Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 6
6 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Telur þú starf stjórnlagaþings-
ins mikilvægt?
JÁ 51,8%
NEI 48,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að heimila aukinn innflutn-
ing á kjúklingi?
Segðu þína skoðun á visir.is
Heimsferðir bjóða nú sérstakt jólatilboð! Keyptu gjafabréf
fyrir 5.000 kr. en andvirði þess verður 7.000 kr.! Eða keyptu
gjafabréf fyrir 10.000 kr. og andvirði þess verður 14.000 kr.!
Athugið að tilboðið gildir einungis fyrir upphæðirnar sem
eru tilteknar hér að ofan og einungis er hægt að nota eitt
gjafabréf á mann í bókun. Gjafabréfið gildir einungis á
nýjar bókanir.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
Gjafabréf Heimsferða
er tilvalin gjöf fyrir þá sem „eiga allt“
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
VIÐSKIPTI Útgerðarfélagið Sam-
herji hefur ákveðið að greiða
starfsfólki sínu í landi 260 þúsund
króna launauppbót í desember til
viðbótar við umsamda 46 þúsund
króna desemberuppbót. Uppbótin
nemur í heildina 320 þúsund krón-
um á mann og kostar Samherja í
kringum 80 milljónir króna að
frátöldum tengdum gjöldum.
Þeir sem hafa starfað hjá Sam-
herja í ár og meira fá fulla launa-
uppbót, aðrir fá helming hennar.
Haft er eftir Þorsteini Má Bald-
vinssyni, forstjóra Samherja, í
tilkynningu að það sé ánægju-
efni að geta umbunað starfsfólki
með þessum hætti. Þetta er annað
skiptið á árinu sem Samherji
greiðir starfsfólki sínu launaupp-
bót.
Samherji hóf í fyrra að gera
reikninga sína upp í evrum. Skuld-
bindingar félagsins eru að mestu
í erlendri mynt og aðeins tæp eitt
prósent lána í krónum. Eins og sjá
má á meðfylgjandi töflu gera sjö af
tíu stærstu útgerðarfélögum lands-
ins upp í annarri mynt en krónu.
Stjórn Samherja greiddi hluthöf-
um fimm milljónir evra í arð vegna
afkomu fyrirtækisins í fyrra. Það
jafngildir tæpum 767 milljónum
króna á gengi gærdagsins. Arð-
greiðslur námu rúmum átta hundr-
uð milljónum í fyrra. - jab
Útgerðin Samherji bætir 260 þúsund króna jólabónus ofan á uppbót starfsfólks:
Greiða 80 milljónir í bónusa
GERT AÐ FISKI Starfsfólk Samherja sem
unnið hefur lengur en í ár hjá fyrirtæk-
inu fær 320 þúsund krónur í bónus fyrir
jólin. MYND/SAMHERJI
LANDBÚNAÐUR „Það er verið að
skoða þessi mál mjög alvarlega,“
segir Bjarni Harðarson, upplýs-
ingafulltrúi sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytisins um kröf-
ur um tollfrjálsan innflutning á
kjúklingi.
Ráðuneytinu barst formlegt
erindi í gær frá Samtökum versl-
unar og þjónustu þar sem þess
er krafist af
Jóni Bjarna-
syni landbún-
aðarráðherra
að hann heimili
aukinn innflutn-
ing nú þegar og
mikilvægt sé
að hann sé án
aðflutnings-
gjalda. Ástæð-
an er síendurtek-
in tilfelli salmonellusýkinga hjá
innlendum framleiðendum sem
leiða til skorts á kjúklingi á mark-
aðnum.
Bjarni segir að mikilvægt sé
að hafa í huga að bæði framleið-
endur og innflytjendur séu hags-
munahópar í málinu og verið sé að
afla gagna í ljósi þess. „Nú er verið
að skoða birgðastöðu á markaðn-
um fyrst og fremst,“ segir Bjarni.
„Fyrstu athuganir okkar benda til
þess að það séu nægar birgðir og
það er byggt á upplýsingum víða
að.“
Bjarni segir enn fremur að
nefnd sem fjallar um innflutn-
ingsmál þurfi að skoða og fjalla
um málið áður en ráðuneytið getur
tekið ákvörðun.
