Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 4
4 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL „Nágrannavarslan
hefur komið sér afar vel og það er
mikill áhugi hjá fólki,“ segir Geir
Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á
höfuðborgarsvæðinu, spurður um
árangur nágrannavörslu, sem lög-
regla hefur lagt áherslu á í barátt-
unni gegn innbrotum.
Geir Jón kveður ábendingar
fólks hafa leitt til þess að innbrots-
þjófar hafi verið teknir, sumir
hverjir við iðju sína og þýfi hafi
náðst. Hann segir borgara sýna
mikla árvekni þegar grunsamleg-
ar mannaferðir og athæfi séu ann-
ars vegar. Það sem af er árinu hafa
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
borist 987 ábendingar um grun-
samlegar mannaferðir.
„Ég get nefnt sem dæmi um
fólk sem tók myndir út um glugg-
ann heima hjá sér og fylgdist
með tveimur einstaklingum sem
fóru út úr bíl og brutust inn í hús.
Þegar þeir voru búnir að athafna
sig drifu þeir sig á brott. Fólkið
kom myndunum og upplýsingum
til okkar og málið var auðleyst.
Í öðru tilviki benti bílnúmer á
bíræfna innbrotsþjófa um miðjan
dag í íbúðarhverfi. Fólk tók eftir
því að verið var að bera muni út
úr nágrannahúsi, en vissi ekki til
þess að neinn væri að flytja. Það
tók niður númerið á bílnum og
kom því til lögreglu. Þegar farið
var að athuga málið reyndist núm-
erið vera á sendibíl sem var á ferð-
inni með mikið af þýfi úr íbúðar-
húsinu.“
Þá segir Geir Jón almenn-
ing hafa miðlað lýsingum á fólki
sem hægt hafi verið að tengja við
ákveðin atvik. Það hafi auðveldað
eftirfylgni mála þar sem fyrir hafi
legið sterkur vitnisburður um að
viðkomandi hafi verið á þeim stað
þar sem brotist hafði verið inn.
„Það eru vísbendingar af þessu
tagi sem lögreglan er að kalla
eftir, því þær geta auðveldað
úrlausn mála,“ undirstrikar Geir
Jón. „Þetta upplýsingastreymi frá
fólki til lögreglu er alltaf að auk-
ast. Við viljum fá allar ábendingar
sem kunna að vera fyrir hendi og
vinnum síðan úr þeim. Við sjáum
að almenningur getur hjálpað
okkur mjög mikið og höfum bent
á það.“
Geir Jón segir að lögreglan
greini frá þeim góða árangri sem
nágrannavarslan hefur þegar skil-
að. Fólk sé því upplýst um að varsl-
an beri árangur og umræðan smiti
út frá sér, þannig að sífellt fleiri
borgarar séu á varðbergi.
jss@frettabladid.is
INNBROTSÞJÓFAR Ábendingum borgara
til lögreglu vegna grunsamlegra manna-
ferða hefur fjölgað verulega og þær hafa
borið góðan árangur. Lögregla metur
nágrannavörslu mikils.
Þúsund hafa látið vita um
grunsamlegar mannaferðir
Nágrannavarsla hefur leitt til þess að lögregla hefur gómað innbrotsþjófa, nánast á staðnum, og fundið
þýfi. Það sem af er árinu hafa lögreglu borist 987 ábendingar frá almenningi um grunsamlegt athæfi.
Tilkynningar til lög-
reglu um grunsamlegar
mannaferðir
Fjöldi tilkynninga til lögreglu höfuð-
borgarsvæðisins
2007 2008 2009
829 903 1248
Samanburður milli árshluta
1. jan-2. des. 2007 767
1. jan-2. des. 2008 801
1. jan-2. des. 2009 1143
1. jan-2. des. 2010 987
Heimild: LRH
Fréttablaðið birti laufabrauðsuppskrift
Hjördísar Stefánsdóttur hússtjórn-
arkennara í gær, en tekið skal fram
að steikingaraðferðin kemur ekki frá
henni. Hjördís segir að best sé að
steikja laufabrauð úr léttri fitu, sér-
stakri steikingarfitu eða djúpsteiking-
arfitu, en ekki tólg eins og kom fram
í blaðinu í gær. Þá tekur Hjördís fram
að ekki skuli notast við dagblöð þegar
fitan er síuð af kökunum, heldur
einungis eldhúspappír.
