19. júní - 19.06.2000, Síða 19
'sjj&T
III1 .,, r . *. 11» '
illlll •iiJlíiíii iii
Hinsegin fjölskyldur
Lesbía og móðir. Hommi og faðir. Þessi hlutverk virðast kannski
útiloka hvort annað en samkynhneigðir foreldrar hafa verið til
frá upphafi vega. Um allan heim alast milljónir barna upp hjá
hommum og lesbíum. Langflest eru fædd í fyrri samböndum
þeirra við gagnkynhneigða. Ingibjörg Ólafsdóttir segir frá því
að sífellt fleiri samkynhneigð pör kjósi að eignast barn saman.
Ef miðað er við erlendar forsendur um fjölda samkynhneigðra
foreldra er hægt að áætla að á bilinu 458 til 624 börn alist upp
hjá samkynhneigðum á íslandi eins og fram kom á fundi um
réttindi samkynhneigðra foreldra og barna þeirra í Háskóla
íslands á síðasta ári.
Lesbíur leita í auknum mæli eftir
gjafasæði frá gagn- eða samkyn-
hneigðum körlum. Þorvaldur
Kristinsson, formaður Samtak-
anna 78, segir að fáein íslensk
börn hafi orðið til með þeim
hætti. ,,Eg er viss um að fleiri
eiga eftir að fara að fordæmi
þessa fólks. Hins vegar verður
að hafa í huga hvað tilhugsunin
er ný fyrir mörgum. Margt sam-
kynhneigt fólk er nú fyrst að
átta sig á að réttur þess til lífsins
er sá sami og annarra, þ.m.t.
rétturinn til barneigna," segir
Þorvaldur.
Barneignir samkynhneigðra
verða að byggjast á samkomu-
lagi og trausti á milli tveggja til
fjögurra einstaklinga. Hverjar eru
skyldur, ábyrgð og hlutverk
hvers og eins? ,,Eg held að
íslenskir hommar séu að ganga í
gegnum mikið breytingaskeið
núna þegar spurt er um réttinn
til lífsins," segir Þorvaldur.
„Margir þrá að láta drauminn
um eigið barn verða að veru-
leika en hika samt við að geta
börn. Eins og ég sagði áðan er
tilhugsunin svo ný. Hinu er ekki
að leyna að dæmin sýna að slíkt
uppeldi gengur mjög vel. Sam-
kynhneigðir eru upp til hópa svo
meðvitaðir um ábyrgðina."
Hann segir að mörgu leyti
flóknara mál þegar gagnkyn-
hneigðir gefa lesbíum sæði og að
til þess þurfi mjög sérstaka karl-
menn. „Þeir fara líklega síðar eigin
leið og stofna eigin fjölsl<yldur Þá
eru þeir kannski ekki í stakk búnir
að sinna og bera ábyrgð á því
bami sem þeir hafa getið með
samkynhneigðri konu. Hommar
finna aftur á móti til sterkrar
ábyrgðar í sfiku sambandi. Þeir
hommar sem ég kannast við og
hafa eignast börn með lesbíum -
eða ætla sér það - hafa undan-
tekningarlaust ábyrgst uppeldi og
þroska barnsins með barnsmóð-
ur sinni. Samkynhneigðir karl-
menn taka yfirleitt mjög óstinnt
upp þegar þeir heyra að einhver
hafi áhuga á þeim sem sæðisgjöf-
um en vilji ekki vita af þeim
meira."
Aðrir möguleikar til barn-
eigna
Samkynhneigðir geta ekki leitað
eftir tæknifrjóvgunum samkvæmt
hjúskaparlögum samkynhneigðra,
þ.e. lögum um staðfesta samvist
frá árinu 1996. Sú ákvörðun er
rökstudd með því að börnum sé
fýrir bestu að eiga sér bæði föð-
ur-og móðurímynd. Á hinn bóg-
inn varð Island annað landið í
heiminum, á eftir Danmörku, til
að leyfa stjúpættleiðingar sam-
kynhneigðra með lögum frá
Alþingi hinn 8. mai' síðastliðinn.
Stjúpættleiðingar eiga helst við^
19