Fréttablaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 75
LAUGARDAGUR 18. desember 2010 3
þurfa að drífa öll gjafakaupin
og innpökkunina af,“ segir Jana
María. „Lengi hef ég séð um að
pakka inn jólagjöfum fyrir vini
og vandamenn enda er fátt sem
kemur mér í meira jólaskap en
að pakka inn við kertaljós, ilm-
andi greni, kanil og með fallega
jólatónlist á fóninum. Nú hef ég
nægan tíma til þess og hef því
ákveðið að taka innpökkunina
skrefinu lengra.“
Þetta skref felst í að stofna lítið
fyrirtæki í Reykjavík sem ber
hið veglega heiti Innpökkunar-
þjónusta Gjafmundar. Fólki gefst
þannig kostur á að koma með
gjafir til Jönu Maríu, sem pakk-
ar þeim inn gegn vægu gjaldi.
„Það er ekki boðið upp á þetta
á mörgum stöðum svo vel sé.
Auðvitað skiptir innihaldið mestu
máli, en það skemmir ekki að
pakkinn líti vel út undir jólatrénu
og að umbúðirnar séu einstakar
og á persónulegu nótunum. Ég
nota einfaldan og náttúrulegan
efnivið í gjafirnar, greni og
þurrkaðar appelsínur svo eitt-
hvað sé nefnt, og hvert merki-
spjald er gert af mér. Ég hef
verið að nostra við svona lagað
lengi, síðan ég var í fornámi í
myndlistarskóla, og er komin
með gott safn af merkispjöldum
og pakkaskrauti þannig að úr
nægu er að velja.“
Innpökkunin gegnir ekki ein-
ungis því hlutverki að koma Jönu
Maríu í rétt skap. Hún er einnig
kærkomið mótvægi við sviðs-
listirnar. „Það er nauðsynlegt
að gera eitthvað allt annað en að
koma fram til að hlaða batteríin.
Ég get ekki talað fyrir hönd allra
leikara, en held að það sé mjög
hollt að gera eitthvað áþreifan-
legt með höndunum á milli þess
að stíga á svið.“
Jana María er þó ekki fullkom-
lega laus við sviðið þrátt fyrir
að leikhúsið sé í jólafríi. Í kvöld
flýgur hún norður og kemur fram
á tónleikum á Græna hattinum
sem haldnir eru vegna útgáfu
jólaplötunnar Jólastjörnur. „Svo
kem ég beint aftur suður og sest
við jólapakkana á sunnudag.“
Nánari upplýsingar um Gjaf-
mund er hægt að fá gegnum
tölvupóst á gjafmundur@gmail.
com, en hver pakki kostar 350
krónur. tryggvi@frettabladid.is
Jana notar ýmiss efni til að skreyta jólapakkana og hefur meðal annars pakkað þeim
inn í Andrésblöð. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Boðið verður upp á óvenjulega
uppákomu á Skólavörðustígnum
í dag.
Listamaðurinn Daníel Hjörtur
Sigmundsson mundar keðjusög af
mikilli færni fyrir utan verslunina
Eitthvað íslenskt á Skólavörðustíg
14 í dag. Daníel sker út andlit
og fleira úr rekaviðardrumbum
og öðru óvenjulegu efni á heila
tímanum frá klukkan 13 til 18.
Verður vafalítið forvitnilegt að
fylgjast með listamanninum að
störfum.
Verk Daníels eru til sölu í
versluninni Eitthvað íslenskt sem
opnaði nýlega og mun verða opin
fram að áramótum. Þar koma
saman handverks- listamenn
og hönnuðir og bjóða fólki að
kaupa beint af sér. Þar ægir öllu
mögulegu saman og efnisvalið er
fjölbreytt. Allt frá glerperlum,
ull og tré til leirs, silkis og
ljósmynda.
Þeir sem vilja kynna sér starf-
semi verslunarinnar nánar er
bent á facebooksíðu hennar undir
Eitthvað íslenskt. - sg
Listasmíð með keðjusög
Listamaður að störfum. Daníel Hjörtur mundar keðjusögina.
Borgardekk
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Framhald af forsíðu
SNILLDARJÓLAGJÖF 15%
Jólafsláttur af
þessum frábæru
hleðslutækjum
JÓLAKJÓLAR
20%
afsláttur af öllum vörum
Verð 16.990,-
Nú 12.990,-
Verð 24.990,-
Nú 19.990,-
Litir; fjólublár, blár, svart, rautt og sægrænt
Margar gerðir og litir
Opið til kl 22