ÁRÉTTING
VIÐSKIPTI „Við eigum ekki í við-
ræðum um aðkomu að MP
banka,“ segir Finnbogi Jóns-
son, fram-
kvæmdastjóri
Framtakssjóðs
Íslands.
MP banki
tapaði 1,9
milljörðum
króna á fyrri
hluta árs.
Unnið hefur
verið að því
að auka eigið
fé bankans í samráði við Fjár-
málaeftirlitið (FME). Gunnar
Karl Guðmundsson, forstjóri
MP banka, sagði í samtali við
fréttastofu Stöðvar 2 á mánudag
að rætt hafi verið við lífeyris-
sjóðina og Framtakssjóðinn um
kaup þeirra á hlutafé bankans.
Finnbogi sagði að ekki yrði
opinberað hverjir leiti til Fram-
takssjóðsins þegar ekkert verði
úr viðskiptunum. - jab
Finnbogi leggur ekkert til MP:
Kaupa ekki hlut
í bankanum
FINNBOGI
JÓNSSON
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið dæmdur í tólf
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að láta stúlku sem þá var
þrettán ára hafa við sig samræði.
Þetta gerðist á þáverandi dvalar-
stað mannsins.
Rannsókn málsins hófst að
frumkvæði foreldra stúlkunnar
í mars 2010. Sama dag var tekin
skýrsla af manninum. Játaði
hann þar brot sitt. Sátt tókst um
bótakröfu stúlkunnar á hendur
manninum og greiddi hann henni
600 þúsund krónur. - jss
Tólf mánuðir á skilorði:
Hafði samræði
við þrettán ára
MEXÍKÓ, AP Þótt litlar líkur séu á að samkomulag
takist á sextándu loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Mexíkó um að draga úr útblæstri gróður-
húsalofttegunda, þá hafa Bandaríkjamenn og Kín-
verjar að mestu náð saman um það hvernig eftirliti
með útblæstri verður háttað.
Ráðstefnan, sem hófst í byrjun vikunnar og stend-
ur út næstu viku, er framhald á loftslagsráðstefn-
unni í Kaupmannahöfn fyrir ári, en henni lauk eins
og svartsýnisraddir höfðu spáð, nefnilega án árang-
urs að mestu.
Nokkrir embættismannafundir hafa verið haldnir
síðan þá, að því er virðist með þeim árangri að and-
rúmsloftið er töluvert skárra en í fyrra, að minnsta
kosti milli Bandaríkjamanna og Kínverja, sem hafa
í það minnsta ekki verið jafn uppteknir af því að
skiptast á gagnkvæmum ásökunum.
Lokatakmark ráðstefnuhaldanna er að ná nýjum
loftslagssamningi, sem tekur við af Kyoto-bókun-
inni þegar gildistími hennar rennur út árið 2012. - gb
Tveggja vikna loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna haldin í Mexíkó:
Styttist í samninga um eftirlit
LOFTSLAGSRÁÐSTEFNAN Í CANCUN Fólk á gangi fyrir utan
ráðstefnuhöllina. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13°
4°
-9°
-2°
-5°
-1°
0°
0°
21°
2°
11°
6°
18°
-9°
-4°
13°
-2°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
um mest allt land.
SUNNUDAGUR
Fremur hægur vindur
um mest allt land.
-2
-1 -3
-5
-60
0 -3
-3
-4
-4
-3
-4
-5
-3
-4
-3
-1
-4
-12
4
10
4
3
3 5
4
6
10
6
13
7
0
HELGIN
Það verður nokkuð
bjart veður á land-
inu um helgina en
þó má búast við að
þykkni upp þegar
líður á morgun-
dag en létti svo
aftur til seinnipart
sunnudags. Það
hlánar um tíma
allra vestast annars
verður áframhald-
andi frost.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 02.12.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,8894
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,47 116,03
180,45 181,33
152,32 153,18
20,438 20,558
18,880 18,992
16,617 16,715
1,3712 1,3792
176,89 177,95
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
s: 528 2000
Sígild ævintýri
með geisladiskum
Flipar á
hverri opnu!
Þau mistök urðu í Markaðnum,
fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti, á
miðvikudag að fullt nafn viðmælanda
féll út. Sá heitir Haraldur Bergsson
og er hann framkvæmdastjóri Next á
Íslandi.
LEIÐRÉTTING