Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 92
48 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
„Okkar hugmynd var að þegar verið væri að þróa og
hanna borgarímynd væri hægt að horfa til rannsókn-
arinnar og vinna eftir henni,“ segir Auður Hreiðars-
dóttir, nemandi í arkitektúr við Listaháskóla Íslands.
Fimm ungir nemar í Listaháskólanum unnu að rann-
sóknarverkefni í sumar þar sem fylgst var með
almenningsrýmum í miðborg Reykjavíkur. „Við tókum
fyrir torg, garða og götur og skráðum niður hvar fólk
stoppaði og hvað dró fólk að.“ Hún segir hópinn, sem
kallar sig Borghildi, hafa fengið innblástur frá svip-
uðu verkefni sem unnið var í New York árið 1980.
Borghildur gerði kvikmynd úr niðurstöðum rann-
sóknarinnar sem verður sýnd í Bíói Paradís í kvöld.
„Við gerðum líka rannsóknarskýrslu sem fylgir mynd-
inni, en hún er í rauninni gagnagrunnur fyrir okkur
og vonandi aðra sem geta nýtt sér hana,“ segir Auður.
Hún segir jafnframt að allir séu velkomnir á myndina
og frítt inn en myndin verður sýnd klukkan 20. - ka
Borghildur býður í bíó
- bara lúxus
Sími: 553 2075
PARANORMAL ACTIVITY 2 8 og 10.10 16
FASTER 6, 8 og 10.10 16
THE NEXT THREE DAYS 5.45, 8 og 10.30 12
NIKO OG LEIÐINN TIL STJARNANNA 4 L
ARTÚR 3 4 og 6 L
ÚTI ER ÆVINTÝRI 4 L
12
12
10
10
10
10
10
10
10
10
LL
L
L
L
L
L
L
- BOXOFFICE MAGAZINE
- ORLANDO SENTINEL
- TIME OUT NEW YORK
M I Ð A S A L A Á
LIFE AS WE KNOW IT kl. :3 20 - 5:40 - 8 - 10:30
HARRY POTTER kl. 4 - 5:30 - 7 - 8:30 - 10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30
DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20
RED kl. 8 - 10:20
ÆVINTÝTÝRI SAMMA-3D M/ ísl. Tali kl. :43 0
KONUNGSRÍKI UGLANNA M/ ísl. Tali kl. :43 0 - 5:50
FURRY VENGEANCE kl. :43 0
THE JONESES kl. 5:50 - 8 - 10:10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30
DUE DATE kl. 8 - 10:20
THE SWITCH kl. 5:50
ÆVINTÝTÝRI SAMMA-3D M/ ísl. Tali kl. 3:40
KONUNGSRÍKI UGLANNA-3D M/ ísl. Tali kl. :43 0
FURRY VENGEANCE kl. 3:50
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5.30, 8 og 10.30
HARRY POTTER kl. 5, 6, 8, 9 og 11
DUE DATE kl. 8 og 10.10
GNARR kl. 5.40
7
7
LIFE AS WE KNOW IT kl. 6 - 8 - 10:10
HARRY POTTER kl. 6 - 9
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
5%
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
FASTER kl. 8 - 10
PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 8 - 10
THE NEXT THREE DAYS KL. 5.45
JACKASS 3D KL. 5.45
16
16
12
12
Nánar á Miði.is
FASTER kl. 5.50 - 8 - 10.10
FASTER LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10
PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE NEXT THREE DAYS KL. 8 - 10.40
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 3.50 - 6
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10
ARTHÚR 3 KL. 3.40
ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 KL. 3.50
AULINN ÉG 3D ÍSL. TAL KL. 3.50
16
16
16
12
L
12
L
L
L
FASTER kl. 8 - 10.10
AGORA KL. 6 - 9
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6
DRAUMURINN UM VEGINN KL. 6
SKYLINE ÓTEXTAÐ KL. 8 - 10.10
UNSTOPPABLE KL. 10.10
EASY A KL. 6
YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8
16
14
L
L
12
L
12
L
HÁSKÓLABÍÓ
ÍSL. TAL ÍSL. TAL
"MYND SEM HITTIR Í MARK!"
-H.H, MBL
BÝÐUR Í BÍÓ Hópurinn Borghildur býður gestum að sjá rann-
sóknarverkefni sitt í Bíói Paradís í kvöld klukkan átta.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ný plata frá poppkóngin-
um sáluga Michael Jackson
kemur út á næstunni. Hún
hefur fengið misjafna dóma
og vakið miklar deilur.
