Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 24
24 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
E
itt af kosningaloforðum Besta flokksins var að gera borg-
ina skemmtilegri fyrir borgarbúa. Það var svo sem ekki
útfært neitt sérstaklega en væntanlega átti ísbjörninn góði
í Húsdýragarðinum og ókeypis handklæði í sundlaugunum
að vera framlag til þess arna.
Hvorugt er nú orðið að veruleika og þvert á móti mun ein gjald-
skrárhækkunin sem ráðgerð er í borginni einmitt snúa að handklæð-
unum góðu í sundlaugunum. Og það er út af fyrir sig saklaust því
það er svo auðvelt að koma með
handklæðin með sér að heiman.
Verri eru allar gjaldskrár-
hækkanirnar sem snúa að grunn-
þjónustu við barnafjölskyldurnar
í borginni og hætt er við að þær
hækkanir muni ekki gera borgina
skemmtilegri fyrir þær fjölskyld-
ur. Hækkun á leikskólagjöldum,
minni systkinaafsláttur í leikskólum, hækkun á frístundaheimilis-
gjöldum og matarkostnaði í skólum og í frístund, auk annarra auk-
inna gjalda koma niður á öllum borgarbúum en í mörgum tilvikum
enn frekar á barnafólki en öðrum.
Það ber bæði vott um hugleysi og hugmyndaleysi að sækja fé
til þessa hóps borgarbúa. Þetta er hópurinn sem ber að öðru leyti
þyngstar byrðar, til dæmis í húsnæðisskuldum og auknum dagleg-
um útgjöldum vegna matar og annars heimilishalds, auk þess að
hafa, eins og raunar margir aðrir, tekið á sig tekjulækkun á undan-
gengnum misserum.
Á sama tíma er útsvarsprósentan í borginni ekki fullnýtt. Sóley
Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur bent á að með
fullnýtingu útsvarsprósentu, sem þýðir hækkun um 0,25 prósentu-
stig í stað 0,17 eins og nú stendur til, mætti sækja nærri 230 millj-
ónir af þeim 250 sem borgin áætlar í auknar tekjur af gjaldskrám
sem snúa beint að grunnþjónustu við börn.
Hvað ætli ráði þeirri ákvörðun meirihlutans í borgarstjórn að
sækja þessa peninga til ungra barnafjölskyldna sem tilheyra vissu-
lega öllum tekjuhópum en eru margar tekjulágar, fremur en að grípa
til lítillegrar skattahækkunar sem bitnar á borgurunum í réttu hlut-
falli við tekjur?
Þau eru áreiðanlega mörg ömmurnar og afarnir í borginni sem
viljug tækju á sig hækkað útsvar á móti því að uppkomin börn þeirra
losnuðu undan auknum álögum vegna menntunar og gæslu barna
sinna. Hitt er jafnljóst að grátkórinn sem alltaf upphefst þegar skatt-
ar eru hækkaðir er hávær og svo virðist sem Samfylkingin og Besti
flokkurinn beri meiri virðingu fyrir honum eða óttist hann meira en
unga fólkið sem vinnur að því að koma börnum til manns.
Ef sama hugleysið og hugmyndaleysið ræður för þegar kemur að
niðurskurði í rekstri borgarinnar er ástæða til kvíða. Verður það
svo að niðurskurðurinn muni fyrst og fremst bitna á grunnþjónustu
við börn og foreldra þeirra eða mun meirihlutinn í borginni sýna þá
djörfung að ráðast til atlögu við verkefni sem í sjálfu sér eru góð og
gild en flokkast ekki undir grunnþjónustu?
Það er nefnilega svo að til þess að skemmtilegt geti verið að eiga
heima í borginni verða ákveðin grunnatriði að vera í lagi.
HALLDÓR
SKOÐUN
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
Skemmtileg lesning
Nýlegt svar forsætisráðherra við
fyrirspurn Birgis Ármannssonar um
nýjar nefndir, ráð, stjórnir og hópa á
vegum ríkisstjórnarinnar er athyglis-
verð lesning og veitir ágæta innsýn
í vinnubrögð ráðherra. Almenningur
kann að halda að þeir kasti til hönd-
unum en svo er ekki. Í
það minnsta ekki alltaf.
Vandað til verka
Sem dæmi um það er
hvernig unnið var að
sameiningu Fasteigna-
skrár ríkisins og
Þjóðskrár. Sjá má í
svarinu að eftir að
hugmynd um sameininguna kom
fram var settur á fót fimm manna
samráðshópur. Þegar hann hafði
lokið störfum var settur á fót fimm
manna stýrihópur. Stofnanirnar
sameinuðust í sumar. Eftir því sem
næst verður komist gekk sameining-
in hnökralaust fyrir sig.
Fæðuöryggi
Á svarinu sést líka að land-
búnaðarráðherrann er allur
þar sem hann er séður.
