19. júní


19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 22

19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 22
Skotveiðileyfi á samkynhneigða Elísabet Þorgeirsdóttir, Baldur Þórhallsson og Svanfríöur Lárusdóttir eru samkynhneigð og eiga börn á aldrinum 5 til 22 ára. Þegar börnin hófu skólagöngu töldu þau nauð- synlegt að segja kennurum barnanna frá fjölskylduað- stæðum þeirra en af ólíkum ástæðum. Elísabet: Strákurinn minn byrjaði í skóla árið 1984. Þá var ekki svo mikil þekking á samkynhneigð í samfélaginu. Þess vegna var ákveðið öryggisatriði fyrir mig að segja kennurum hans að hann byggi í fjölskyldu þar sem væru tvær konur; þ.e. lesbíur Eg vildi að þær vissu það ef honum yrði strítt og gætu þá brugðist rétt við. En það gerðist reyndar ekki. 8aldur og Svanfríður höfðu minni áhyggjur af stríðni eða einelti. Þau vildu tryggja að fjölskylduhagir barna þeirra nytu jafnmikillar virð- ingar og annarra. Baldur: Það ætti auðvitað að vera inni í skólakerfinu að talað sé um allar gerðir fjölskyldna, ein- stæðar mæður, innflytjendur, samkynhneigða, blökkumenn eða hvað annað. Það verður að búa þannig að börnum að þau séu ekki hrædd við að tala um fjöl- skyldur sínar Orðið hommi er t.d. oft notað í neikvæðri merk- ingu. Mér finnst að uppalendum í skólum beri að grípa inn í og útskýra af hverju megi ekki tala svona. Fræðsla gegn fordómum Baldri, Elísabetu og Svanfríði finnst tímabært að auka almenna fræðslu um samkynhneigð í skól- um. Fræðslan þurfi að hefjast mun fyrr og vera ekki eingöngu hluti af kynlífsfræðslu. Þau segjast ekki þekkja dæmi þess að börnum þeirra hafi verið strítt vegna fjöl- skylduaðstæðna sinna. Baldur: Þegar strákurinn okkar var að byrja í skóla reif einhver af honum húfuna og kallaði í gríni: ,,Þú mátt ekki fá hana, þú ert hommi, þú ert hommi!" Hann sagði bara: ,,Nei, ég er ekki hommi, en pabbi minn er það!" Hinn varð svo hissa að hann bara rétti honum aftur húfuna. Þetta er ekkert flóknara en þetta. Svanfríður: Börnin á mfnu heimili, sem eru á skólaaldri, hafa sagt mér að þau tali ekki um þetta að fyrra bragði. Þau segja hins vegar „já" ef einhver spyr hvort mamma þeirra sé lesbía. Yfirleitt er sú umræða ekki lengri. Elísabet: Ég held þetta skipti börnin ekki öllu máli. Fyrir þau skiptir mestu að fá grundvallar- öryggi, þá líður þeim vel. Baldur: Maður er mest hræddur við hina fullorðnu, ekki börnin. I sjónvarpinu er t.d. ofsa- trúarfólk að ráðast á börnin okkar Það tekur engum rökum. Það veifar svokölluðum rann- sóknum frá bandarískum öfga- hópum sem segja allar rannsókn- ir óþarfar því allir viti að samkyn- hneigðir séu bæðí óalandi og óferjandi. Elísabet: Mér finnst skelfilegt að hópar ráðist fram með undir- skriftasöfnun gegn því að börn geti verið ættleitt af uppeldisfor- eldri - í skjólí þess að verið sé að hugsa um velferð barnanna. Þetta er mesta ógnin og í raun mikil þversögn. Þvi' meira sem þeir brjóta samkynhneigða niður þeim mun verr hlýtur börnum þeirra að líða. Þeir vinna því í raun algerlega gegn velferð barna. Fjölmiðlar skammist sín Þau segja að fordómar sem þessir geti valdið streitu og álagi meðal samkynhneigðra. Því telja þau best að koma hreint fram og gera börn- um sínum sem fyrst grein fyrir samkynhneigð foreldra sinna. Sú umræða geti auðveldað þeim að bregðast við hugsanlegri áreitni. Fjölmiðlar eru harðlega gagnrýndir fyrir ábyrgðarlausa umfjöllun um samkynhneigða. Baldur: Mér finnst að fjölmiðl- ar ættu hreinlega að skammast sín. Þeir hljóta að bera ábyrgð á því hvað sagt er á þeirra vett- vangi. Það hefur verið gefið skot- veiðileyfi á samkynhneigða. Fólki yrði aldrei leyft að tala svona um t.d. konun innflytjendur eða fatl- aða. Þeir hafa leitað eftir hana- slag en ekki upplýsingum eða fræðslu. Öll líta þau framtíðina björtum augum og segja viðhorf til samkyn- hneigðra hafa breyst mikið til batnaðar síðustu 20 til 30 árin. Baldur: Ég held að þessi börn hafi það gott í dag og muni hafa það enn betra í framtíðinni. Evr- ópskar og bandarískar kannanir sýna að fólk er sífellt að verða frjálslyndara. Æ smærri hópar viðhafa þessi rótgrónu, íhalds- sömu gildi eða vilja trúa á Bíbl- íuna sem lögbók. Elísabet: Við þurfum bara að vinna gegn fordómum. Þá líður foreldrunum betur og þar af leiðandi börnunum. Við skulum einnig vona að í framtíðinni verði samkynhneigðum leyft að frum- ættleiða börn og að lesbíur geti fengið tæknifrjóvgun eins og aðrar konur ■ Ingibjörg Ólafsdóttir, Elísabet Þorgeirsdóttir, Baldur Þórhallsson og Svanfríður Lárusdóttir með son sinn Jón Bjarna Óskarsson, 5 ára, í bókasafni Samtakanna '78. 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.