Nýjasta plata popparans sáluga
Michaels Jackson, Michael, hefur
fengið misjafnar viðtökur breskra
gagnrýnenda. Platan kemur út um
miðjan desember og þegar eru
farnir að birtast um hana dómar.
Útvarpsmaður breska ríkisút-
varpsins, BBC Radio One, hafði
þetta að segja um plötuna: „Það
er ljóst að þetta er ekki ný plata
með Michael Jackson heldur er
þetta samansafn af áður óheyrðum
lögum,“ sagði hann og fannst lítið
til hennar koma. Gordon Smart
hjá götublaðinu The Sun skrifaði:
„Í heildina er platan vonbrigði
og kemst ekki nálægt bestu plöt-
um hans, Off the Wall, Thriller og
Bad.“ Blaðamaður The Independ-
ent bætti við að mörg laganna fjör-
uðu einfaldlega út án þess að enda
almennilega, rétt eins og tónlistar-
maðurinn sjálfur.
Á meðal gesta á plötunni eru
Akon, 50 Cent, Lenny Kravitz og
rokkarinn Dave Grohl sem spil-
ar á trommur í laginu Monster.
Miðað við þessa dóma virðist það
ekki hafa dugað til. Aðeins eitt lag
á plötunni var fullklárað af Jack-
son, ballaðan Much Too Soon sem
var tekin upp á níunda áratugnum.
Hin tókst honum ekki að ljúka við
áður en hann lést fyrir átján mán-
uðum.
Útgáfan hefur reyndar vakið
miklar deilur. Margir telja að
ekki hafi verið rétt að gefa út
plötu með ókláruðum lögum, þar
á meðal will.i.am úr hljómsveitinni
The Black Eyed Peas sem taldi
útgáfuna bera vott um vanvirð-
ingu. Akon er á annarri skoðun og
telur að arfleifð Jacksons sé hald-
ið á lofti með plötunni. Fjölskylda
Jacksons hefur sömuleiðis kvart-
að yfir laginu Breaking News sem
var sett í loftið fyrir skömmu og
telur að Jackson hafi í raun ekki
sungið það heldur sé um einhvers
konar fölsun að ræða. Útgáfuris-
inn Sony segist engu að síður sann-
færður um að söngurinn hafi verið
í höndum Jacksons, enda hafi það
verið vísindalega sannað.
Hvað sem öllum dómum og deil-
um líður er ljóst að aðdáendur
Jackson eiga eftir að kaupa plöt-
una í bílförmum, enda er hann
fyrir löngu orðin goðsögn í þeirra
augum.
freyr@frettabladid.is
Umdeild plata poppkóngs
MICHAEL JACKSON Nýjasta plata popparans sáluga er væntanleg um miðjan mánuð-
inn. NORDICPHOTOS/GETTY
Kanadíski leikarinn Ryan Gosling
var á sínum tíma orðaður við hlut-
verk Jacks Salmon í kvikmynd-
inni The Lovely Bones. Leikarinn
þyngdi sig talsvert fyrir hlutverkið
en á endanum var Mark Wahlberg
ráðinn í hans stað.
„Ég og Peter Jackson, leikstjóri
myndarinnar, höfðum ólíkar hug-
myndir um hvernig persónan Jack
Salmon ætti að líta út. Ég var tæp
70 kíló þegar Jackson réði mig en
svo þegar tökur áttu að hefjast var
ég orðinn 20 kílóum þyngri. Mér
fannst að persónan ætti að vera
svolítið feit og þess vegna stund-
aði ég það að bræða rjómaís og
drekka hann þegar ég varð þyrst-
ur. Mér fannst þetta frábært og ég
var spenntur fyrir hlutverkinu,“
útskýrir leikarinn.
Peter Jackson var þó á öðru
máli og skipaði Gosling í rækt-
ina. Á endanum fór svo að Mark
Wahlberg var ráðinn í hans stað.
„Við Jackson vorum mjög ósam-
mála um persónusköpunina og
þess vegna gekk samstarf okkar
ekki,“ sagði Gosling að lokum.
Drakk rjómaís við þorsta
SLÆMUR MISSKILNINGUR
Ryan Gosling þyngdist fyrir hlutverk í
The Lovely Bones og var í kjölfarið sagt
upp störfum.
NORDICPHOTOS/GETTY