19. júní


19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 21

19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 21
mæður; sem eiga rétt á bótum úr almannatryggingum, sækja einnig síður rétt sinn vegna ótta við að draga athygli yfirvalda að stöðu sinni. Þorvaldur telur nauðsynlegt að Alþingi setji brátt í annað sinn á fót þingnefnd til að kanna stöðu samkynhneigðra. Sú fyrsta starfaði á árunum 1992-1994.1 Ijósi niður- stöðu hennar var lagt fram frum- varp til laga um staðfesta samvist og sett verndarákvæði í almenn hegningarlög. „Þessi nefnd þyrfti m.a. að gera úttekt á högum barna sem alast upp með sam- kynhneigðum foreldrum og koma með ábendingar um hvernig væri hægt að styðja við þau, einkum innan skólakerfisins. Dæmin sem ég hef í kringum mig sýna mér efnileg og tápmikil börn. Skýrsla Mamrna, Regína, Harpa og Eysteinn eiga saman ungan son á leik- skólaaldri. Þau eru öll samkyn- hneigð en Regína er líffræði- lega móðirin og fer með fullt forræði yfir drengnum. Harpa er kona Regínu og Eysteinn faðir barnsins. Þau segjast hafa fengið mun meiri stuðning og skitning á aðstæðum sínum bæði frá nánustu ættingjum og samfétaginu, en þau hafi nokkurn tíma gert ráð fyrir. Eysteinn: Okkur hefur kannski fundist óþægileg þessi ofurathygli frá ókunnugum, t.d. hringdu nokkrir blaðamenn daginn eftir fæðinguna. Regína: Við höfum samt aldrei fengið óviðeigandi athugasemdir Fjölskyldur okkar allra virðast líka hafa mikla aðlögunarhæfileika og hafa tekið bráðókunnugt fólk inn í fjölskylduna sem barnsmóður og barnsföðunt.d. eru góð tengsl á milli okkar og fjölskyldu Eysteins. Harpa: Ég veit samt að mamma átti svolítið erfitt með myndi leiða það í Ijós og svara andstæðingum okkar, einkum hinum kristilegu ofsatrúarflokkum sem sjá rautt við tilhugsunina um fjölskyldulíf okkar Um leið myndi slik skýrsla draga fram stöku erfið- leika sem börn samkynhneigðra kunna að eiga við að etja á Islandi og gera okkur kleift að takast á við það með fræðslu og umönnun," segir Þorvaldur. Fjölbreytt fjölskyldugerö Hvað er fjölskylda? Er fyrri eigin- maður mömmu minnar ennþá pabbi minn eða sá sem hún er gift núna? Er dóttir kærustunnar hans pabba systir mín? Þessar spurning- ar sem og fleiri brenna á vörum ungra barna í dag. Hinum hefð- bundnu fjölskyldum þar sem börn alast upp með bæði ,,móður- og föðurímynd" fer fækkandi. Þor- valdur vekur athygli á því að ekki kjósi allir að verða foreldrar ,,Líf án barna er líka jafn virðingarvert og líf með börnum. Sumir kjósa að beina kröftum sínum í aðrar áttir en til uppeldis," segir hann. „Grundvallaratriðið er að sam- kynhneigðir vilja hafa svipað fnelsi og aðrir til að velja sér foreldr- ahlutverkið og fá sama stuðning til að gegna því og aðrir foreldrar" Sex ára gamalt barn spunði eitt sinn skólasystkini sitt af hverju for- eldrar þess hefðu skilið: „Voru þau kannski alftaf að rífast?" „Nei, þau voru sko ekkert að rífast. Hann pabbi minn elskar bara karlmenn meira en konurj" svaraði bamið með áherslu. Fjölskyldur samkyn- hneigðra eru því enn ein fjölskyld- ugerðin í margbreytileika samfé- lagsins. Sumir pabbar elska karl- menn meira en konur og sumar mömmur elska konur meira en karlmenn. Nauðsynlegt er að börn fái að bera höfuðið hátt og vera stolt af sínum fjölskyldum - hversu ólíkar sem þær kunna að vera. ■ Helstu heimildir: The Lives ofLesbians, Gays and Bisexuals: Children to Adults. Ritch C. Savin-Willi- ams, Kenneth M. Cohen. Cornell Universrty. Children of Lesbian and Gay Parents, Charlotte J. Patterson, University of Virginia, í CHILD DEVELOPMENT, 1992, 63: 1025-1042 Wilton, Tamsin. 