19. júní - 19.06.2000, Qupperneq 74
sem ætlunin er að koma á lagg-
irnar Nokkrir fundir hafa verið
haldnir hér á landi með þeim
innlendu aðilum sem auk KRFI
eiga aðild að verkefninu. Það
mun væntanlega skýrast frekar á
næsta starfsári hvað útúr þessu
samstarfi kemur en það mun án
efa verða KRFI til framdráttar
Afhending fundargerðabóka
KRFlá Kvennasögusafn
Eins og nærri má geta hafa safn-
ast upp miklar heimildir um KRFI
á þeirri tæpu öld sem félagið
hefur starfað. Þar á meðal eru
fundargerðabækur og reiknings-
bækur frá upphafi. Eins og þeir
sem til þekkja vita er ekki
aðstaða til þess á skrifstofu KRFI
að geyma þessi gögn þannig að
sómi sé að.Af þessu tilefni ákvað
stjórn KRFI á fundi sínum í sumar
að afhenda Kvennasögusafni
Islands þessar merku heimildir til
varðveislu. Þar munu gögnin fá
þá aðstöðu og meðhöndlun
sem þeim ber
Akveðið var að afhendingin
færi fram á kvennafrídaginn 24.
október og voru Kvennasögu-
safninu þá formlega afhentar
fundargerðabækur og önnur
gögnfrá 1907 til 1987.
Afhendingin fór fram við
virðulega athöfn í Þjóðarbók-
hlöðunni þar sem KRFI og
Kvennasögusafnið lögðust á eitt
um að gera þennan viðburð
glæsilegan og eftirminnilegan.
Sigríður Erlendsdóttir; sagnfræð-
ingur flutti fróðlegt og skemmti-
legt erindi um Önnu Sigurðar-
dóttur stofnanda Kvennasögu-
safnsins, Laufey Sigurðardóttir
afkomandi Bríetar Bjarnhéðins-
dóttur lék á fiðlu, flutt voru
erindí um Kvenréttindafélagið og
lesið úr fundargerðarbókunum.
Vel var mætt og samkoman
heppnaðist í alla staði prýðilega,
auk þess fékk viðburðurinn góða
umfjöllun í helstu fjölmiðlum.
Almennur félagsfundur
Almennur félagsfundur var hald-
inn 4. nóvember og var vel mætt
á hann af áhugasömum konum.
Þar kynnti Bríet, félag ungra fem-
74
ínista, einnig starfsemi sína, og
Gylfi Dalmann hjá fræðsludeild
VR sagði frá starfi félagsins í jafn-
réttismálum,
Fjöldi kvenna, m.a. allar
Bríetumar skráði sig í félagið á
þessum fundi og hefur gengið
vel á liðnu ári að fá nýtt blóð til
liðs við KRFÍ.
Jólafundur
Kvenréttindafélagið hélt sinn
árlega jólafund hinn 9. desember
í kjallara Hallveigarstaða. Fundur-
inn var með svipuðu sniði og
áður; skáldkonur voru fengnar til
að lesa úr bókum sínum, að
þessu sinni komu þær Þórunn
Valdimarsdóttir sem kynnti bók
sína Stúlka með fingur Hallgerð-
ur Gísladóttir sem kynnti bók
sína um íslenskar hefðir í matar-
gerð og Elísabet Jökulsdóttir sem
kynnti skáldsöguna Laufey. Séra
Guðný Hallgrímsdóttir flurtti jóla-
hugleiðingu, Jóna Einarsdóttir
spilaði á harmonikku og Soffía
okkar lék undir söng á píanó.
Bókahappdrættíð var á sínum
stað sem og auðvitað jólaglöggin
og góðgætið.
Ályktun
I desember sendi stjórn KRFI frá
sér viðamikla ályktun með vísan
til dóms Hæstaréttar Islands þar
sem maður var sýknaður af
ákæru um kynferðisafbrot gegn
dóttur sinni. Vakti KRFI máls á
ýmsum spurningum í ályktuninni
sem varða meðferð kynferðis-
brotamála hjá ákæru- og dóms-
valdi.
