19. júní


19. júní - 19.06.2000, Page 10

19. júní - 19.06.2000, Page 10
 Natasa Babic-Friðgeirsson ásamt syni sínum David Kalendaric-Babic. þeirra heimilistækja sem léttu undir með konum áVesturlönd- um. Yngri dóttir hennar var oft veik í æsku og þurfti mikla aðhlynningu og yngsta barnið, sonurinn, var það sem í dag heit- ir ofvirkur en á sjötta áratugnum var hann óþekktarpjakkur sem var til vandræða hvern einasta dag. Amma mín glímdi við þessi vandamál sem mest hún mátti þrátt fyrir eigin vankunnáttu og vanþekkingu samfélagsins. Ekki var mikill stuðningur af eigin- manni hennar, - sannarlega góður maður en greip gjarnan til flöskunnar í baráttunni við eigin djöfla. Amma varð, eftir því sem árin liðu, ekki lengur hin unga og ákveðna kona sem lét ekki bjóða sér hvað sem var. Hún hætti að lifa fyrir sig en fór að lifa fyrir sína. Þegar dóttir hennar, móðir mín, byrjaði á sinni röð skilnaða og barneigna utan hjónabands, - sem í þá daga var fátítt, bauð amma fram aðstoð sína. Hún tók að sér uppeldi barnabarnanna á meðan elsta dóttir hennar var við nám annars staðar í landinu. *** Oll þessi ár naut amma mi'n þeirrar blessunar að vera heilsu- hraust. Og þegar allt var að falla í skorður börnin orðin sjálfstæð, hún sjálf að komast á eftirlaun til að hafa það náðugt á ævikveldi eftir annasaman dag, - þá hrynur veröld hennar Landið, bærinn og garðurinn hverfa á svipstundu. Eina nótt í maí 1992 synti amma mi'n, þá 67 ára, yfir ána sem skipt- ir heimabænum í tvennt. Hún flúði brennandi hús sitt. Á árbakkanum hinu megin stóð hún allslaus; engir peningar engin skilríki, engar gamlar myndir - ekkert sem minnti hana á liðna daga. Það eina sem hún átti var litli litríki kjóllinn - rennblautur Það er ógerningur að gera sér í hugarlund hvernig það er að missa allt á efri árum. Amma mi'n var þó í hópi þeirra heppnu, - enginn hennar afkomenda féll í stríðinu og hún gat búið í sumar- húsi dótturinnar skammt frá og slapp því við niðurlægingu flótta- mannabúðanna. I þau ár sem stríð geisaði á milli Króata og múslima lögðust þungt á hana þversagnir mannlegrar gæsku, því það voru króatískir nágrannar sem hugsuðu um hana. Hún hafði jarðsett eiginmann sinn á fyrsta degi átakanna í múslimska hluta hins tvískipta bæjar Á þeim tíma máttu einungis konurganga á milli bæjarhluta, - enn ein áminning þess að vart er til sú kynslóð balkanskra kvenna sem hefur ekki syrgt syni eða eiginmenn sem fall- ið hafa í einhverju stríðinu. *** I dag býr amma mín enn á ný í Mostar Þar sem þversagnir virð- ast okkar traustustu fylgifiskar þá kemur það tæpast á óvart að þessi gamla múslimakona býr í króatíska hluta bæjarins. Það tekur hana tíu mínútur að ganga til ættingja sinna í múslimska hlutanum og á þeirri leið er brú yfir ána sem hún henti sér í fýrir nokkrum árum. Stundum er það jafnvel svo að þegar amma fer yfir brúna gengur hún inn í annað tímabelti því stjórnvöld á þessum slóðum undirstrika sjálf- stæði og fara eigin leiðir með breytinguna yfir í sumartíma. Líf- eyrir ömmu minnar er sem nemur 10 þúsund krónum á mánuði og hann fær hún úr þýskum stríðsbótasjóði, German Generation Solidarity Fund. Þessir fjármunir duga henni fyrir brýnustu þörfum. „Skrítið," - segir amma mín. „Ég sem barðist gegn Þjóðverjum fyrir nærri sex- tíu árum og svo reynast þeir þetta ágætasta fólk." Svo hlær hún að sjálfri sér og fer út og gefur flækingsköttunum að éta. Að sjálfsögðu klæðist hún einum af þessum einföldu litríku kjólum sem kosta lítið og krefjast einskis. Þegar ég fylgist með henni ömmu minni tala við dýrin, finn ég til ólýsanlegrar gleði vegna þeirra forréttinda að hafa fengið að kynnast græskulausri og góð- hjartaðri manneskju sem alltaf rís á fætur við hvert fall, fæðir hina lifandi og grefur hina látnu, - elskar ástarinnar vegna og æskir einskis í staðinn. ■ 10

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.