19. júní


19. júní - 19.06.2000, Side 57

19. júní - 19.06.2000, Side 57
Sigurður Guðmundsson landlæknir Sólrún Halla Einarsdóttir 8 ára „Raunsanna svarið við þessari spurn- ingu er reyndar konan mín, engin kona hefur haft jafnmikil áhrif á mig eftir að ég komst til vits og ára. Ég held þó að þetta hafi ekki verið svarið sem leitað er eftin" segir Sigurður Guðmundsson landlæknir og heldur svo áfram. „Valið er erfitt - sem betur fer - og ég vil leita fanga hér innanlands. Á öldinni sem er að að líða hefur mikill fjöldi kvenna haft áhrif á sína samtíð í stóru og smáu. Augljósar eru klassískir leiðtogar, konur á borð við fyrrverandi forseta, sem kenndi mér frönsku, borgarstjórann í Reykjavík, sem kenndi mér ekki frönsku, enda örlítið yngri, nokkrar aðrar konur í stjórnmálum, lista- konur; einkum leikkonur og skáldkonur þ.á m. úr hópi bekkjarsystk- ina. Mér koma í hug leiðtogar í félags- málum, verkalýðshreyfingu, atvinnulífi og menntamálum. Á persónulegri nótum leita sterkt á hugann húsfreyj- an í sveitinni, alþýðukonur í eldhúsum brúarvinnuflokka, nokkrir sjúklinga minna sem gáfu mér meira en ég held ég hafi gefið þeim, samverkakonur, ýmsa, vinir og síðast en ekki síst móðir og ömmur Mig langar þó að kalla hér til óvenjulega íslenska alþýðukonu sem ég þekkti aldrei og hitti aldrei en mér þótti mikið til koma lífshlaups hennar og hugsjóna, kjarks og áræðis þegar ég las um hana fyrst," segir Sigurður. „Ég vil nefna hana vegna áhuga míns á náttúru landsins og þeirra einstæðu stunda sem ósnortnar víðáttur þess veita. Þessi kona leitar oft á hugann þegar ferðast er ofan byggða á Islandi. Hún er Sigríður Tómasdóttir í Brattholti, kona sem líklega má öðrum fremur þakka að ekki varð af því að Gullfoss yrði virkjaður Hún lýsti því m.a. yfir að fyrr fleygði hún sér í fossinn en að af því yrði. Þeir sem hana þekktu munu ekki hafa efast um að hún stæði við orð sín. Sigríður hefur greinilega verið sérstök kona, langt á undan sinni samtíð. Hennar er vert að minnast í þeirri orðræðu sem nú ber hátt um hvernig við ætlum að samræma búsetu í landinu til framtíðar og nýtingu gæða þess við virðingu okkarfyrir því og einstakri og sérstæðri náttúru þess," segir Sigurður Guðmundsson landlæknir ■ „Astrid Lindgren er mín kona. Ég hef haft mjög gaman af að lesa bæk- urnar hennar og þær hafa haft góð áhrif á mig.Til dæmis eru krakkarnir í þeim sjálfstæðir og duglegir og það hefur gert mig að sjálfstæðari einstak- lingi. Bækurnar hennar hafa líka örvað ímyndunarafl mitt," segir Sólrún Halla. Hún segist mest halda upp á Línu langsokk þótt hún sé eiginlega vaxin upp úr sögunum um hana. „Ég held líka upp á Ronju ræningjadóttur Emil í Kattholti, Snúð og Jónatan í Bróðir minn Ljónshjarta og Lísu í Olát- agarði. Ein skemmtileg saga af Línu er þegar hún skúrar gólfið með burstum sem hún festir við fæturna á sér Önnur sniðug saga er af því þegar ræningjarnir komu heim til Línu til að stela peningunum hennar. Auðvitað náðu þeir ekki pen- ingunum af henni en hún dansaði skottís við þá og borgaði þeim svo fyrir Ég held ekki að Lína hafi slæm áhrif á krakka, frekar bara góð áhrif," segir Sólrún Halla. „Krakkar verða ekk- ert endilega óþægir af að lesa sögurn- ar um hana, kannski bara sjálfstæðari. Ef börn eru alltaf þæg eru þau kannski bara feimin og hrædd. Það er skemmtilegra fyrir þau að vera stund- um svolítið óþæg. Fullorðna fólkið veit ekkert endilega hvernig er best fyrir börnin að vera, því það man ekki alltaf eftir því hvernig það var að vera krakki." Sólrúnu Höllu finnst Lína að mörgu leyti öðruvísi en aðrar stelp- ur „Hún getur t.d. látið flétturnar sínar standa út í loftið án þess að nota gel. Hún býr ein með apa og hesti og er óvenju sterk og kraft- mikil. Þegar ég var lítil hélt ég að ég væri sterkasta stelpa í heimi fyrir utan Línu Langsokk." ■ I 57

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.