Hann lætur sér ekki nægja
að tala um fæðuöryggi
heldur fylgir málum
eftir. Ráðherrann
hefur skipað
nokkra starfshópa sem með einum
eða öðrum hætti fjalla um fæðuör-
yggi. Einn á að endurskoða jarða- og
ábúðarlög með tilliti til fæðuöryggis,
meðal annars. Annar fjallar um
eflingu alifuglaræktar, meðal annars
með tilliti til fæðuöryggis. Sá þriðji
skoðaði svo eflingu svínaræktar,
meðal annars með tilliti til fæðuör-
yggis. Sá hefur raunar skilað af sér.
Niðurstaðan er að við svínakjöts-
framleiðslu skuli meðal annars
taka mið af fæðuöryggi. Á dög-
unum skipaði ráðherrann nýjan
starfshóp um svínaræktina sem
á, meðal annars, að horfa til þáttar
svínaræktar í fæðuöryggi.
bjorn@frettabladid.is
Reykja-
víkurborg
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
Af því tilefni er af
völdum fóðurtegundum frá Hill´s,
Nature's Best, z/d hundafóðri og j/d
hundafóðri.
af öllum hunda-
fötum frá Hurrta, Theo og IsPet.
Einnig er komin til okkar
af Rogz vörum, þar á
meðal frábærar nýjar kisuólar sem
lýsa í myrkri.
20% afsláttur
20% afsláttur
glæný
sending
Komdu dýrinu þínu á óvart með
gjöf frá okkur.
Dýralæknamiðstöðin
í Grafarholti er komin í jólaskap!
Opið mánudaga-föstudaga kl. 08:00-17:00
Laugardaga: kl. 11:00-14:00
Hækkun á gjaldskrám barnafjölskyldna:
Hærra útsvar í
borginni, takk
Það er vont þegar stefnu vantar í stefnumótandi plögg. Fjár-
hagsáætlun borgarinnar er dæmi
um slíkt plagg. Áætlunin gefur
borgarbúum engin skýr skila-
boð um stefnu meirihluta Besta
flokksins og Samfylkingarinnar
næstu árin. Skilaboðin eru óút-
færð, óskýr og hreint út sagt út
og suður.
Langtímastefnan kemur
hvergi fram. Enginn veit, hvorki
kjörnir fulltrúar né starfsmenn,
hvaða rekstrarþætti á að verja
umfram aðra. Ekkert er fjallað
um atvinnu eða atvinnuleysi. Engar útfærsl-
ur sjást varðandi framkvæmdir sem Dagur
B. Eggertsson þó gagnrýndi hvað harðast
að vantaði í síðustu fjárhagsáætlun. Dagur
talaði þá um „framkvæmdastopp“ þó fram-
kvæmt væri fyrir 10 milljarða. „Hagvöxt-
ur í Reykjavík“ hefur jafnvel ekki verið
skilgreindur en Dagur fjallaði ótæpilega
um það óskýra fyrirbæri í kosningabarátt-
unni. Ekki er metið hvað hækkaðir skattar
og gjöld á fjölskyldur komi til með að kosta
samtals þótt nánast allt sé hækkað sem
hægt er að hækka. Engin skýr lína kemur
fram um hvort eigi að verja störf eða ekki
og starfsmenn sitja uppi með
ógrynni af óútfærðum hagræð-
ingartillögum sem samtals nema
u.þ.b. einum milljarði króna á
ársgrundvelli. Það eina sem er
útfært í þaula er hvernig seilast
eigi dýpra í tóma vasa borgarbúa.
Meirihlutinn setur ekki fram
leiðbeinandi línur í fjárhags-
áætlanagerðinni um hvernig skuli
haga samrekstri í þjónustu eins
og t.d. skóla. Ekki er heldur búið
að ákveða hvernig á að hagræða
í sérkennslu, forföllum eða lang-
tímaveikindum í leik- og grunn-
skólum. Ekkert er enn ákveðið um hvernig
eigi að skipuleggja hagræðingu í ráðhúsinu.
Í stuttu máli er fjárhagsáætlun meiri-
hlutans fullkomlega ókláruð. Rúsínan í
pylsuendanum er síðan að hið svokallaða
gat sem Besti flokkurinn og Samfylking
ætla sér að loka hefur stækkað á ótrúleg-
an hátt með útgjaldaliðnum „ófyrirséð fé“
sem stækkar nú í tæpan milljarð. „Ófyrir-
séð fé“ er óbundinn liður í áætluninni og er
til að mæta ýmsum uppákomum, dekur-
verkefnum eða verkefnum sem meirihlut-
inn vill takast á við á nýju ári. Sannarlega
alls konar.
Alls konar áætlunin
Í stuttu máli
er fjárhags-
áætlun
meirihlutans
fullkomlega
ókláruð.