Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 20
14
Jón A. Hjallalín.
IÐUNN
mun mörgum hafa fundist, að nú væri á enda einn
kaflinn í menningarsögu vorri. Nú komu nýir tímar.
Skóla og kennara verður að dæma eftir árangrinum
sem náðst hefir. Og það er enginn vafi á því, að Möðru-
vallaskólinn og Hjaltalín skipa hér veglegt sæti. Lang-
flestir nemendur Hjaltalíns voru alþýðumenn, bænda-
synir, sem síðan hafa orðið bændur. Að eins örfáir hafa
gengið mentaveginn. Skólinn hefir mótað álitlegan hluta
af bændastétt vorri, einkum á Norður- og Austurlandi,
og mannað hana meir en nokkur önnur stofnun. En
það er ekki að eins sem bændur að Möðruvellingar
hafa getið sér góðan orðstír. Margir þeirra hafa skarað
fram úr í öðrum atvinnugreinum eða komist til mikilia
virðinga í opinberu lífi þjóðarinnar. Þannig hafa 18 af
lærisveinum Hjaltalíns orðið alþingismenn. Meðal þeirra
eru einnig margir merkustu forstöðumenn kaupfélaganna
og nokkrir af helztu stórkaupmönnum landsins og margir
útgerðarmenn. Nálega á hverju sviði þjóðfélagsins má
finna atkvæðamenn, sem notið hafa kenslu og leiðsagnar
Hjaltalíns. Fjölda margir af lærisveinum hans hafa verið
vel ritfærir menn og orðhagir. Er það bezti dómurinn
um íslenzkukenslu Hjaltalíns.
Auðvitað er það ekki Hjaltalín einum að þakka, að
skólinn hafði svo mikil og góð áhrif. Lærisveinarnir
munu yfirleitt hafa verið betri en alment gerist, og svo
var skólinn svo lánsamur, að hafa Stefán Stefánsson
fyrir kennara.
Stefán og Hjaltalín voru harla ólíkir menn að skap-
lyndi og skoðunum, en þetta var einmitt til góðs, því
þeir bættu hvor annan upp. Báðir elskuðu þeir skólann
og höfðu bjargfasta trú á tilgangi hans og þýðingu fyrir
þjóðina. Og báðir voru nægilega víðsýnir íil þess að
láfa ekki blekkjast af gömlum venjum og arfsögnum. Ef