Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 3. desember 2010 3
Rúmlega tuttugu nuddarar munu
á sunnudaginn gefa klukkutíma af
vinnu sinni og skiptast á að bjóða
viðskiptavinum Kringlunnar upp
á tíu mínútna herðanudd milli
klukkan 13 og 18 til styrktar fjöl-
skyldum langveikra barna.
„Fimm nuddstólar verða á
svæðinu fyrir framan Lyfju og
nuddað verður í gegnum fötin svo
fólk þarf ekki að óttast að þurfa
að vera hálfnakið á almannafæri,“
segir Tinna Pétursdóttir nuddari,
sem fékk hugmyndina að fram-
takinu og sá um framkvæmdina.
„Nuddið kostar 1.500 krónur en
fólki er að sjálfsögðu heimilt að
hafa framlögin hærri. Allur ágóði
af nuddinu rennur óskiptur til
Umhyggju – félags til stuðnings
langveikum börnum.“
Hvernig kom þessi hugmynd
til? „Ég var að hlusta á útvarpið
og heyrði þar að einhverjir tón-
listarmenn væru að gefa vinnu
sína til að styrkja góð málefni,“
segir Tinna. „Þá fór ég að hugsa
um að það væri auðvelt fyrir fleiri
starfsstéttir að gera það sama.
Þótt fólk eigi ekki endilega alltaf
peninga afgangs til að gefa þeim
sem þurfa eiga allir vinnufram-
lag.“
Tinna segir það hafa geng-
ið mjög vel að fá nuddara til liðs
við sig. „Það voru allir boðnir og
búnir að gera allt til að þessi hug-
mynd yrði að veruleika. Upphaf-
lega ætlaði ég bara að hafa fjóra
stóla en viðbrögðin voru svo góð
að nú eru þeir orðnir fimm.“
Hvers vegna Umhyggja? „Ég
vildi að þessi söfnun kæmi börn-
um til góða,“ segir Tinna. „Og
þegar ég hringdi í Umhyggju til
að segja frá þessu sögðu þau að
þetta kæmi sér sérstaklega vel
því margir foreldrar langveikra
barna hefðu leitað til þeirra um
styrki til að geta haldið jólin.
Þannig að ég er ofsalega glöð að
geta gert þetta fyrir þau. Það er
nógu erfitt að vera með langveikt
barn þótt peningaáhyggjur bæt-
ist ekki þar ofan á. Svo er bara að
vona að viðskiptavinir Kringlunn-
ar noti sér það að láta nudda
stressið úr öxlunum um leið og
þeir styrkja þetta góða málefni.“
fridrikab@frettabladid.is
Nudda herðar fyrir Umhyggju
Óvenjuleg söfnun til ágóða fyrir Umhyggju – félag til stuðnings langveikum börnum – verður í Kringlunni á sunnudag. Ekki eiga allir peninga
til að gefa en geta allir gefið vinnuframlag, segir Tinna Pétursdóttir nuddari, sem fékk hugmyndina og stendur fyrir framtakinu.
„Ég vildi að þessi söfnun kæmi börnum til góða,“ segir Tinna Pétursdóttir nuddari.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fólk þarf ekki að óttast að verða rekið úr fötunum í Kringlunni á sunnudaginn.
Í Hússtjórnarskólanum í Reykja-
vík verður opið hús á morgun
þar sem finna má ýmsar kræs-
ingar og handverk.
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík,
sem starfað hefur samfleytt frá
árinu 1942, verður að venju með
opið hús í lok vetrarannar. Á sýn-
ingunni gefur að líta afrakstur
nemenda eftir önnina.
Í skólanum læra nemendur
ýmiss konar handverk, meðal
annars vefnað og saum, prjón og
hekl og sitthvað um matseld og
þrif auk bóknáms. Námið, eins og
það er í dag, byggist á einni önn
sem metin er til 24 eininga. Skól-
inn tekur aðeins við 24 nemendum
og verða verk þeirra sýnd á opnu
húsi á laugardaginn.
Á sýningunni má finna margs
konar verk eftir nemendur, eins
og hefð gerir ráð fyrir, og einnig
verða til sölu veitingar sem nem-
endur standa að baki.
Sýningin verður í húsakynnum
Hússtjórnarskólans að Sólvalla-
götu 12 og stendur frá 13.30 til 17
á laugardag.
Handverk á
opnu húsi
Ýmsar kræs-
ingar verða á
boðstólum.
Desembertilboð
DIGRANESVEGUR 10 // 200 KÓPAVOGUR // SÍMI 527 2777 // INFO@MYSECRET.IS // WWW.MYSECRET.IS
Tilboð á aada í 5 lítra umbúðum í desember
Eftir áramót koma nýjar 4 lítra umbúðir fyrir aada drykkinn. Þess vegna
bjóðum við nú 5 lítra umbúðirnar á sérstöku tilboðsverði. Tilboðið getur
þú nálgast hjá okkur að Digranesvegi 10 í Kópavogi eða hjá sölufulltrúum
okkar sem eru að finna á heimasíðu okkar www.mysecret.is
Heiða 67 ára
„Þessi drykkur hefur gjörbreytt líðan minni. Ég hef þjáðst af slæmri slitgigt, með mikið slit í mjöðmum og
hrygg. Eftir að hafa drukkið aada í nokkurn tíma hef ég fundið mikinn mun. Þetta hefur haft þau áhrif að
andleg líðan hefur breyst til batnaðar, meltingin og svefninn er orðin betri og vatnsbúskapur líkamans er
orðin stöðugur. Þetta er sannkallaður töfradrykkur og allir ættu að prófa hann.”
Kolbrún Una – 61 árs
„Ég hef verið með of háan blóðþrýsting í nokkuð mörg ár ásamt nokkrum kvillum sem því fylgir, t.d.
vökvasöfnun í líkamanum. Eftir að hafa drukkið aada í nokkrar vikur fann ég mun á líkama mínum, ég
var bæði léttari og mér leið mun betur.”
Fleiri reynslusögur viðskiptavina okkar er að finna á www.mysecret.is
Frí heimsending fyrir eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu
á þriðjudögum og fimmtudögum.
NÝTT
TILBOÐ4.900
Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.