Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 46
6 •
„Ég keypti fyrsta hljóðgervilinn
minn þegar ég var í menntaskóla
1985. Ég fór frekar seint að vesen-
ast í tónlist. Ætli ég hafi ekki verið
sautján ára þegar ég keypti fyrsta
hljóðgervilinn minn, það var Roland
Juno 2. Það hefur verið minn uppá-
haldshljóðgervill og ég hef notað
hann sem aðalsánd í öðru hverju
Gus Gus lagi,“ segir Biggi Veira úr
hinni vinsælu hljómsveit Gus Gus.
„Það var pólýfónískur „synthi“ sem
kostaði ekki beint svakalega mikið
en var nú samt slatti á sínum tíma.
Svo bættust græjurnar við frekar
hægt framan af.“
Biggi hefur alla tíð verið mikill
græjukarl enda tekið upp fjölda
platna með Gus Gus undanfarin
fimmtán ár. Safnplata með bestu
lögum sveitarinnar er einmitt ný-
komin út með skemmtilegri mynd af
Bigga sjálfum á umslaginu sem var
tekin þegar hann var fimmtán ára.
Þegar Biggi var að stíga sín fyrstu
skref í tónlistinni með kunningja
sínum Begga var hljómsveitin Soft
Cell í miklu uppáhaldi og síðar meir
sólótónlist forsprakkans Marc Alm-
ond. Saman stofnuðu þeir Beggi
hljómsveitina T-World. „Ég hafði
mikið dálæti á trommuheiladiskói
en ég var ekkert orðinn mjög
græjumikill á þessum tíma. Ég
átti hljóðgervil sem hét Roland JD
800 en það var ekkert að koma út
úr honum sem mig langaði og þá
fékk ég mér Roland TR 808. Það
er goðsagnakenndur trommuheili
úr rappinu sem var líka notaður á
upphafs árum house-tónlistar. Ég
gat líka keypt mér Yamaha CS-30
sem er frábær mono-hljóðgervill.
Þessi skipti voru ein af mínum betri
græjuákvörðunum. Síðan frétti ég
af ARP 2600-hljóðgervli sem var
búinn að liggja í geymslu í mörg ár.
Ég fékk hann lánaðan og var með
hann í næstum því tíu ár áður en
ég keypti hann loksins. Hann hefur
verið notaður fyrir bassasándið í
Believe, Moss og Need In Me og
einnig sem sólósánd í Believe,“
útskýrir Biggi.
Hann nefnir einnig Doepfer-
hljóðgervlakerfið sem hann keypti
undir lok tíunda áratugarins í gegn-
um þýskt fyrirtæki og bætti síðan
mikið við kerfið 2006. Þetta er græja
þar sem hver hluti hljóðgervilsins er
sjálfstæður og var eina hljóðfærið
sem var notað í endurhljóðblöndun
Gus Gus af lagi Bjarkar, Hunter.
Biggi er aðallega hrifinn af eldri
græjum en festi þó nýlega kaup á
Universal Audio Quad flex hljóðkorti.
Með því getur hann loksins hljóð-
blandað alfarið inni í tölvunni.
Gus Gus er þessa dagana að
vinna við næstu plötu sína, sem
fylgir í kjölfar 24/7 sem kom út í
fyrra. „24/7 var „minimal“ og undir
teknóáhrifum. Hún var dálítið dimm
en samt með björtum yfirtóni. Á
nýju plötunni er meiru blandað
saman og grúvin eru líka að koma
aðeins til baka,“ segir Biggi, spennt-
ur fyrir verkefninu. Daníel Ágúst
verður aðalsöngvarinn og einhverjir
gestasöngvarar koma við sögu.
Urður Hákonardóttir, fyrrverandi
söngkona Gus Gus, hjálpar til við
bakraddir og fleira.
freyr@frettabladid.is
GUS GUS MAÐURINN BIGGI VEIRA ER MIKILL GRÆJUNÖRD:
FYRSTI HLJÓÐGERVILLINN
Í ÖÐRU HVERJU LAGI
UMVAFINN GRÆJUM Grjænördinn og Gus Gus maðurinn Biggi Veira umvafinn tækjum og tólum í hljóðverinu sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GRÆJUR Í UPPÁHALDI HJÁ BIGGA
ARP 2600
Frábær „þriggja oscillatora
monosynthi“ fyrir bassasánd
og sólósánd. Yfirleitt stilltur
hjá mér með einn „oscillator“
á fimmundinni. Hefur aðeins
gefið eftir fyrir Doepfernum
núna í seinni tíð.
Roland TR-808 og Roland TR-909
Keypti TR-808 1992 og TR-909 1994.
Mikið notaðir á fyrstu fjórum plötun-
um. Lagið Is Jesus Your Pal er bara
TR-808. Minna notaðir eftir að ég
kom mér upp safni af Doepfer Per-
cussive sándum.
Doepfer A-100
Modular system
Höfum mikið
notað per-
cussive-sánd á
síðustu þremur
plötum, Attent-
ion, Forever og
24/7. Er einnig
ábyrgur fyrir
öllum bassa-
sándum á 24/7.
Roland - Juno 2
Fyrsti synthinn, keyptur 1985. Hálf
„analogue polýfónískur“. Hefur verið í
mjög miklu uppáhaldi alla tíð. Not-
aður fyrir orgel í Ladyshave, píanó
í Call of the Wild og Moss, strengi í
Anthem, Purple, Call of the Wild og
Add this Song og fyrir aðal „synth“ í
David.
GRÆJURJólaskap
Handhæg
upptökut
æki
frá Zoom á
frábæru v
erði!
Zoom H4n
kr. 48.900-
Zoom Q3
kr. 59.000-
Zoom H1
kr. 19.800-
Zoom H2
kr. 35.800-
Þér er í lóf
a lagið
að taka up
p
Hjá okkur fæ
rðu
faglega þjó
nustu,
byggða á þ
ekkingu
og áratuga
reynslu.
við erum komin í