Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 27
ÍDUNN
Andinn frá Worms og örlög hans.
Og einn mót öllum stóð hann
í ægilegri höll,
og einn mót öllum vóð hann
á andans sigurvöll;
og öld af ótta starði,
þeim ægði dirfskan sú,
er ljós og líf hann varði
með lifandi krafli og trú.
(M. Joch.).
A öndverðu ári 1521 var ríkisþing háð í borginni
Worms á Þýzkalandi. Það þing er talið meðal merk-
ustu atburðanna, er getur í sögu siðbótarinnar lútersku,
og er jafnvel talið marka ein hin mestu tímamót í sögu
mannsandans á Vesturlöndum.
En þótt þetta þing sé talið meðal merkustu atburða
siðbótarinnar, þá er ekki hægt að benda á neitt, er á
þinginu gerðist, og segja, að það hafi úrslitum valdið
um framgang hennar eða mótað stefnu hennar. Lúther
kemur þangað í banni páfa og fer þaðan með sömu
bannfæringuna á herðum. Þangað er ekki hægt að rekja
uppruna neinnar þeirrar trúarjátningar, sem hin nýja
kirkjudeild tjóðraði seinna kenningar sínar við. Meðal
fylgjenda Lúthers eru engin samtök gerð á því þingi,
sem trygðu sigur siðbótarinnar. Það má segja, að í sið-
bótarmálinu hafi alt staðið við það sama, þegar þinginu
lauk og þegar það hófst, að undanskildri yfirlýsingu
keisara um, að Lúther sé útlægur úr ríki hans. Með
því hafði ríkisvaldið tekið sér afstöðu gegn siðbótinni.