19. júní - 19.06.2000, Qupperneq 32
Játningar
sundra hugsanlegri samstöðu
kvenna. „Konur eru konum ekkert
verri en karlar eru körlum," segir
Kristín Marja Baldursdóttir hins
vegar í samtali við Morgunblaðið
hinn 23. október 1998 og bendir
á að þegar á reyni standi konur
saman, þær skilji að það þurfi að
standa vörð um heimili og böm
og alftaf þegar einhverjir erfiðleikar
steðji að séu það konurnar sem
tjasli manni saman. „Þess vegna er
þetta ósvífin klisja og örugglega
ekki uppfundin af konu," segir hún.
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri
talar á svipuðum nótum í samtali
við Morgunblaðið hinn 10. apríl
árið 1994, en þar segir hún að
konur séu konum góðar en að
þær kunni ef til vill ekki að standa
saman. „Þessi klisja um að konur
séu konum verstar er eitthvað
sem karlmenn hafa búið til."
Jóhanna María Eyjólfsdóttir;
aðstoðarmaður menntamála-
ráðherra, kveðst almennt þeirrar
skoðunar að ekki eigi að nálgast
kynin; karla og konur sem tvo
andstæða hópa heldur sem
einstaklinga sem geti verið ólíkir
hver á sinn hátt. En þrátt fyrir
þessa skoðun sína segist Jóhanna
María eiga mjög erfitt með að
vera ósammála staðhæfingunni
um að konur séu konum verstar
Hún segir að í störfum sínum í
gegnum tíðina, í félagsmálum,
stjórnmálum og á hinum almenna
vinnumarkaði, hafi hún getað
fundið alltof mörg dæmi þess að
konur komi öðruvísi fram við
kynsystur sína en karla. „Almennt
séð hefur mér fundist sem konur
hafi mun meiri tilhneigingu til að
draga tilfinningar sínar inn í sam-
skipti sín við annað fólk ólíkt því
sem karlar virðast gera. Þetta leiðir
oft til þess að konur verða
óvægnari í samskiptum sínum við
aðrar konur en karla sérstaklega
ef þær starfa á sama vettvangi."
Jóhanna María kveðst sjálf hafa
fundið fyrir því sem hún kallar
togstreitu annarra kvenna í sinn
garð bæði í persónulegum sam-
skiptum sem og í samskiptum á
vinnustað. „Eg hef til að mynda
upplifað það að vera lögð í einelti
á vinnustað af hendi annarrar
konu sem sennilega hefur talið að
ég væri keppinautur hennar og
stæði því í vegi fyrir möguleikum
hennar á frekari frama. I þessu
tilviki voru notaðar heldur
óprúttnar aðferðir sem áttu að
gera stöðu mína á vinnustaðnum
tortryggilega og það hefði tekist
ef ég hefði ekki gengið mjög hart
fram í þeim tilgangi að hreinsa
mannorð mitt."
Jóhanna María segir að karl-
menn séu vissulega oft á tíðum í
mikilli samkeppni sín í milli en
telur að þeir nálgist þá
samkeppni á annan hátt en
konur Þeir berjist af hörku en
gæti þess frekar en konur að fara
ekki á mjög persónulegar nótur í
sfnum samskiptum. Konurnar á
hinn bóginn gangi lengra eins og
ofangreint dæmi sýni og víli það
ekki fyrir sér að fara á
persónulegu nóturnar í þeim
tilgangi að hafa betur í
samkeppninni. „Margar konur
eru mér eflaust ósammála í
þessu efni en ég tala út frá eigin
reynslu og stend fast á þessari
skoðun minni," segir Jóhanna
María en vill að það komi skýrt
fram að vissulega hafi hún átt
gott samstarf við konur „Það
hefur þó verið í þeim tilfellum
þegar við erum ekki í samkeppni
og einnig þegar það samstarf
hefur byggst á miklu trausti og
oft á tíðum góðri vináttu. Ég vil
ekki að konur misskilji mig, þegar
ég segist sammála umræddri
fullyrðingu. Ég vil taka það fram
að í því felst enginn áfellisdómur
yfir konum og bendi á að oft á
tíðum eiga konur mjög árangursrík
og gefandi samskipti srí á milli, full
af gagnkvæmri virðingu ogtrausti."
