19. júní


19. júní - 19.06.2000, Page 48

19. júní - 19.06.2000, Page 48
Jafnrétti leiðir til minna ofbeldis og betra kynlífs Launajafnrétti felur ekki aðeins í sér sjálfsögð mann- réttindi. Ingólfur V. Gíslason telur að jafnrétti hafi stuðlað að minna ofbeldi gagnvart konum og meiri ánægju beggja kynja af kynlífi. Gróð- inn sé því ekki aðeins konunn- ar heldur beggja kynja. Fyrir nokkrum árum vann ég við að skrifa sögu Iðju, félags verk- smiðjufólks. Eitt af þvi' sem ég þá gerði var að leita uppi nokkra af fyrstu félögunum til að fá þeirra frásögn og viðhorf til stöðunnar eins og hún var við stofnun félagsins 1934. Allt fram á sjö- unda áratug aldarinnar tíðkaðist að verkalýðsfélög og atvinnurek- endur sömdu um tvo taxta. Annar taxtinn var fyrir karla, hinn var fyrir unglinga og konur Sá síðarnefndi var að jafnaði 30% lægri en taxtinn fyrir karla. Hér breytti engu þó verið væri að vinna nákvæmlega sömu vinnuna, konurnar voru 30% lægri í laun- um. Frægt dæmi er þegar karl og kona báru saman börur t.d. við fiskþurrkun. Byrðar beggja voru jafnar en hann fékk krónu á tím- ann, hún 70 aura. Grét af reiði Eg spurði eina konuna sem ég ræddi við, hvort þetta hefði ekki verið erfrtt, hvort ekki hefði verið sárt að taka við launaumslagi sem var 30% léttara en það sem kar- linn fékk, þó svo vinnan hafi verið hin sama. Hún þagði drykklanga stund og sagði svo: „Jú víst var það sárt. Oft grét maður af reiði." Og því miður hafa samskipti kynjanna megnið af þessari öld verið þannig að konur hafa oft haft fulla ástæðu til að gráta af reiði. En þær eru margar og stórar breytingarnar sem orðið hafa varðandi samskipti kynjanna á 20. öldinni og sérstaklega hefur þró- unin verið ör síðustu áratugi. Konur eru nú fullgildir þátt- takendur á atvinnumarkaðnum, sækja sér þá menntun sem hug- urinn stendur til og taka þátt í stjórn- og félagsmálum til jafns á við karla (eða svo til). Og með 48

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.