19. júní


19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 72

19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 72
Skýrsla formanns 1999 til 2000 Ný framkvæmdastjórn tók við að loknu stjórnarkjöri á landsfundi Kvenréttindafélagsins í mars I999. Sigríður Lillý Baldursdóttir; Kristín Einarsdóttir; og Elín Sigurð- ardóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn. I aðal- stjórn var kosin Aslaug Dóra Eyj- ólfsdóttir og í varastjórn voru kosnar Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Ásdís Þrá Höskuldsdóttir og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir Nýja framkvæmdastjórnin skipti þannig með sér verkum að loknum aðal- fundi: Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir; for- maður, Hólmfríður Sveinsdóttir, varaformaður Ólafía B. Rafns- dóttír, gjaldkeri, Guðný Hall- grímsdóttir, ritari, Ragnhildur Guðmundsdóttir, meðstjórnandi, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Ásdís Þrá Þórhallsdóttir og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir skipa vara- stjórn. Framkvæmdastjórn hafði sama hátt á og áður varðandi funda- tíðni. Yfir sumarið voru reglulegir fundir mun færri en yfir vetrar- tímann. Fundir réðust nokkuð af verkefnum og voru tíðir þegar mikið stóð til en strjálli þess á milli. Við höfum þó haldið þeírri meginreglu að framkvæmda- stjórnarfundir eru hálfsmánaðar- lega og haldnir hafa verið átján formlegir framkvæmdastjórnar- fundir auk fjölda óformlegra vinnufunda. Einnig hefur tæknin auðveldað öll samskipti, fram- kvæmdastjórnarkonur eru allar tölvu- og netvæddar; svo það hefur sparað okkur mörg sporin að ræða málin með tölvupósti. Stórustjórnarfundir hafa verið haldnir mánaðarlega yfir vetrar- mánuðina, þó þannig að þegar félagið hefur staðið fyrir opnum fundi hefur stórustjórnarfundur verið felldur niðun Haldnir hafa verið sex stórustjórnarfundir og út komu sex fréttabréf. 19. júní Þegar ný framkvæmdastjórn tók við á vordögum 1999 beið það verkefni að finna ritstjóra að I9. júní. Eins og flestum er kunnugt hafði blaðið ekki komið út árið áðurVel gekk þó að finna góðan ritstjóra sem var Anna Gunnhild- ur Olafsdóttir; reyndur blaða- maður af Morgunblaðinu sem var nýkomin í fæðingarorlof og hafði þar af leiðandi ekkert að gera! Hún tók þetta erfiða verk- efni að sér af miklum krafti, setti á stuttum tíma saman öfluga rit- stjórn sem var tilbúin að vinna af hugsjón fyrir Kvenréttindafélagið og veglegt ársrit Kvenréttinda- félagsins árið I999 skartaði glæsilegum hópi þingkvenna á forsíðu með yfirskriftinni Gegn- um glerþakið! enda komust konur á þingi í fyrsta sinn í gegn- um svokallað glerþak í kosning- um sl. vor þegar þær náðu þvi' marki að eiga yfir 30 % hlutdeild í þingmannahópnum. Blaðið mæltist vel fyrir og fékk mikla umfjöllun í fjölmiðlum, m.a. í Morgunblaðinu og fréttatíma Sjónvarpsins. Þar sem I9. júnf bar uppá laugardag og þar sem kvenna- hlaupið var haldið sama dag um land allt ákvað framkvæmda- stjórnin að standa fyrir öflugu söluátaki á blaðinu eins víða og því var komið við. Sveitar- stjórnarkonum um allt land var sent bréf og þeim boðið að selja I9. júní í tengslum við kvennahlaupið. Þessi bón okkar hlaut góðar viðtökur og er hér kominn góður grunnur að tengslaneti sem nær yfir allt landið og stuðlar að öflugri dreifingu I9. júnf Stærsta og fjölmennasta hlaupið var sam- kvæmt venju í Garðabænum og fékk KRFI að vera með bás þar til að