Kynjaveröld kynjanna
Ráðstefnan Kynjaveröld Kynj-
anna var haldin í Ráðhúsinu þann
22. janúar sl. og stóð ráðstefnan
kl. 13.-18. A ráðstefnunni var
fjallað um kynjaímyndir á breið-
um grundvelli. Páll Skúlason
háskólarektor flutti opnunar-
ávarp, félagar í Bríeti, félagi ungra
femínista fjölluðu um fegurðar-
ímyndir og þá sérstaklega út frá
nýju fegurðarsamkeppninni ung-
frú Island.is. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir; alþingismaður og
formaður nefndar um konur og
fjölmiðla, kynnti í fyrsta sinn nið-
urstöður könnunar sem nefndin
lét gera um hlut karla og kvenna
í íslenskum fjölmiðlum. Niður-
stöðurnar voru afar sláandi og
vöktu mikla athygli enda reyndist
hlutur kvenna í fjölmiðlum rýr
samanborið við hlut karla. Siv
Friðleifsdóttir flutti líflegt erindi
með yfirskriftinni Rauðir hælar
og rykfrakkar og fjallaði þar um
það að vera kona í pólitík,
Guðný Halldórsdóttir kvik-
myndagerðarmaður fjallaði um
sína reynslu úr atvinnulífinu og
séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
flutti lokaerindi ráðstefnunnar
sem var sannkölluð hugvekja. Öll
erindin voru hvert öðru betra
og aðsókn á ráðstefnuna fór
fram úr björtustu vonum, vel á
annað hundrað ráðstefnugesta
fylltuTjarnarsal ráðhússins og var
vart hægt að koma fleirum í sæti.
Að loknu kaffihléi tók við starf
vinnuhópa sem voru fjórir og
fjölluðu um fegurðarímyndir,
ímynd kynjanna í stjórnmálum,
ímynd kynjanna í atvinnulífinu og
ímynd kynjanna í fjölmiðlum. Afar
góð þátttaka var í vinnuhóp-
astarfi. Hátt í 20 voru starfandi í
hverjum hópi og að rúmum
klukkutíma liðnum fluttu stjórn-
endur vinnuhópa stutta tölu þar
sem umræður voru dregnar
saman og niðurstöðurnar kynnt-
ar
Ráðstefnan Kynjaveröld kynj-
anna mæltist afar vel fyrir og
vakti mjög mikla athygli, m.a. var
fjallað ítarlega um hana í opn-
ugrein í Morgunblaðinu og síðar
í leiðara blaðsins. Auk þess fóru
formaður KRFI og frummælend-
ur í fjölda útvarps- og sjónvarps-
viðtala. Þar að auki varð beinn
fjárhagslegur hagnaður af ráð-
stefnunni sem verða að teljast
töluverð og jákvæð tíðindi.
Mikil áhersla er á að fram-
kvæmdir og fundir standi undir
sér og framkvæmdastjórn hefur
skílað frábæru starfi í að halda
okkur við efnið í ráðdeildinni. Ný
framkvæmdastjóri KRFI, Kristín
Þóra Harðardóttir, hefur skipt
sköpum fyrir starfsemi félagsins
og breytt aurum í krónur á
undraverðan hátt og vill fram-
kvæmdastjórn þakka henni sér-
staklega frábært samstarf á liðnu
ári. Að þessu sinni hækkuðu
framlög til félagsins á fjárlögum
nokkuð og eru nú 800 þús. kr
Framundan í starfi KRFI eru
m.a. útgáfa 19. júní en svo vel
vildi til að sami ritstjóri og í fyrra,
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir.tók
blaðið að sér og hefur unnið að
undirbúningi þess siðan á haust-
dögum. Einnig eru fundahöld
vegna NOKS og Vestnorræna
ráðsins. Eitt viðamesta verkefnið
er þó undírbúningur að stofnun
samskiptanets og gagnagrunns
sem KRFI mun standa að auk
nefndar um aukinn hlut kvenna í
stjórnmálum, Skrifstofu jafnréttis-
mála, nefndar um konur og fjöl-
miðla, og Evrópuverkefni sem
ber yfirskriftina Kvennaefling í
þágu jafnréttis. Gert er ráð fyrir
að allir þessir aðilar vinni saman
að gagnabankanum, en starfs-
stöðin verði hjá KRFI.
Að lokum vil ég þakka fram-
kvæmda- og stórustjóm frábært
samstarf á liðnu ári. Það hefur
verið einstaklega kraftmikið, gef-
andi og skemmtilegt. Það verður
spennandi að takast á við ný
verkefni með þessum samhenta
flokki kvenna og af nógu er að
taka!
29. mars 2000
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
J