19. júní - 19.06.2000, Qupperneq 12
Kreppan
og karlmennskan
voru konur ríflega 58% þeirra
sem útskrifuðust úr háskólanámi.
Samt sem áður virðast íslenskar
konur í of miklum mæli skorta
sjálfstraust til að taka þá áhættu
að fara út í eigin rekstur, sem þó
gæti skilað þeim arðbæru fyrir-
tæki og áhugaverðum starfs-
frama.
AUÐUR í krafti kvenna
Verkefninu AUÐUR í krafti
kvenna, er ætlað mikilvægt hlut-
verk - að auka hagvöxt Islands í
gegnum aukna þátttöku kvenna í
atvinnusköpun. Verkefnið byggir
á sex þáttum, sem öllum er
ætlað að fjölga konum í atvinnu-
rekstri. Verkefnið snýst fyrst og
fremst um að auka þekkingu og
hæfni þátttakenda. Það er trú
okkar að AUÐUR muni skila sér
í auknu sjálfstrausti íslenskra
kvenna gagnvart atvinnurekstri.
Það, ásamt myndun tengslaneta
og fjölgun fyrirmynda, mun án
efa skila sér í fjölgun fyrirtækja í
eigu kvenna.
Þau eru enn ekki mörg löndin
sem hafa markvisst gripið til
aðgerða til að hvetja til nýsköp-
unar kvenna. Þó má sjá mikinn
árangur þar sem slíkt hefur verið
gert, t.d. í Bandaríkjunum, en
hvergi eiga konur hlutfallslega
fleiri fyrirtæki en þar Bandarísk-
um fýrirtækjum í eigu kvenna
fjölgar tvisvar sinnum hraðar en
öðrum fyrirtækjum í Bandaríkj-
unum og rannsóknir þar í landi
hafa sýnt að fyrirtæki kvenna lifa
einnig lengur
Við lifum á tfmum mikilla og
hraðra breytinga. Slíkum tímum
fylgja mörg tækifæri. Er ekki
kominn tími til þess að við konur
nýtum þau tækifæri okkur sjálf-
um og þjóðinni til framdráttar?
Allar nánari upplýsingar um
AUÐAR verkefnið má finna á vef-
si'ðu AUÐAR, www.ru.is/audur ■
Lengi vel reið ekki við ein-
teyming hvernig reynt var að
halda aftur af viðhorfsbreyt-
ingum í tengslum við ætlaða
eiginleika kynjanna. Ingólfur
V. Gíslason gagnrýnir hvaða
ímynd er dregin upp af karl-
mönnum í nútímasamfélagi.
Á hinn bóginn telur hann
enga ástæðu til svartsýni. Ný
kynslóð spjari sig ágætlega í
breyttum heimi.
Við upphaf 20. aldar fór smátt
og smátt að fjölga þeim konum
sem sóttu sér menntun eða
gerðu að minnsta kosti tilraun
til þess. Oft var við ramman
reip að draga. Margir karlar
töldu þetta hreinasta óþarfa og
vitleysu, ekki hefðu verðandi
húsmæður mikið við menntun
að gera. Og þeir voru líka til
sem einfaldlega vildu vernda
konurnar fyrir skaðlegum áhrif-
um menntunar Menn veittu því
sem sagt athygli að svo virtist
sem menntaðar konur eignuð-
ust færri börn en hinar
ómenntuðu. Þvi' var varpað
fram sem hugsanlegri skýringu
á þessu einkennilega fyrirbæri
að ef konur menntuðu sig þá
þyngdist heili þeirra og til þess
að viðhalda jafnvægi Ii1<amans
myndi á móti koma að móður-
lífið minnkaði. Og eins og einn
spekingurinn orðaði það þá var
stærsta hættan í samtímanum
að ,,þvinga greind konu yfir það
stig sem líkami hennar ræður
við."
Bábiljur á báða bóga
Mörgum áratugum síðar skall
kynlífsbyltingin yfir. Þá fór það
að koma upp á yfirborðið að
fyrir kæmi að körlum risi ekki
hold þótt allar aðstæður væru
þannig að slfkt ætti að gerast.
Eða þá að stinningin yrði ekki
nægjanleg. Ekki var langt í
skýringu. Lærðar greinar voru
skrifaðar um það að ástæðan
væri framsókn kvenna sem
gerði það verkum að karlar
væru óöruggir um stöðu sína
og rétta hegðun og gætu þar af
leiðandi ekkí náð honum upp.
Það tók langan tíma að koma
því inn í umræðuna að trúlega
hefði þetta vandamál alltaf
verið til staðar en aukið frelsi í
umræðu loks gert það mögu-
legt að ræða um málið.
Með reglulegu millibili sitjum
við uppi með „umræður" um
að eitthvað í breyttri stöðu
kynjanna hafi það í för með sér
að líffræðilegri gerð okkar stafi
ógn af eða að minnsta kosti sé
margt sem bendi til að flest
stefni á heita staðinn. Núna
kemur t.d. varla út glanstímarit
án þess að einhver þurfi þar að
tjá sig um „kreppu karlmennsk-
unnarí'. Karlar séu áttavilltir
vegna sterkrar stöðu kvenna í
dag, viti ekki hvernig þeir eigi að
haga sér og geti ekki tekist á við
sterkar og sjálfstæðar konur
Voðinn vís!
Lítið þýðir að benda á þær
staðreyndir að þrátt fyrir allar
þessar miklu breytingar á stöðu
kynjanna þá haldi fólk áfram að
rugla saman reitum, eignast
börn og lifa tiltölulega eðlilegu
Iffi. Raunar finnst manni á stund-
um sem hér hafi hæst annars
vegar þær sem telja sig þurfa að
afsaka slakt gengi á hjónabands-
markaðnum og grípa til þess að
halda þvf fram að karlar ráði
einfaldlega ekki við samskipti
við sterkar nútfmakonur Hins
vegar þeir sem gráta horfna
tfma hvað varðar samskipti
kynjanna og vilja snúa aftur til
þess þegar karlar voru (eða
töldu sig vera) húsbændur á »
eigin heimili.
ímyndin gengur ekki upp
Auðvitað er karlmennskan í
kreppu. Hún hefur verið í
kreppu frá upphafi, því hún er
ekki annað en tilbúningur,
fmyndun sem ekki passar við
nokkra lifandi manneskju. Menn
geta raðað upp ákveðnum eig-
inleikum og sagt að þetta sé
karlmennska. Hins vegar er
enginn líffræðilegur karl hold-
tekja þessara eiginleika. Væri
svo hefðum við með vélmenni
að gera en ekki lifandi veru
sem hugsan veltir fyrir sér, tekur
við áreiti frá umhverfinu, mótar
og skapar eigin tilveru.
Hitt er svo annað mál að það
er visst áhyggjuefni hversu sjálf-
sagt og eðlilegt það er orðið að i
setja karla upp sem fábjána í
almennum skemmtanaiðnaði
og menningu. Það er áhyggju-
efni m.a. sökum þeirra áhrifa
sem það kann að hafa á viljann
til að ráða karla f umönnunar-
I2