Jóhanna María telur það
miður að konur séu konum
verstar og segir það viðhorf
kvenna til annarra kvenna
jafnréttisbaráttunni síður en svo
til framdráttar „Konur eiga ekki
að ýta kynsystrum sínum til
hliðar vegna þess að þær telji að
þær séu í samkeppni hverjar við
aðra i' karlaheimi heldur eiga
þær, og að sjálfsögðu allir
einstaklingar, að taka höndum
saman og hafa samstarf og
samvinnu að leiðarljósi. Þannig
njóta einstaklingarnir; jafnt konur
sem karlar, sín best í
samfélaginu." ■
Óneitanlega bregður lífs-
reyndri móður á fertugsaldri
í brún að verða jómfrú á
nýjan leik. Sigríður Péturs-
dóttir útvarpskona var sam-
viskusamur nemendi og villt-
ist inn á ókannaðir slóðir
Netheimsins í námi sínu t sál-
fræði Netheimsins í Svíþjóð
vorið 1997.
E Isku Halli!
Hvað heldurðu??? Heldurðu
ekki að uppáhalds frænka þrí
(undirrituð) hafi komist að því
að hún er JÓMFRÚ! Náttúru-
lega ekki seinna vænna að kom-
ast að slíku grundvallaratriði
komin hátt á fertugsaldur og
móðir mannvænlegs drengs að
auki :-) (spaug)
Nú rekurðu örugglega upp
stór augu og ekki að ástæðu-
lausu... en þetta hefur nefnilega
ekkert með það að gera hvað
ég hef sofið oft hjá um ævina.
Þannig er nefnilega mál með
vexti að ég komst að því fyrir
rúmum mánuði að ég er NET-
JÓMFRÚ!!! Það var nú eiginlega
sprenghlægilegt en líka svolítið
neyðarlegt hvernig ég komst að
þessari „bitru" staðreynd um
sjálfa mig.
Eins og þú veist þá er ég í
kúrsi hérna í skólanum um sál-
fræði Netheimsins og kennarinn
okkar sagði að við ættum að
henda okkur út í CYBERSPACE
(Netheiminn) og vera þar...
prófa alla króka og kima... láta
ekkert ókannað. Meðal annars
lagði hann áherslu á mikilvægi
þess að við prófuðum spjallrásir
og ekki einungis svona fyrirbæri
eins og irkið heldur ekki síður
svona spjallrásir sem eru eins og
sjálfstæðir heimar Maður velur
sér táknmynd fyrir sjálfan sig og
fer og ferðast á milli herbergja
og hittir fullt af fólki.
Nú ég er náttúrulega fýrir-
myndarnemandi og slengdi mér
inn i' Netheiminn um leið og ég
kom heim. Settist fýrir framan
skjáinn, tengdi mótaldið og hlóð
inn einhverju forriti sem heitir
TALK. Þóttist bara ansi góð
með mig. Ég get nú alveg viður-
kennt að ég var dálítinn tíma að
átta mig á hvernig þetta virkar
allt saman en að lokum tókst
mér að taka þátt í samræðum.
Allt í fríu í smástund þar til svo-
litlir kassar með einkaskilaboð-
um byrjuðu að boppa upp á
skjáinn. Fyrst var þar kominn
einhver Bob!!!
Bob: H/ love
Sigga: Hello
Bob: How are you honey?
Sigga: Fine, thank you.
Bob:You’re a female, right?
Sigga:Yes
Bob: Color of your underwear.?
Sigga: Whai!7? Well... I don't
remember what I put on this
morning, whyW
Bob: Oh, tell me what size you are
wearing... please tell me your're
a 34B
Sigga: I don't understand! Do you
design underwear... are you
doing research?
Bob: LOL (hlegið upphátt)... you
are really funny kiddo ;-) (tví-
rætt)
Heyrðu, svona hélt þetta
áfram og að lokum skildist mér
að maðurinn var hreint ekkert í
undirfatabransanum heldur
bandarískur flugmaður sem var
að reyna að fá mig til að stunda
með sér svokallað NETKYNLÍF.
Ég átti sem sagt að segja honum
allt um mig... útlit og langanir.. til
að æsa hann upp. Konan hans
var sofnuð sagði hann og var
heldur ekkert sérlega fjörug yfir-
leitt. Síðan þetta gerðist hef ég
32