Í nóvember greindust tveir eld-
ishópar jákvæðir af salmónellu til
viðbótar við þá 27 sem greinst hafa
á þessu ári. Þessum hópum þarf að
farga og urða fuglana. Einnig hafa
greinst þrír sláturhópar til viðbót-
ar við þá 18 sem greinst höfðu á
árinu. Í Bændablaðinu í gær kom
fram að á tveimur og hálfu ári
Skoða lækkun tolla á
innfluttum kjúklingi
Landbúnaðarráðuneyti skoðar hvort endurskoða eigi innflutningskvóta á kjúkl-
ingi. Tap framleiðenda vegna sýkinga nemur hundruðum milljóna króna. SVÞ
krefja ráðherra um tafarlausa heimild fyrir auknum tollfrjálsum innflutningi.
BJARNI
HARÐARSON
KJÚKLINGAFRAMLEIÐSLA Framkvæmdarstjóri Reykjagarðs segir fyrirtækið ekki ná
að anna allri eftirspurn á markaðnum sökum salmonellusýkingar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Matthías Hannes Guðmundsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs, segir tjón
fyrirtækisins vegna salmonellusýkinga á þessu ári nema á annað hundrað
milljónum króna.
„Við náum ekki að skaffa allt sem við gætum skaffað, það er nokkuð
ljóst,“ segir Matthías. „Það er verið að framleiða minna magn sem gerir
það að verkum að erlendur kjúklingur er fluttur inn, sem er bara ágætt og
nauðsynlegt fyrir markaðinn.“
Sveinn Jónsson, framkvæmdastjóri Matfugls, segir fjárhagslegt tjón
fyrirtækisins á þessu ári hlaupa á tugum eða hundruðum milljónum króna.
Hann segir fyrirtækið þó ná að anna eftirspurn á markaðnum og vöruskil frá
verslunum vegna útrunnins kjúklings á hundruðum kílóa á mánuði.
Hundruð milljóna tjón á þessu ári
hefði meira en hálfri milljón kjúkl-
inga verið fargað.
Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir segir að grunur leiki á að
sýkingarnar berist til framleið-
enda með fóðrinu. Verið sé að nota
innflutt sojamjöl í auknum mæli
sem prótíngjafa í fóðurframleiðslu
og margt bendi til þess að sýkingin
dreifist með því. Ekkert hefur þó
verið staðfest í þeim efnum.
sunna@frettabladid.is
BRETLAND Milljónir manna komust
hvergi og þurftu að fresta ferð-
um sínum þegar loka þurfti flug-
völlum og tafir urðu á lestarsam-
göngum víðs vegar um Evrópu
vegna snjóa og kulda í gær.
Í Danmörku voru íbúar á sunn-
anverðu Sjálandi hvattir til að
halda sig heima, og komust raun-
ar hvergi vegna fannfergis.
Snjór lá yfir nánast öllu Þýska-
landi í gærmorgun og þurftu
tugir manna að sofa í lestar-
vögnum í Frankfurt og Leipzig
vegna þess að öll hótel urðu yfir-
full eftir að fresta þurfti lestar-
ferðum.
Loka þurfti flugvellinum í Prag
í Tékklandi í fyrrinótt og í Pól-
landi fór frostið niður í 26 stig,
sem er nánast óþekkt á þessum
árstíma.
Í Belgíu mynduðust samtals um
600 kílómetra langar umferðar-
teppur og í norðanverðu Frakk-
landi sátu þúsundir ökumanna
fastir í bílum sínum.
Veðurfræðingar spá áfram-
haldi á snjókomunni næstu daga.
- gb
Snjór og kuldar tefja enn samgöngur víðs vegar í löndum Evrópu:
Milljónir urðu strandaglópar
FERÐAST Á SKÍÐUM Í Cherbourg í Frakk-
landi smellti þessi vegfarandi skíðum
undir fæturna og komst léttilega leiðar
sinnar. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður
Alþingis hefur lagt fyrir landbún-
aðar- og sjávarútvegsráðuneyt-
ið að fara að stjórnsýslulögum
vegna umsókna um innflutning á
landbúnaðarvörum.
Fyrirtæki eitt kvartaði til
umboðsmanns í ágúst þegar liðin
voru tvö ár og fjórir mánuð-
ir án þess að ráðuneytið svaraði
umsókn um leyfi til að flytja inn
egg frá Svíþjóð. Umboðsmaður
segir málsmeðferð ráðuneytisins
ekki samrýmast málshraðareglu
stjórnsýslulaga. - gar
Ósk um eggjainnflutning:
Ráðuneyti tafði
mál í yfir tvö ár
KJÖRKASSINN