19. júní


19. júní - 19.06.2000, Síða 11

19. júní - 19.06.2000, Síða 11
Konur, virkjum krafta okkar! Verkefninu AUÐUR í krafti kvenna er ætlað að auka hag- vöxt fslands í gegnum aukna þátttöku kvenna í atvinnu- sköpun. Halla Tómasdóttir framkvæmdastjóri og Þór- anna Jónsdóttir verkefnis- stjóri eru sannfærðar um að verkefnið eigi eftir að skila sér í fjölgun fyrirtækja í eigu kvenna. Fyrir rösku ári veitti stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins (NSA) því athygli að afar lítill hluti umsókna til sjóðsins kom frá konum, eða aðeins um 13%. Við nánari skoðun kom enn- fremur í Ijós að fjárhæðirnar sem konur leituðu eftir voru nær undantekningarlaust miklu lægri en þær fjárhæðir sem karlar ósk- uðu eftir. Þessar staðreyndir urðu til þess að stjórn NSA ákvað að fela stjórnarkonu sinni, Guðrúnu Pétursdóttun að kynna sér málið betur og koma með tillögurtil úrbóta. Guðrún fékktil liðs við sig þær Guðfinnu S. Bjarnadóttur og Höllu Tómas- dóttur frá Háskólanum í Reykja- viT. Á Islandi eru um 18% fyrir- tækja í eigu kvenna. Til saman- burðar má geta þess að í lönd- um Evrópusambandsins eiga konur á bilinu 25-33% fyrirtækja og í Bandankjunum eru fyrirtæki í eigu kvenna nær 40%. Þessar staðreyndir og sú staðreynd að konur eru í mun minna mæli að leita eftir fjármagni til atvinnu- reksturs gefa til kynna að íslensk- ar konur séu almennt ekki að virkja krafta sína til atvinnusköp- unar nægilega vel. Fyrir vikið fer atvinnulífið á mis við sköpunar- kraft þeirra og hjól hagkerfisins sem konur gætu fengið til að skapa verðmæti snúast hægan Nýleg rannsókn um nýsköpun sem náði til 10 landa (Bandarík- in, Kanada, Japan, Italía, Þýskaland, Frakkland, Bretland, Israel, Finn- land og Danmörk) sýndi fram á að í þessum löndum mátti rekja 36% hagvaxtar til nýsköpunar. Ennfremur er tekið fram í rann- sóknarskýrslunni að auðveldasta og fljótlegasta leiðin til að fjölga nýjum fyrirtækjum sé að virkja konur til nýsköpunar og að markvisst heildarátak í fræðslu fyrir frumkvöðla sé öruggasta leiðin til að skapa árangursrík fyrirtæki. Hvar er kraftur kvenna? En hvers vegna eru konur ekki virkari í atvinnusköpun? Af hverju sækja þær í minna mæli eftir fjár- magni til nýsköpunar í atvinnuli'fi og af hverju eru þær svona lítil- látar varðandi fjármagnið? Ýmsar alþjóðlegar kannanir og rann- sóknir hafa sýnt að í mörgum til- fellum nefna konur skort á þekk- ingu á fjármálum og rekstri sem helstu ástæðuna fyrir því að þær veigra sér við að fara út í rekst- ur Hér á Islandi er menntunar- stig kvenna með því hæsta sem þekkist. Á árunum 1995-1998 ► (íuUkistati Sérverslun með kvensilfur Bjóðum eldri munsturgerðir Onnumst allar viðgerðir, hreinsun og gyllingar. Allar upplýsingar um hefð og gerðir búninga eru veittar á staðnum. (fíuUkislan Frakkastíg 10 - Sími: 551 3160 ffirkonur semvilja kláastvel

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.