1997. Good For You: A Hondbook on Lesbian Health and Well- being, Casell: London and Washington mamma Harpa og pabbi að skilja þetta, hvernig hægt væri að búa til barn án þess að sofa saman. Maður þarf oft að gefa fólki tíma til að átta sig á þessu og hugsa málið. Þrír foreldrar Þau teggja mikla áherslu á að þau séu ött þrjú foretdrar barnsins en þeim finnst miður að Harpa eigi engan kost á því að skrá sig sem foreldri eða ábyrgðaraðiti. Harpa: Kerfið býður ekki upp á fleiri foreldra. Eysteinn verður alltaf faðir stráksins og mun aldrei afsala sér sínum réttindum. Við myndum heldur aldrei ætlast til þess. En ef eitthvað kæmi fyrir hann og Regínu ættu foreldrar þeirra meiri rétt gagnvart barn- inu en ég. Þó tala fjölskyldur okkar allra einnig um mig sem móður drengsins. Regína: Við höfum ekki gert formlegan samning okkar á milli um umgengni við barnið. Sam- skiptin hafa gengið algjörlega vandræðalaust fyrir sig hingað til. Það hafa aldrei komið upp ágreiningsmál varðandi uppeldið. Það er örugglega ekki síst vegna þess að við erum svo góðir vinir og ákveðin í að láta þetta ganga. Eysteinn: Auðvitað getur alltaf eitthvað ófyrirsjáanlegt komið upp á.Við gerðum eina varúðar- ráðstöfun um að ég myndi alltaf borga meðlag. Hans hagur er því tryggður ef ástandið skyldi versna. En við vonum auðvitað að þetta gangi. Harpa: Okkur finnst líka sjálf- sagt mál að við myndum til dæmis aldrei flytjast til útlanda nema taka bara Eystein með okkur þangað. Annars værum við að ganga á rétt barnsins. Ymislegt spaugilegt hefur komið upp á, t.d. byrjaði hjúkrunarkon- an frá mæðraskoðuninni á að senda mig fram í eldhús. Hún hélt að við værum einhverjar vinkonur sem byggjum saman. Fólk virðist ekki átta strax sig á þessum fjölskylduaðstæðum. Ekki skyndiákvörðun Ákvörðun þeirra um að eignast barn saman var ekki tekin í fjót- færni. Þau undirbjuggu sig með lestri bóka og af Netinu um reynslu annarra. Nokkur ár liðu frá því að þau ákváðu að eignast saman barn þar til sonur þeirra fæddist. Harpa á annan son á tví- tugsaldri. Harpa: Ég hef líka verið ein- stæð móðir og alið upp dreng sem hafði engin samskipti við föður sinn. Ég get ekki lýst basl- inu á þeim tíma. Þetta er allt annað. Nú eru fleiri foreldrar og fleiri afar og ömmur Það er hægt að gefa barninu meiri tíma og deila ábyrgðinni. Fyrir utan hvað þetta er miklu skemmti- legra. Þau telja að reynsla þeirra og annarra í sömu stöðu hafi leitt til opnari umræðu um barneignir meðal samkynhneigðra. Umræða í fjölmiðlum um þau mál fer hins vegar oft í taugarnar á þeim. Eysteinn: Mér finnst eins og verið sé að spyrja fólk hvort það sé í lagi þeirra vegna að samkyn- hneigðir ættleiði eða eigi börn. Enginn er að spyrja um leyfi.Við eigum og höfum alltaf átt börn. Regína: Hjá okkur er jafnvel inni i' myndinni að endurtaka leikinn. Eiginlega stendur helst á mér; þar sem ég er enn í námi. En það væri mjög gott ef hann eign- aðist fleiri systkini. ■ 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.