þremur mánuð- um eftir barnsburð." MOÍIa>(C>í>v; Jón M Ivarsson, formaður Glímu- sambands Islands. Gripum dagsetninguna á lofti Stjóm Glímusambandsins vildi tengja mótið við I9. júní. „Við gripum dagsetninguna á lofti enda um þónokkurt skref í jafn- réttisátt að ræða. Af því að dag- inn ber upp á mánudag íár verð- ur mótið hins vegar haldið degi fyrr eða sunnudaginn I8. júní. Allir eru velkomnir og verður mótið haldið í Iþróttahúsi Kenn- araháskóla íslands. Keppendur verða væntanlega um I0 og er búist við nokkuð harðri keppni. Konurnar eru orðnar hreint ágætar í glímunni enda sumar hverjar með allt að tíu ára æfingu að baki. Flestir keppendur eru frá HSK, HSÞ, Glímufélagi Dala- manna og Víkverja (í Reykjavi1<) og verður gaman að fylgjast með því hvaða kona stendur uppi sem Glímudrottning íslands og skartar Freyjumeninu i' fyrsta sinn." ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.