Sólskin - 01.07.1932, Síða 15
13
Nef.
Athugum nef fug'lanna. Með
því áhaldi er margt unnið.
Ungi, sem er. nýlega skriðinn
úr egg'i, hittir örlítil korn með
því og tínir sjer þannig fæðu
með einstakri leikni. — Með
því er veitt úr vötnum og sjó, Spói.
og flutt fæða um lang'a vegu. Pað er notað að vopni
og barist með því um lífið og völdin. Með nefinu
eru gerð hreiður, og sum svo vel, að listamannshend-
ur þarf, til þess að líkja eftir. Sum eru brugðin,
önnur hlaðin upp eða múruð, sum saumuð saman úr
laufblöðum. Til eru sundfuglar, sem búa til eyjar
úti í vatni, til þess að verpa á. Með nefinu þrifa fugl-
arnir sig og snyrta og bera fitu á fjaðrir sínar úr
kirtli aftur við stjelið. Pað gera þeir, til þess að vökna
ekki á sundinu. Pá er nefið notað fyrir reku, bæði
til þess að grafa upp gæði fólgin í jörðu, og til þess
að hylja önnur, sem aflað hefir verið.
Litskrúð.
Athugum litina, t. d. á
paradísarfuglinum, sem var
nefndur svo, af. því, að
þegar náttúrufræðingurinn
Linnæus sá ham af honum, ■
þá hafði hann haft það á
Diífa.