selja blaðið og einnig í Fjölskyldugarðinum í Laugardal þar sem starfsmönnum borgar- innar var boðið á fjölskyldu- skemmtun þennan sama dag. Salan á blaðinu gekk vel og er sala KRFI á 19. júní í tengslum við kvennahlaupið farin að skila þeim árangri að konur taka með sér peninga í hlaupið til að kaupa blaðið og telja það hluta af deginum. Má geta þess að lausasala varð að þessu sinni töluvert meiri en áður og vænt- um við góðs af útkomunni nú í ár Kvenréttindafélagið stóð ásamt Kvennakirkjunni og Kven- félagasambandinu fyrir messu við þvottalaugarnar i' Laugardal þann 19. júní. Guðný Hallgríms- dóttir og Ólafía B. Rafnsdóttir voru fulltrúar okkar í undirbún- ingsnefnd vegna messunnar sem fór fram með miklum ágætum. Dóms- og kirkjumálaráðherra, Sólveig Pétursdóttir flutti ávarp í kvennamessunni og var það eitt af hennar fyrstu verkum i' embætti. Séra Auður Eir predik- aði, Ólafía B. Rafnsdóttir bauð viðstadda velkomna og séra Guðný Hallgrímsdóttir var ein þeirra sem tóku þátt í messunni. Womens Worlds Kvenréttindafélagið tók þátt í alþjóðlegu kvennaráðstefnunni „Womens Worlds" sem fór fram íTrömsö í Noregi 20. - 26. júní á síðasta ári. Ráðstefnuna sóttu þúsundir kvenna allsstaðar að úr heiminum en þar var viðamikil dagskrá í gangi alla dagana á fjölmörgum stöðum í einu. Á ráðstefnunni var sér- staklega fjallað um sérstöðu Norðurlandanna, viðhorf í norðri og suðri og fjölbreytta menningu. Kvenréttindafélaginu var boðið að vera þáttakandi í svo- kölluðu „Nordic House" eða Norrænu húsi þar sem um 30 aðilar frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsri1<junum kynntu sig og starfsemi sína. Formaður Kvenréttindafélagsins hélt til Norður-Noregs hlaðinn upplýsingabæklingum, spjöldum, 19. júní blöðum og annarri útgáfu okkar og stillti upp á borði Kvenréttindafélagsins sem stóð alla ráðstefnudagana og var mikill straumur fólks um svæðið. NOKS Á sama tíma og ráðstefnan „Womens Worlds" stóð yfir var haldinn í Tromsö stofnfundur Norrænna samtaka kvenrétt- indafélaga „Nordiske Kvinne- organisasjoner i Samarbejde" eða NOKS og var KRFI boðið að að vera fulltrúi íslands í þess- um samtökum. Norræna ráð- herranefndin styrkir samtökin til að hittast tvisvar á ári og var á stofnfundinum ákveðið að halda fýrsta fund samtakanna á Islandi þá um haustið í tengslum við ráðstefnuna Konur og lýðræði. Aðilar samtakanna eru auk KRFI; Dansk Kvinderád, sem eru dönsk regnhlífarsamtök, SAMS, sænsk regnhlífarsamtök, Nytkis, finnsk regnhlífarsamtök og Kvenrétt- indafélag Noregs. Fundurinn á Islandi var haldinn 7. október og tókst með miklum ágætum. Hingað komu 10 konur frá aðildarfélögum samtakanna. Fundað var stíft um morguninn og rætt framtíðarstarf samtak- anna sem hyggjast beita sér fyrir öflugri umræðu á hinum ýmsu sviðum kvennabaráttunnar Eftir frískandi ferð í Bláa lónið í hádeginu var fundað fram á kvöld og ákveðið að næsti fund- ur samtakanna yrði haldinn í Kaupmannahöfn í maí og þar yrðu tekin fyrirtvö þemu, annars vegar ofbeldi gegn konum og hins vegar ungar konur og kvennabaráttan. Þegar er búið að boða fundinn sem verður haldinn 5.-7. maí í Kaupmanna- höfn. Kvennaráðstefna í Færeyjum I júní á síðasta ári stóð Vestnor- ræna ráðið fyrir kvennaráðstefnu (kvindepolitisk værksted) í Fær- eyjum en Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur þjóðþinga Islands, Færeyja og Grænlands. I 72
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.